Stuðningsmenn íslenska liðsins tók daginn snemma og kíkti á Ölver þar sem þjálfarinn Åge Hareide ávarpaði mannskapinn.
Var að mæta á Ölver. Ägelega góð stemmning, fólk ekki byrjað að syngja samt. Björn Hlynur og Dóri Gylfa báðir á svæðinu. Áfram Ísland!
— Arnar Már Guðjónsson (@ArnarMarG) June 17, 2023
Þá fór vel um blaðamann Vísis, Árna Jóhannsson, sem textalýsti leiknum.
Þegar maður er einn með heilt box þá tekur maður könnuna til sín. Áfram Ísland https://t.co/H0tysD0ASX pic.twitter.com/KCwX5L3ZCC
— Árni Jóhannsson (@arnijo) June 17, 2023
Íslenska liðið byrjaði leikinn af miklum krafti og óð í færum, en inn vildi boltinn ekki.
Við erum búnir að fá fleiri færi núna á þessu korteri heldur en við höfum fengið á síðustu tveimur árum.
— Arnar Sveinn (@arnarsveinn) June 17, 2023
Hvernig erum við ekki búin að skora? #fotboltinet https://t.co/OIG0vAE9e2 pic.twitter.com/8cDBYJmb6E
— Fótbolti.net (@Fotboltinet) June 17, 2023
Willum að fara frábærlega af stað. Flottar staðsetningar og góð vigt í öllum sendingum
— Jón Kristjánsson (@nonnidk) June 17, 2023
Ísland búið að skapa fleiri dauðafæri á korteri undir stjórn Åge heldur en á allri stjórnartíð AÞV, þvílík umbylting!#fotboltinet
— Baldvin Borgars (@Baddi11) June 17, 2023
Einhverjir fóru fram úr sér og eru farnir að huga að því hvernig sé best að koma sér til Þýskalands þar sem EM verður haldið næsta sumar.
Ég er ekki einu sinni á vellinum, en ég finn að það er allt önnur orka yfir þessu! Djöfull verður gaman í Þýskalandi!
— Gísli Þòr Gíslason (@gislithorr) June 17, 2023
Slóvakar tóku þó forystuna mað marki frá Juraj Kucka á 27. mínútu gegn gangi leiksins og má segja að það hafi verið sem blaut tuska í andlitið fyrir íslenska liðið.
Eftir frábæra byrjun íslenska liðsins skorar Juraj Kucka með skoti fyrir utan teig og kemur Slóvakíu í 0-1.#fyririsland pic.twitter.com/uNtrfngs8x
— Knattspyrnusambandið (@footballiceland) June 17, 2023
Það er ekki íslenska leiðin að beygja sig undan skotunum
— Einar Guðnason (@EinarGudna) June 17, 2023
Alfreð Finnbogason jafnaði hins vegar metin úr vítaspyrnu sem Willum Þór Willumsson fiskaði.
Maaaaaark! Alfreð Finnbogason jafnar leikinn úr vítaspyrnu 😍 #fyririsland pic.twitter.com/GUKjCWlud2
— Knattspyrnusambandið (@footballiceland) June 17, 2023
Gulli Victor með alvöru fyrirliðamove í vítaspyrnunni 🇮🇸
— Guðmundur Ásgeirsson (@gummi_aa) June 17, 2023
Tekur boltann og dregur í sig alla hugarleikfimi Slóvaka áður en Alfreð stígur fram til að taka vítið 👏 pic.twitter.com/53ueszpROA
Slóvakar voru hins vegar hársbreidd frá því að taka forystuna á ný stuttu fyrir hálfleikshléið, en Rúnar Alex Rúnarsson er svo sannarlega betri en enginn í markinu og stupningsmenn Íslands gátu því farið nokkuð sáttir inn í hálfleikinn.
Arteta hlýtur að setja Rúnar Alex í búrið ef hann sá þessa vörslu.
— Kristján Óli Sigurðsson (@kristjanoli) June 17, 2023
Thats why Arsenal pay him the big bucks. Þvílík varsla hjá Rúnari
— Hörður S Jónsson (@hoddi23) June 17, 2023
Vá þessi fyrri hálfleikur. Þvílík skemmtun. Var búinn að sakna svona leikdaga á Laugardalsvelli #fotboltinet
— Elvar Geir Magnússon (@elvargeir) June 17, 2023
Skemmtilegur leikur, góðar pressugildrur á miðjunni en þegar þeir ná í gegn erum við opnir. Við erum að vinna xg bardagann góða. Nýta færin
— Einar Guðnason (@EinarGudna) June 17, 2023
Fólk virtist almennt hrifið af fótboltanum sem íslenska liðið var að spila undir stjórn Hareides.
Hvaða liquid fótbolta er norski snillingurinn að láta okkur spila? Þetta er SKEMMTILEGT
— Daníel (@danielmagg77) June 17, 2023
Stuðningsmenn íslenska liðsins vildu fá aðra vítaspyrnu í upphafi síðari hálfleiks og voru allt annað en sáttir við VAR-dómarann Chris Kavanagh.
Heimska Kavanagh rusl segðu honum að kíkja í skjáinn þetta er obvious pen heimska draslið þitt
— Sigurđur Gísli (@SigurdurGisli) June 17, 2023
Hver ætlar að skafa hafragrautinn innan úr hausnum á Chris Kavanagh??
— Birkir Bjöss (@Birkir_Bjoss) June 17, 2023
Slóvakar tóku að lokum forystuna á ný með marki sem verður í besta falli lýst sem klaufalegu. Jóhann Berg Guðmundsson reyndi þá að hreinsa frá marki, en þrumaði í Tomas Suslov og þaðan fór boltinn í netið. Stef stuðningsmanna Íslands var því svipað eftir markið.
Guð minn góður.
— Hrafn Kristjánsson 🇺🇦 (@ravenk72) June 17, 2023
Guð. Minn. Góður.
— Henry Birgir (@henrybirgir) June 17, 2023
Skulum ekki láta eins og þetta mark hafi ekki verið lélegt hjá Jóa Berg þótt þetta hafi verið algjör óheppni.
— Garðar SNS (@gardarStNikulas) June 17, 2023
Annars er allt annað að sjá liðið, enda bæði komnir betri leikmenn og þjálfari.
Getum samt ekki gert sömu kröfur á úrslit post-Gylfi.
Gjörsamlega dróg liðið áfram.
Niðurstaðan varð svo að lokum svekkjandi 2-1 tap Íslands.
Gríðarlega svekkjandi 1-2 tap gegn Slovakíu er niðurstaðan í kvöld.
— Knattspyrnusambandið (@footballiceland) June 17, 2023
Næsti leikur liðsins er gegn Portúgal á þriðjudag.#fyririsland pic.twitter.com/HsK1IVLIFq
Margt gott í leik íslenska liðsins í Laugardalnum í kvöld. Eigum hins vegar eitthvað í land. Framför þrátt fyrir tap. Næsta mál.Eina.
— Guðjón Guðmundsson (@gaupinn) June 17, 2023