Mátti ekki þyngja dóm föður sem káfaði á dóttur sinni Árni Sæberg skrifar 7. júní 2023 17:14 Hæstiréttur mildaði dóm mannsins í sömu lengd og hann var upphaflega dæmdur til. Vísir/Vilhelm Hæstiréttur hefur mildað dóm Landsréttar yfir manni sem sakfelldur var fyrir að káfa á dóttur sinni í tvö skipti. Málið er eitt þeirra sem fór fyrir Endurupptökudóm í kjölfar Landsréttarmálsins svokallaða.
Forsaga málsins er sú að maðurinn var árið 2015 rannsakaður vegna ætlaðra kynferðisbrota gegn tveimur dætrum sínum. Árið 2017 var maðurinn svo ákærður fyrir að hafa í fleiri skipti káfað á kynfærum annarar dótturinnar, fyrir að hafa á tilgreindu tímabili oft horft á klámmyndir í viðurvist dætra sinni og í eitt skipti fróað sér í viðurvist dótturinnar sem hann káfaði á. Í héraði var maðurinn sakfelldur fyrir að hafa í minnst þrjú skipti káfað á dótturinni utan klæða en sýknaður af öðrum ákæruliðum. Hann var dæmdur til eins árs fangelsisvistar og til þess að greiða dótturinni 800 þúsund krónur í miskabætur. Ákæruvaldið skaut málinu til Hæstaréttar en í samræmi við lög um stofnun millidómsstigs var málið rekið fyrir Landsrétti frá 2. janúar árið 2018. Í Landsrétti var maðurinn sakfelldur fyrir að hafa í tveimur tilvikum káfað utan klæða á kynfærum dóttur sinnar. Refsing mannsins var lækkuð frá því sem dæmt hafði verið í héraði og honum gert að sæta fangelsi í níu mánuði. Með vísan til þess að málsmeðferð hefði tafist að óþörfu og án skýringa var fullnustu sex mánaða refsingarinnar frestað skilorðsbundið í þrjú ár. Þá var niðurstaða héraðsdóms um greiðslu miskabóta staðfest. Áfrýjunarbeiðni hans til Hæstaréttar var hafnað. Landsréttarmálið hefur enn áhrif Með beiðni í apríl 2019 fór maðurinn fram á við Endurupptökunefnd að mál hans yrði endurupptekið á þeim grunni að skipan dóms Landsréttar hefði ekki verið rétt að lögum í skilningi mannréttindasáttmála Evrópu. Árið 2020 tók Endurupptökudómur við meðferð beiðnarinnar og með úrskurði hans árið 2022 var beiðnin samþykkt og málið sent aftur til efnismeðferðar. Með síðari dómi Landsréttar í málinu var maðurinn sakfelldur fyrir að hafa í eitt skipti káfað á kynfærum dóttur sinnan utan klæða og einu sinni innan klæða. Refsing mannsins var þyngd í tólf mánuði og skilorðsbundin til níu mánaða. Þá voru miskabætur hækkaðar í eina milljón króna. Ákæruvaldið krafðist lækkun refsingar Í kjölfar þess leitaði ríkissaksóknari leyfis Hæstaréttar til áfrýjunar með vísan til þess að með hinum áfrýjaða dómi hefði verið brotið gegn rétti dómfellda samkvæmt ákvæði laga um meðferð sakamála, svohljóðandi: Nú hefur mál verið endurupptekið eftir beiðni dómfellda og má þá hlutur hans aldrei verða lakari en hann var eftir hinum upphaflega dómi. Fyrir Hæstarétti krafðist maðurinn þess annars vegar að málinu yrði vísað frá á grundvelli þess að ákæru hafi verið ábótavant og hins vegar sýknu á þeim grunni að hann hafi frá fyrstu stundu neitað sök. Þar sem hvorki væri til að dreifa trúverðugum framburði vitna né öðrum gögnum sem styðji sakfellingu bæri að leggja trúverðugan framburð hans til grundvallar niðurstöðu í málinu. Ákæruvaldið krafðist þess að refsing mannsins, sem honum var gerð með hinum áfrýjaða dómi, yrði lækkuð. Féllust hvorki á frávísun né sýknu Í niðurstöðum Hæstaréttar segir að hvorki yrði fallist á með manninum að slíkir ágallar hafi verið á málsmeðferð fyrir Landsrétti að leiða eigi til ómerkingar dómsins og heimvísunar til nýrrar meðferðar né hróflað yrði við niðurstöðu dómsins um sakfellingu hans. Á hinn bóginn væri ákvörðun refsingar mannsins í hinum áfrýjaða dómi í andstöðu við bein fyrirmæli í lögum um meðferð sakamála, um að hlutur ákærða megi aldrei verða lakari en hann var eftir hinum upphaflega dómi Landsréttar. Samkvæmt því, að virtum refsiforsendum hins áfrýjaða dóms og með hliðsjón af almennum hegningarlögum, væri refsing ákærða ákveðin fangelsi í níu mánuði. Vegna alvarleika brota mannsins væru ekki efni til að skilorðsbinda refsingu hans frekar en gert var í hinum upphaflega dómi. Dóm Hæstaréttar má lesa í heild sinni hér.
Dómsmál Landsréttarmálið Kynferðisofbeldi Ofbeldi gegn börnum Mest lesið Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent Foksandur og rykagnir búa í þokunni Innlent Var bjargað úr sjónum eftir hálftíma: „Slysin gera ekki boð á undan sér“ Innlent Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Innlent Einn handtekinn í umfangsmikilli lögregluaðgerð á Akureyri Innlent Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Innlent Ingibjörg þarf ekki að víkja í máli Margrétar Innlent Fleiri fréttir Sigríður Björk aftur færð til Gagnrýnin komi ekki á óvart en telja sig vera að gera rétt Kosningapallborð fréttastofu: Mun Sjálfstæðisflokkurinn halda velli í Garðabæ? Launamál í verkalýðshreyfingunni og þingmaður hætt kominn á kajak Ingibjörg þarf ekki að víkja í máli Margrétar Foksandur og rykagnir búa í þokunni Var bjargað úr sjónum eftir hálftíma: „Slysin gera ekki boð á undan sér“ Bílvelta á Hringbraut Umfangsmikil lögregluaðgerð vegna líkamsárásar Tungumálið gerir Ísland að landi tækifæranna Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Einn handtekinn í umfangsmikilli lögregluaðgerð á Akureyri Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Ný könnun og frægasti köttur landsins Kona flutt á sjúkrahús eftir bruna í kjallaraíbúð Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Eldur olli miklum skemmdum í kjallara „Hræðsluáróður, stagl og þvæla sem stjórnarandstaðan ætlar að keyra á“ Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Nánast búin með stafrófið Útlit fyrir flókna meirihlutamyndun í borginni Launahækkun Höllu illskiljanleg Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Sjá meira
Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent
Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent