Stjórnarformaður BBC segir af sér vegna láns til Boris Johnson Samúel Karl Ólason skrifar 28. apríl 2023 10:04 Richard Sharp segist hafa brotið reglur um hagsmundaskráningu í gáleysi. AP/Jordan Pettitt Richard Sharp, stjórnarformaður Breska ríkisútvarpsins, hefur sagt af sér eftir rannsókn þar sem skipun hans í embætti var skoðuð. Sú rannsókn snerist að miklu leyti um að Sharp hafi hjálpað Boris Johnson, þáverandi forsætisráðherra, að fá lán árið 2021, nokkrum vikum áður en Johnson skipaði hann í starfið.
Sharp mun hafa hjálpað Johnson að fá átta hundrað þúsund punda lán frá kanadískum auðjöfri en Sharp sjálfur er auðugur bakhjarl breska Íhaldsflokksins, sem Johnson leiddi er hann var forsætisráðherra. Í yfirlýsingusem breskir fjölmiðlar vísa í segist Sharp hafa brotið reglur um hagsmundaskráningu í gáleysi og að hann segði af sér til að koma í veg fyrir frekari truflun á starfi BBC. Hann ætlar að halda áfram í starfi þar til búið er að finna einhvern til að taka við starfinu. Skömmu eftir að Sharp var skipaður í stöðu stjórnarformanns BBC var opnuð rannsókn á skipuninni en sá sem stýrði henni þurfti fljótt að segja af sér vegna tengsla við Sharp. Þá tók við henni lögmaður sem heitir Adam Heppinstall KC. Hann lauk rannsókn sinni í morgun með því að birta skýrslu um rannsóknina. Þar kemur fram að Sharp hafi sagt Johnson í nóvember 2020 að hann vildi verða stjórnarformaður BBC. Áður en viðtöl voru tekin við umsækjendur um stöðuna sagði Sharp einnig við Johnson að hann ætlaði að kynna hann fyrir einhverjum sem gæti aðstoðað forsætisráðherrann varðandi fjárhagsmál hans. Þetta var ekki tilkynnt til yfirvalda er Sharp sótti um stöðuna.
Bretland Fjölmiðlar Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Fleiri fréttir Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Sjá meira