Skelkuð hross í sjálfheldu Aníta Guðlaug Axelsdóttir skrifar 28. maí 2023 07:01 Skelkuð hross á sundi þar sem venjulega væri tún undir fótum þeirra. RAX Í desember árið 2006 flæddu Hvítá, og Litla- og Stóra Laxá yfir bakka sína með þeim afleiðingum að stórt landsvæði á Suðurlandi var þakið vatni. Þá sást að það er engin tilviljun að bæjarstæði á þessu svæði eru jafnan á hæðum og hólum því að bæirnir litu margir út fyrir að standa á litlum eyjum. Stór hópur hrossa lenti í sjálfheldu úti í vatninu í hávaðaroki og miklum öldugangi. Björgunarsveitin Eyvindur í Hrunamannahreppi var ræst út til að koma hrossunum til bjargar og RAX var á staðnum og náði myndum af björgunaraðgerðunum þar sem björgunarsveitin þurfti að reka hrossin á sund til þess að koma þeim í land. „Hestar verða mjög hræddir í þessum aðstæðum þannig að það var mjög tvísýnt hvernig þetta færi.“ Í október árið 2002 var mikið rigningaveður og vatnavextir á Suðausturlandi og RAX fór af stað til þess að ná myndum af ástandinu. Áin Kolgríma flæddi yfir bakka sína með látum og flóðið hreif með sér u.þ.b. hundrað metra kafla af hringveginum ásamt því að skola stærðarinnar ísjökum á tún nærliggjandi bæja. Bóndinn á Skálafelli, Þorsteinn Sigfússon, sagði að hvorki hann né tengdaforeldrar hans sem höfðu búið á svæðinu í 60 ár, hefðu nokkurn tímann séð annað eins flæði í ánni. RAX var eini fulltrúi fjölmiðla á svæðinu sem náði að mynda eftirleik flóðsins. „Það var svolítið magnað að sjá hvernig náttúruöflin geta bara rústað því sem þeim dettur í hug að eyðileggja.“ Myndirnar af báðum flóðunum má sjá í nýjasta þætti RAX Augnablik í spilaranum hér að neðan. Klippa: RAX augnablik - Flóð Hér fyrir neðan má sjá fleiri þætti úr smiðju RAX. Á gamlárskvöld árið 1994 fældist hópur hesta við flugeldasprengingar og fannst ekki fyrr en þremur dögum seinna, í sjálfheldu uppi á fjallinu Skarðshyrnu. RAX slóst í för með hópi manna sem hugðist halda í leiðangur upp á fjallið til þess að bjarga hestunum. Klippa: RAX Augnablik - Í sjálfheldu á Skarðshyrnu Árið 1993 stefndi djúp lægð að landi. Veðrið yrði verst undir Eyjafjöllum og RAX hélt rakleiðis þangað til þess að mynda veðurhaminn þegar að lægðin skylli á landinu. Hann var búinn að ná flottum myndum þegar bíllinn með honum og vinnufélaga hans, Þorkeli Þorkelssyni ljósmyndara, fauk af veginum. Klippa: RAX Augnablik - Stormur undir Eyjafjöllum Í þáttunum RAX Augnablik segir ljósmyndarinn Ragnar Axelsson sögurnar á bak við margar af sínum þekktustu myndum. Ragnar hefur starfað á vettvangi í meira en fjörutíu ár og eru sögurnar hans ævintýralegar. Nýr þáttur kemur út á hverjum sunnudegi hér á Vísi og á Stöð 2+. Hægt er að sjá alla þættina hér á Vísi. Hestar Náttúruhamfarir Ljósmyndun RAX Tengdar fréttir „Nautið kom alltaf á fleygiferð“ Á einni af ferðum sínum um Færeyjar kom RAX auga á skjöldótt naut sem hann langaði að mynda. Það stóð við mosagróinn hlaðinn vegg og RAX sá fyrir sér mynd þar sem það liti út fyrir að vera hluti af veggnum. Nautið átti sér hins vegar enga drauma um fyrirsætustörf og brást hið versta við og reyndi að stanga RAX sem flúði upp á vegginn þar sem hann mátti dúsa í hálftíma. 21. maí 2023 07:01 Bílarnir sem Kaninn skildi eftir Að ramba á stað sem eitt sinn iðaði af lífi en er nú í eyði er sérstök upplifun. Ikatek flugvöllur á Grænlandi er þannig staður. Hann var byggður af Bandaríkjaher í seinna stríði og notaður sem varaflugvöllur þar sem flugvélar á þessum slóðum gátu fengið olíu. Bílar, olíutunnur og leifar af flugskýlum og skálum standa á svæðinu innan um tignarleg fjöllin í kring og hafa ekki verið hreyfð eða notuð frá því að stríðinu lauk. 7. maí 2023 07:01 „Við vorum í verulegri hættu“ Árið 1990 lýstu Eystrasaltsríkin yfir sjálfstæði frá Sovétríkjunum og í janúar 1991 hélt Jón Baldvin Hannibalsson, þáverandi utanríkisráðherra, utan til þess að viðurkenna sjálfstæði þeirra fyrir hönd Íslands, fyrst ríkja heims. RAX fylgdi honum út ásamt öðru fjölmiðlafólki. 23. apríl 2023 07:01 „Þetta var stórkostleg björgun“ Á jóladagsnótt árið 1986 sökk flutningaskipið Suðurland við dularfullar aðstæður á leið sinni til Murmansk. Veður var slæmt og kafbátar á vegum Rússa og Breta voru á ferð í nálægð við skipið. Skipið tók á sig mikið högg, sjór flæddi nær stjórnlaust inn, og það tók að sökkva hratt. 9. apríl 2023 07:00 RAX Augnablik: „Maður þarf að klípa sig til að átta sig á því hvort að maður sé dauður“ Ragnar Axelsson fylgdi fjallmönnunum Þórði og Olgeiri um árabil að smala fé af fjöllum á Landmannaafrétti. Hann óttast að það sé hefð sem sé að líða undir lok. 11. desember 2022 07:01 Mest lesið Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Bíó og sjónvarp Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Lífið „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Lífið Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Lífið Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ Lífið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Lífið White Lotus-stjarna bætist í leikhópinn Bíó og sjónvarp Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Lífið Ótrúleg saga fólks sem valdi mildi og mannúð í stað reiði Menning Fleiri fréttir Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Sjá meira
Stór hópur hrossa lenti í sjálfheldu úti í vatninu í hávaðaroki og miklum öldugangi. Björgunarsveitin Eyvindur í Hrunamannahreppi var ræst út til að koma hrossunum til bjargar og RAX var á staðnum og náði myndum af björgunaraðgerðunum þar sem björgunarsveitin þurfti að reka hrossin á sund til þess að koma þeim í land. „Hestar verða mjög hræddir í þessum aðstæðum þannig að það var mjög tvísýnt hvernig þetta færi.“ Í október árið 2002 var mikið rigningaveður og vatnavextir á Suðausturlandi og RAX fór af stað til þess að ná myndum af ástandinu. Áin Kolgríma flæddi yfir bakka sína með látum og flóðið hreif með sér u.þ.b. hundrað metra kafla af hringveginum ásamt því að skola stærðarinnar ísjökum á tún nærliggjandi bæja. Bóndinn á Skálafelli, Þorsteinn Sigfússon, sagði að hvorki hann né tengdaforeldrar hans sem höfðu búið á svæðinu í 60 ár, hefðu nokkurn tímann séð annað eins flæði í ánni. RAX var eini fulltrúi fjölmiðla á svæðinu sem náði að mynda eftirleik flóðsins. „Það var svolítið magnað að sjá hvernig náttúruöflin geta bara rústað því sem þeim dettur í hug að eyðileggja.“ Myndirnar af báðum flóðunum má sjá í nýjasta þætti RAX Augnablik í spilaranum hér að neðan. Klippa: RAX augnablik - Flóð Hér fyrir neðan má sjá fleiri þætti úr smiðju RAX. Á gamlárskvöld árið 1994 fældist hópur hesta við flugeldasprengingar og fannst ekki fyrr en þremur dögum seinna, í sjálfheldu uppi á fjallinu Skarðshyrnu. RAX slóst í för með hópi manna sem hugðist halda í leiðangur upp á fjallið til þess að bjarga hestunum. Klippa: RAX Augnablik - Í sjálfheldu á Skarðshyrnu Árið 1993 stefndi djúp lægð að landi. Veðrið yrði verst undir Eyjafjöllum og RAX hélt rakleiðis þangað til þess að mynda veðurhaminn þegar að lægðin skylli á landinu. Hann var búinn að ná flottum myndum þegar bíllinn með honum og vinnufélaga hans, Þorkeli Þorkelssyni ljósmyndara, fauk af veginum. Klippa: RAX Augnablik - Stormur undir Eyjafjöllum Í þáttunum RAX Augnablik segir ljósmyndarinn Ragnar Axelsson sögurnar á bak við margar af sínum þekktustu myndum. Ragnar hefur starfað á vettvangi í meira en fjörutíu ár og eru sögurnar hans ævintýralegar. Nýr þáttur kemur út á hverjum sunnudegi hér á Vísi og á Stöð 2+. Hægt er að sjá alla þættina hér á Vísi.
Í þáttunum RAX Augnablik segir ljósmyndarinn Ragnar Axelsson sögurnar á bak við margar af sínum þekktustu myndum. Ragnar hefur starfað á vettvangi í meira en fjörutíu ár og eru sögurnar hans ævintýralegar. Nýr þáttur kemur út á hverjum sunnudegi hér á Vísi og á Stöð 2+. Hægt er að sjá alla þættina hér á Vísi.
Hestar Náttúruhamfarir Ljósmyndun RAX Tengdar fréttir „Nautið kom alltaf á fleygiferð“ Á einni af ferðum sínum um Færeyjar kom RAX auga á skjöldótt naut sem hann langaði að mynda. Það stóð við mosagróinn hlaðinn vegg og RAX sá fyrir sér mynd þar sem það liti út fyrir að vera hluti af veggnum. Nautið átti sér hins vegar enga drauma um fyrirsætustörf og brást hið versta við og reyndi að stanga RAX sem flúði upp á vegginn þar sem hann mátti dúsa í hálftíma. 21. maí 2023 07:01 Bílarnir sem Kaninn skildi eftir Að ramba á stað sem eitt sinn iðaði af lífi en er nú í eyði er sérstök upplifun. Ikatek flugvöllur á Grænlandi er þannig staður. Hann var byggður af Bandaríkjaher í seinna stríði og notaður sem varaflugvöllur þar sem flugvélar á þessum slóðum gátu fengið olíu. Bílar, olíutunnur og leifar af flugskýlum og skálum standa á svæðinu innan um tignarleg fjöllin í kring og hafa ekki verið hreyfð eða notuð frá því að stríðinu lauk. 7. maí 2023 07:01 „Við vorum í verulegri hættu“ Árið 1990 lýstu Eystrasaltsríkin yfir sjálfstæði frá Sovétríkjunum og í janúar 1991 hélt Jón Baldvin Hannibalsson, þáverandi utanríkisráðherra, utan til þess að viðurkenna sjálfstæði þeirra fyrir hönd Íslands, fyrst ríkja heims. RAX fylgdi honum út ásamt öðru fjölmiðlafólki. 23. apríl 2023 07:01 „Þetta var stórkostleg björgun“ Á jóladagsnótt árið 1986 sökk flutningaskipið Suðurland við dularfullar aðstæður á leið sinni til Murmansk. Veður var slæmt og kafbátar á vegum Rússa og Breta voru á ferð í nálægð við skipið. Skipið tók á sig mikið högg, sjór flæddi nær stjórnlaust inn, og það tók að sökkva hratt. 9. apríl 2023 07:00 RAX Augnablik: „Maður þarf að klípa sig til að átta sig á því hvort að maður sé dauður“ Ragnar Axelsson fylgdi fjallmönnunum Þórði og Olgeiri um árabil að smala fé af fjöllum á Landmannaafrétti. Hann óttast að það sé hefð sem sé að líða undir lok. 11. desember 2022 07:01 Mest lesið Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Bíó og sjónvarp Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Lífið „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Lífið Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Lífið Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ Lífið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Lífið White Lotus-stjarna bætist í leikhópinn Bíó og sjónvarp Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Lífið Ótrúleg saga fólks sem valdi mildi og mannúð í stað reiði Menning Fleiri fréttir Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Sjá meira
„Nautið kom alltaf á fleygiferð“ Á einni af ferðum sínum um Færeyjar kom RAX auga á skjöldótt naut sem hann langaði að mynda. Það stóð við mosagróinn hlaðinn vegg og RAX sá fyrir sér mynd þar sem það liti út fyrir að vera hluti af veggnum. Nautið átti sér hins vegar enga drauma um fyrirsætustörf og brást hið versta við og reyndi að stanga RAX sem flúði upp á vegginn þar sem hann mátti dúsa í hálftíma. 21. maí 2023 07:01
Bílarnir sem Kaninn skildi eftir Að ramba á stað sem eitt sinn iðaði af lífi en er nú í eyði er sérstök upplifun. Ikatek flugvöllur á Grænlandi er þannig staður. Hann var byggður af Bandaríkjaher í seinna stríði og notaður sem varaflugvöllur þar sem flugvélar á þessum slóðum gátu fengið olíu. Bílar, olíutunnur og leifar af flugskýlum og skálum standa á svæðinu innan um tignarleg fjöllin í kring og hafa ekki verið hreyfð eða notuð frá því að stríðinu lauk. 7. maí 2023 07:01
„Við vorum í verulegri hættu“ Árið 1990 lýstu Eystrasaltsríkin yfir sjálfstæði frá Sovétríkjunum og í janúar 1991 hélt Jón Baldvin Hannibalsson, þáverandi utanríkisráðherra, utan til þess að viðurkenna sjálfstæði þeirra fyrir hönd Íslands, fyrst ríkja heims. RAX fylgdi honum út ásamt öðru fjölmiðlafólki. 23. apríl 2023 07:01
„Þetta var stórkostleg björgun“ Á jóladagsnótt árið 1986 sökk flutningaskipið Suðurland við dularfullar aðstæður á leið sinni til Murmansk. Veður var slæmt og kafbátar á vegum Rússa og Breta voru á ferð í nálægð við skipið. Skipið tók á sig mikið högg, sjór flæddi nær stjórnlaust inn, og það tók að sökkva hratt. 9. apríl 2023 07:00
RAX Augnablik: „Maður þarf að klípa sig til að átta sig á því hvort að maður sé dauður“ Ragnar Axelsson fylgdi fjallmönnunum Þórði og Olgeiri um árabil að smala fé af fjöllum á Landmannaafrétti. Hann óttast að það sé hefð sem sé að líða undir lok. 11. desember 2022 07:01