Vefverslun Klukkunnar slær í gegn Klukkan 19. júní 2023 12:11 Verslunin Klukkan flutti í vetur í stærra og bjartara húsnæði við Nýbýlaveg í Kópavogi. Þar fer enn betur um viðskiptavini og starfsfólk hennar. Verslunin Klukkan hefur í nær hálfa öld selt landsmönnum skartgripi, úr og ýmsa gjafavöru.
Klukkan hefur alla tíð verið staðsett í Kópavogi en um miðjan síðasta vetur flutti verslunin í stærra og betra húsnæði við Nýbýlaveg í Kópavogi þar sem fer enn betur um viðskiptavini og starfsfólk hennar. Klukkan er vefverslun vikunnar á Vísi. Við einblínum fyrst og fremst á gott úrval af úrum og skartgripum,“ segir Hjördís Viðarsdóttir verslunarstjóri. „Við erum líklega með stærsta úrval landsins í úrum og ber þar helst að nefna Casio, Tommy Hilfiger, Emporio Armani, Versace og Michael Kors. Ný Swiss made merki hjá okkur á borð við Frederique Constant, Jaguar og Versace hafa einnig vakið mikla lukku og farið frábærlega af stað.“ Klippa: Klukkan - vefverslun vikunnar Einnig hefur Klukkan aukið jafnt og þétt úrvalið af skartgripum. „Þar má til dæmis nefna frábærar línur frá Michael Kors, Emporio Armani og Tommy Hilfiger. Þessi merki eru mjög vinsæl hjá okkur og hafa laumast í mjög marga jóla-, fermingar- og útskriftarpakka undanfarin ár." Auk þess á íslenska skartið alltaf góðan sess hjá Klukkunni. „Vörumerkin Vera Design, Sign og By Lovisa eru alltaf vinsæl og fást allar vinsælustu vörurnar frá þessum merkjum hjá okkur.“ Hjördís segir verslunina kappkosta að hafa einstaklega gott vöruúrval, veita hraða og góða þjónustu og síðast en ekki síst að bjóða upp á allt það nýjasta og vinsælasta í þeim merkjum og vöruflokkum sem þau bjóða upp á. „Nýja verslunin okkar er mun rýmri og er meira í alfaraleið sem hentar viðskiptavinum okkar mjög vel. Við reynum alltaf að eiga allar vinsælustu vörurnar til í verslun okkar. Það hefur einnig aukist að viðskiptavinir vilji fá áletrun á úr eða skartgripi enda alltaf vinsælt að gefa persónulegar gjafir.“ Klukkan býður upp á mjög gott úrval af úrum og skartgripum frá heimsþekktum merkjum. Hún segir viðtökur viðskiptavina við nýrri verslun hafa verið frábærar og þeir séu mjög ánægðir með breytinguna. „Við vorum staðsett á góðum stað í Hamraborginni í rúm 40 ár en það var komin þörf á stærra húsnæði. Nýja rýmið er miklu bjartara sem auðveldar viðskiptavinum að skoða úrvalið hjá okkur. Það ríkir því almenn ánægja meðal viðskiptavina okkar auk þess sem hér eru fleiri bílastæði og aðgengi fyrir hjólastóla er framúrskarandi.“ Við flutninginn var úrsmíðaverkstæðið uppfært svo það stæðist alþjóðlegar kröfur að sögn Hjördísar en þau hafa tvo úrsmiði á staðnum. „Nú getum við því þjónustað allar tegundir úra hratt og örugglega og á sanngjörnu verði.“ Vefverslun Klukkunnar fór í loftið árið 2015. Vinsældir hennar hafa aukist jafnt og þétt síðan og í dag er hún líklega sú stærsta sinnar tegundar hér á landi segir Hjördís. „Vefverslun okkar hefur verið vinsæl hjá viðskiptavinum um land allt enda auðveldar hún þeim að finna réttu vörurnar. Þar er hægt að panta vörur og fá afhentar samdægurs eða næsta virka dag en það er eitthvað sem viðskiptavinir okkar kunna afar vel að meta. Við höfum alltaf haft það í forgrunni að bjóða upp á einstaklega notendavæna upplifun í vefverslun okkar og er það eitthvað sem er í stöðugri endurskoðun.“ Hún segir skipta öllu máli að geta veitt persónulega og góða þjónustu. „Heimurinn er alltaf að vera hraðari og við bregðumst við því með því að leggja okkur fram við að standa við lofaðan afhendingartíma. Stundum tekst okkur að fara fram úr væntingum og það finnst okkur afar ánægjulegt.“ Klukkan tekur inn nýjar vörur í flestum merkjum mánaðarlega að sögn Hjördísar. „Svo gætu fleiri góð og spennandi merki bæst við á næstu misserum. Því hvet ég sem flesta til að kíkja reglulega inn á klukkan.is og kynna sér úrvalið.“ Nánari upplýsingar á klukkan.is.
Verslun Kópavogur Mest lesið Barðist við tárin yfir fimmtán mínútna lófataki Bíó og sjónvarp Mýtur um fjármál: Hræddur við YOLO-viðhorf Íslendinga Lífið Erfitt að geta ekki rætt meðgönguna við móður sína Lífið Framsóknarprins fékk formannsnafn Lífið Graham Greene er látinn Lífið „Og Rakel er á lausu!“ Lífið Búið að krýna nýjan arftaka Vogue-veldisins Tíska og hönnun „Guð og karlmenn elska mig“ Lífið Huggulegustu hommar landsins kaupa heillandi hæð Lífið Pattra og Birgitta Líf með keppnisskapið og lúkkið upp á tíu Lífið Fleiri fréttir Með stimpil upp á ekta spænska matarmenningu Með stimpil upp á ekta spænska matarmenningu Er hárið skemmt eða bara þurrt? Opna Preppbarinn í Keflavík og bjóða 50% afslátt Stjörnum prýdd dagskrá Bylgjunnar í Hljómskálagarðinum Stöðugt á ferð og flugi með sterkari skrokk Víkurverk hefur allt fyrir ferðalagið og meira til Hver dáleiðsla er spennandi og ófyrirsjáanlegt ferðalag Fann lausn við verkjunum sem breytti öllu Egill, Valgeir og Sigurður Bjóla saman á sviði í fyrsta sinn síðan 1976 Sjá meira