Nonni hefur meðal annars þjálfað KF, Augnablik, Elliða, Kára, Hamar og Þrótt Vogum ásamt því að eiga tvö tímabil sem þjálfari í Bestu deild kvenna, þá hjá Val og Fylki.
Jón Aðalsteinn hefur í gegnum tíðina verið duglegur við að afla sér þekkingar og reynslu annarra þjálfara sem annað hvort eiga lengri feril eða þjálfa á hærra getustigi. Hann sagði Sverri meðal annars frá því þegar hann heimsótti Erik Hamrén, þáverandi þjálfara Rosenborgar í Noregi, sem síðar varð landsliðsþjálfari Íslands.

„Talaði ekki um annað en Erik vin sinn“
Það var Haraldur Hróðmarsson, sem lék undir stjórn Nonna hjá Hamar 2011-2012, sem opnaði þá umræðu í þættinum.
„Við fundum það og hann var alveg opinn með það að hann var hringjandi í þjálfara í efstu deild eins og Rúnar Kristinsson og Heimir Guðjónsson. Hann var að spyrja þá út í álit á einhverjum málum sem hann var að eiga við og að fylgjast með þjálfun á hæsta getustigi.
Það var frægt þegar hann fór til Rosenborgar að hitta Erik Hamrén. Svo kom hann heim og talaði ekki um annað en Erik vin sinn í mánuð,“ sagði Haraldur um fyrrum þjálfara sinn.
Nonni tók undir þessa umræðu og útskýrði betur hvernig að því kom að hann skyldi heimsækja þennan topp klúbb með topp þjálfara eins og Erik Hamrén.
„Mig skorti ákveðinn meistaraflokksferil og ég sá það alveg þannig ég fór til dæmis mikið til Danmerkur til félaga míns sem bjó þar þá og við heimsóttum marga klúbba þar. Við fórum til Rosenborgar fyrir tilstuðlan Eyfa sem var formaður og framkvæmdastjóri Hamars. Erik og Eyfi eru bestu vinir.
Sú saga hefur aldrei verið sögð í Íslenskum fjölmiðlum að Eyfi, Erik Hamrén og Eiki Hauks söngvari eru perluvinir. Hann gerði það að verkum að við fórum til Rosenborgar og vorum þar í viku.

Erik Hamrén var þá búinn að ákveða að taka við sænska landsliðinu og var að klára tímabilið með Rosenborg. Við fengum að vera á æfingasvæðinu með honum á daginn og svo var hann að gefa okkur steik og rautt á kvöldin. Vorum á öllum video fundum og fengum bara rosalegan aðgang að Rosenborg, allt fyrir tilstuðlan Eyfa,“ sagði Nonni um sína reynslu og hélt áfram.
„Varðandi Heimi þá vorum við bara svolítið að æfa saman í Hress. Vorum þar í spinning að halda okkur í formi. Með Rúnar fékk ég að fara inn á æfingar til hans og Teits Þórðar í tvær vikur. Til þess bara að fá að sjá og læra hvernig lið í efstu deild voru að gera þetta.
Það er enginn sem hringir í þig, þú verður að hringja sjálfur bara,“ sagði Nonni.
Nonni bað sömuleiðis Ásgeir Elíasson heitinn um að fá að fylgjast með æfingum hjá honum en hann tók öðruvísi á móti honum en aðrir.
„Ég bað líka „Geira El“ heitinn um að fá að fylgjast með æfingum hjá honum þegar ég var hjá Úlfunum á sínum tíma. Hann sagði nei komdu bara og æfðu. Þannig ég æfði bara með Þrótti í hálft tímabil, spilaði æfingaleiki og eitthvað fyrir Þróttarana.
Þeir voru að verða vitlausir á mér enda ekki nægilega góður. Þetta var ekta „Geiri El“ og þú getur ímyndað þér hvað maður lærði þar. Það er verið að gera þetta út um allan heim,“ sagði Jón Aðalsteinn að lokum.
Ástríðan – Hetjur neðri deildanna er sem fyrr segir nýtt hlaðvarp á Tal sem stýrt er af Sverri Mar Smárasyni sem hefur undanfarin ár stýrt hlaðvarpinu Ástríðan. Þar hefur Sverrir ásamt félögum sínum Óskari Smára og Gylfa Tryggvasyni fjallað um leiki og lið í 2.- og 3.deild karla í fótbolta.
Nú ætlar hann í nýrri þáttaröð að taka viðtöl við hetjur úr neðri deildunum sem allir hafa heyrt um en fæstir þekkja almennilega sem leikmenn eða þjálfara. Hægt er að hlusta á Hetjur neðri deildanna á öllum helstu hlaðvarpsveitum.