Albert eftirsóttur Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 20. júní 2023 09:00 Að minnsta kosti fjögur lið í Serie A íhuga nú að fá Albert í sínar raðir. Vísir/Diego Landsliðsmaðurinn Albert Guðmundsson virðist á óskalista þónokkurra liða í Serie A, ítölsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu. Hann var á dögunum orðaður við stórveldið AC Milan en nú hafa þrjú ný lið verið nefnd til sögunnar.
Albert var hreint út sagt frábær þegar Genoa tryggði sér sæti í Serie A eftir aðeins eitt ár í B-deildinni á Ítalíu. Í 36 deildarleikjum skoraði KR-ingurinn lunkni 11 mörk og gaf 5 stoðsendingar. Það var nóg til að vekja athygli AC Milan og nú hefur ítalski blaðamaðurinn Gianluca Di Marzio greint frá því að minnst þrjú lið til viðbótar hafi áhuga á að fá Albert í sínar raðir. Samkvæmt frétt á vefsíðu blaðamannsins er um að ræða Fiorentina, Sassuolo og Bologna. Andri Fannar Baldursson er leikmaður síðastnefnda liðsins en hann eyddi síðustu leiktíð á láni hjá NEC í Hollandi. Fiorentina endaði í 8. sæti Serie A á síðustu leiktíð, Bologna endaði sæti neðar á meðan Sassuolo endaði í 13. sæti. Albert var í byrjunarliði Íslands á dögunum þegar liðið tapaði 1-2 fyrir Slóvakíu í undankeppni EM 2024. Klukkan 18.45 í kvöld fer fram leikur Íslands og Portúgal á Laugardalsvelli. Verður leikurinn í beinni textalýsingu á Vísi.
Fótbolti Ítalski boltinn Mest lesið Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Fleiri fréttir Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Sjá meira