Mikilvægur sigur hjá Magdeburg í toppbaráttunni Smári Jökull Jónsson skrifar 6. apríl 2023 18:45 Gísli Þorgeir og félagar eiga í harðri baráttu um þýska meistaratitilinn en liðið varð meistari á síðustu leiktíð. Vísir/Getty Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði tvö mörk fyrir Magdeburg í sigri liðsins gegn Bergischer í þýsku úrvalsdeildinni í handknattleik í dag. Magdeburg á í harðri baráttu um þýska meistaratitilinn.
Magdeburg mætti Bergischer á útivelli í dag og það voru heimamenn sem leiddu með einu marki í hálfleik, staðan þá 17-16 Bergischer í vil. Í síðari hálfleik tók hins vegar Magdeburg völdin. Liðið náði frumkvæðinu strax í upphafi og komst þremur mörkum yfir í stöðunni 24-21 þegar tíu mínútur voru liðnar. Magdeburg komst mest fjórum mörkum yfir og hélt forystunni allt til enda. Lokatölur 38-34 og Magdeburg nú jafnt Kiel að stigum í 2.-3. sæti en Kiel á leik til góða. Kiel og Magdeburg mætast í stórleik á páskadag. Gísli Þorgeir skoraði tvö mörk úr þremur skotum í dag en Kay Smits átti stórleik fyrir Magdeburg og skoraði fjórtán mörk úr fimmtán skotum. Fusche Berlin er efst í deildinni, einu stigi á undan Kiel og Magdeburg, en Berlínarrefirnir unnu góðan útisigur á Hannover-Burgdorf í dag í fyrsta heimatapi Hannover-Burgdorf á þessu almanaksári. Fusche Berlin leiddi 18-15 í hálfleik og en leikurinn var afar spennandi undir lokin. Fusche Berlin nýtti sínar lokasóknir vel á meðan Hannover-Burgdorf klikkaði í dauðafærum. Lokatölur 33-32 og Berlin lyftir sér þar með í efsta sætið, um stundarsakir að minnsta kosti. Rúnar Sigtryggsson og lærisveinar hans í Leipzig töpuðu á útivelli gegn Flensburg. Lokatölur þar 30-27 og Leipzig því áfram í níunda sæti deildarinnar. Viggó Kristjánsson er fjarri góðu gamni hjá Leipzig vegna meiðsla.
Þýski handboltinn Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Finnur til með Arnari Handbolti Sindri áfram í sextán liða úrslit Körfubolti Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira