Myrti fimm eftir að hafa verið beðinn um að hætta að skjóta úr byssu Árni Sæberg skrifar 29. apríl 2023 20:25 Lögreglumenn færa lík fórnarlambanna út af heimili þeirra. Yi-Chin Lee/AP Karlmaður í Cleveland í Texasfylki í Bandaríkjunum er grunaður um að hafa myrt fimm hondúrska nágranna sína, þar á meðal átta ára gamalt barn, eftir að hann hafði verið beðinn um að hætta að skjóta úr riffli í bakgarði sínum. Tvö fórnarlambanna fundust örend ofan á tveimur börnum, sem lifðu árásina af.
Maðurinn, sem heitir Francisco Oropeza og er 38 ára gamall, hefur verið á flótta undan laganna vörðum frá því að hann framdi ódæðið seint í gærkvöldi. Hann er talinn hafa verið ölvaður og hafa flúð inn í nærliggjandi skóglendi. Í frétt AP um málið segir að nágrannar hans hafi gefið sig að tali við hann seint í gærkvöldi og beðinn hann að láta af háttsemi sinni þar sem þeir hafi verið á leið í háttinn. Þá hafi hann haldið yfir í næsta hús og skotið fimm úr tíu manna hondúrskri fjölskyldu í höfuðið með hálfsjálfvirkum riffli. Fórnarlömbin voru á bilinu átta til fjörutíu ára gömul. Greg Capers, lögreglustjórinn í San Jacinto sýslu, segir í samtali við AP að tvær konur hafi fundist látnar ofan á tveimur ósærðum börnum. „Þessar hondúrsku konur lögðust ofan á börnin til þess að bjarga lífi þeirra,“ er haft eftir honum. Þá segir hann að lögregluyfirvöld á svæðinu hafi áður haft afskipti af manninum eftir að hann hafði verið að skjóta úr riffli í bakgarði sínum.
Skotárásir í Bandaríkjunum Bandaríkin Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Erlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Fleiri fréttir Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Sjá meira