Samferða með Cintamani byrjar í maí Cintamani 20. apríl 2023 09:11 Gönguhópurinn Samferða með Cintamani var settur á fót í september 2022. Hér má sjá hluta hópsins á toppi Úlfarsfells síðasta haust. Í maí verður gönguhópurinn Samferða með Cintamani virkjaður á ný en hópurinn stefnir á göngur upp á Úlfarsfell á miðvikudögum í maí.
Sem fyrr eru það Inga Hrönn Sveinsdóttir og Hafrún Dögg Hilmarsdóttir sem leiða göngurnar. „Markmiðið með þessum göngum er að hvetja fólk til að kynnist nýjum göngufélögum, að koma sér í göngugírinn, að kynnast nýjum leiðum á Úlfarsfelli og njóti náttúrunnar og útivistar,“ segja Inga Hrönn og Hafrún Dögg. Þær þekkja báðar að hafa keyrt sig út á líkama og sál og hafa nýtt fjallgöngur og náttúruna sem hjálpartól til hvíldar, til að ná í orku og vera í góðu jafnvægi á hverjum degi. Inga Hrönn Sveinsdóttir (t.v.) og Hafrún Dögg Hilmarsdóttir leiða göngur hópsins Samferða með Cintamani. „Í útivist er hægt að flétta saman svo marga þætti sem við mannfólkið höfum þörf fyrir, t.d. líkamlega hreyfingu, félagsskap við aðra, að njóta útiveru og upplifa þetta stórkostlega land sem við eigum,“ segir Inga Hrönn. „Í fjallgöngum sér maður alltaf eitthvað nýtt og það er svo endurnærandi að leyfa sér að ganga um náttúruna í algjörri núvitund, leyfa streitunni að leka út og finna svo gleðiáhrifin eftir að göngu lýkur. Það er er ekki hægt að kaupa það út í búð.“ Hafrún Dögg tekur undir að útivera og náttúran geri manni svo gott, bæði andlega og líkamlega. „Fyrir mér snýst þetta um félagsskapinn og gleðina sem fylgir honum. Ég hef eignast vini fyrir lífstíð í gegnum göngurnar og oft er meira tilhlökkunarefni að hitta fólkið heldur en áfangastaðurinn sem við erum að stefna á þann daginn. Fyrir það er ég ótrúlega þakklát.“ Ekkert kostar að taka þátt og gönguhópurinn er fyrir fólk á öllum aldri, óháð getu og fyrri reynslu. Hægt er að skrá sig í einstaka göngur og í hópinn sjálfan á Facebook. Úlfarsfell býður upp á ótal skemmtilegar gönguleiðir. Frábær hvatning til að koma sér af stað Gönguhópurinn Samferða með Cintamani var settur á fót í september 2022 og gekk vonum framar að þeirra sögn. „Þessi hópur er frábær hvatning til að koma sér af stað, fyrir þá sem hafa kannski lengi langað að prófa fjallgöngur en líka fyrir þá sem hafa stundað göngur áður og eru kannski í lægð og þurfa sparkið,“ segir Hafrún Dögg. „Hér er engin pressa, þú ert ekki að skuldbinda þig í margar göngur og setja pening í það heldur geturðu bara mætt og prófað og ef þetta er fyrir þig, þá eru þrjár göngur í viðbót.“ Inga Hrönn segir það líka vera sérstaka tilfinningu að klára verkefni eins og að ná á toppinn og gera það um leið í góðum félagsskap. „Það er eitt að sigra sjálfan sig og tindinn, en eitthvað annað að toppa í félagsskap góðs fólks.“ Einnig séu það forréttindi að hafa frábæra útivistarheiminn Úlfarsfell í alfaraleið og því gagnlegt að þekkja fleiri en eina leið til þess að gera útivistina þar fjölbreyttari. „Svo held ég að það séu margir sem láta það stoppa sig að fara ein eða einn í fjallgöngu og því er þetta tilvalið tækifæri til að kynnast nýjum göngufélögum og eða draga einhvern með sér til að vera „samferða“.“ Það er fátt betra en gott grill eftir góða fjallgöngu. Byrjað á kynningarkvöldi hjá Cintamani Áður en fyrsta gangan fer af stað verður haldið kynningarkvöld miðvikudaginn 3. maí í Cintamani, Austurhrauni 3 í Garðabæ. „Þar ætlum við að fara yfir hvers konar fatnað og búnað er gott að vera með í fjallgöngum. Stór hluti af því að líða vel og njóta þess að vera úti og hreyfa sig er að vera með réttan útbúnað. Okkur fannst því rétt að hefja nýtt tímabil með að miðla þessum upplýsingum strax auk þess sem Cintamani ætlar að bjóða upp á 30% afslátt af öllum vörum þetta kvöld. Fyrsta miðvikudagsgangan hefst 10. maí og lokagangan er 31. maí.“
Heilsa Fjallamennska Mest lesið Dóri DNA og Magnea greiddu 126 milljónir fyrir einbýli í Skerjafirði Lífið Hafði ekki hugmynd um að einstakt hjól sitt væri týnt Lífið Segir föður sinn hafa verið við hestaheilsu Lífið Fengu aðstoð frá heimamanni: „Þannig að við séum ekki eins og hauslausar hænur“ Lífið „Frelsi til að gera allt sem þig langar til“ Tónlist Einföld ráð fyrir glæsilegra heimili Lífið Bjössi og Dísa skáluðu í nýja húsinu Lífið Var farin að fá kvíðaköst þegar dóttirin bað um að fara í göngutúra Lífið Lada Sport okkar tíma Lífið samstarf Gene Hackman og eiginkona hans fundust látin Lífið Fleiri fréttir Lada Sport okkar tíma Skráning hafin í Íslandsmeistaramótið í Ólsen ólsen Frumsýning nálgast og Minecraft og Oreo bregða á leik Eldabuskan græjar þriðju vaktina Wok to Walk opnar þrjá staði þar sem áður var Wok On Konudagsleikur - taktu þátt í skemmtilegri hefð Sýning sem breytir upplifun okkar á heiminum „Við ætlum okkur að finna fyndnasta hlátur Íslands“ Wolt og Blush með ástföngnum í liði á Valentínusardaginn „Við höfum það fyrir sið að faðmast í að lágmarki sjö sekúndur á hverjum morgni“ Almenningur eigi rétt á frjálsri för um óræktað land Óþægindi frá álagsmeiðslum minnkuð til muna með tilkomu Nutrilenk Stefnan sett á Ólympíuleikana 2028 „Í þessu jarðneska lífsbraski er G-vítamínið bráðnauðsynlegt“ Finnur þú fyrir uppþembu eða óþægindum eftir mat? „Mögulega besti tengiltvinnbíl sem framleiddur hefur verið“ Gerðu frábær kaup á húsgagnadögum JYSK NIVEA kynnir fyrstu hreinsivöruna með 5% serum Sjá meira