Það hefur ekki alltaf verið óumdeilt en þarna hefur lengi ekki verið neinn kvóti á veiði sem og engin sleppiskylda á löxum yfir 70 sm. Svæðið er líka nokkuð umdeilt á þann hátt að þarna stoppar mikið af laxi sem er leið upp í Stóru Laxá og staldrar við, sérstaklega ef Stóra Laxá er vatnslítil. Þessi lax er af þeim sökum ekki að hrygna við Iðu og er það því frekar einkennilegt að ekki hafi verið gerð sú breyting á reglum sem nú er komnar í gegn.
Samkvæmt heimildum Veiðivísis verður frá og með þessu sumri aðeins leyft að hirða einn lax á vakt sem og að öllum laxi yfir 70 sm skal sleppt. Miðað við veiðitölur af svæðinu, sem oft er erfitt að fá réttar, er líklegt að nú fái nokkur hundruð laxar tækifæri til að klára sína heimför í Stóru Laxá. Þetta á klárlega eftir að hafa mikil og góð áhrif á ánna en líka á Iðu. Með aukinni laxgengd í Stóru Laxá verður bara meira af laxi við Iðu og veiðin af þeim sökum bara betri. Eini munurinn er sá að mun færri laxar verða drepnir og engin stórlax sem gerir þetta að jákvæðum fréttum um vernd laxastofnsins.