Leeds lyfti sér upp úr fallsæti | Aston Villa sótti sigur gegn Leicester Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 4. apríl 2023 20:45 Leeds vann mikilvægan sigur í kvöld. Richard Sellers/Sportsphoto/Allstar via Getty Images Þremur af fjórum leikjum kvöldsins í senku úrvalsdeildinni í knattspyrnu er nú lokið. Leeds vann afar mikilvægan 2-1 sigur gegn nýliðunum Nottingham Forest og Aston Villa sótti 2-1 útisigur gegn Leicester.
Það voru þeir Jack Harrison og Luis Sinisterra sem skoruðu mörkin fyrir Leeds í kvöld eftir að Orel Mangala hafði komið nýliðunum yfir snemma leiks. Fallbaráttan í ensku úrvalsdeildinni er gríðarlega hörð þetta tímabilið og Leeds sem sat í fallsæti fyrir leik kvöldsins lyfti sér upp í 13. sæti deildarinnar með sigrinum. Leeds er nú með 29 stig eftir jafn marga leiki, aðeins tveimur stigum meira en Nottingham Forest sem situr í 17. sæti. Þá var það Bertrand Traore sem reyndist hetja Aston Villa er liðið heimsótti Leicester á sama tíma. Traore skoraði sigurmark leiksins á 87. mínútu, en heimamenn í Leicester þurftu að leika manni færri seinustu tuttugu mínúturnar eftir að Kiernan Dewsbury-Hall fékk að líta sitt annað gula spjald á stuttum tíma. Aston Villa situr nú í sjöunda sæti deildarinnar með 44 stig og liðið gæti þess vegna farið að blanda sér í baráttu um Evrópusæti. Leicester situr hins vegar í næst neðsta sæti deildarinnar með 25 stig. Að lokum vann Brighton góðan 2-0 útisigur gegn Bournemouth þar sem Evan Ferguson og Julio Cesar Enciso skoruðu mörkin fyrir gestina.
Enski boltinn Mest lesið „Andlitið á mér var afmyndað“ Fótbolti Stálheppinn að vera á lífi og gæti snúið aftur með Aroni Fótbolti „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Favre opinberar baráttu við Parkinsons: „Fékk þúsundir heilahristinga“ Sport Óvænt alveg hættur Fótbolti Drukkinn undir stýri og enn í „lederhosen“ Fótbolti Harðneitar því að hafa rekið við í leik Sport Jake Paul keppir í 135 milljóna króna stuttbuxum gegn Tyson Sport Krefjast aðgerða vegna verðlaunahafa Hvít-Rússa Sport Mbappé úr leik næstu vikurnar Fótbolti Fleiri fréttir McTominay sagt að passa sig á ítalska matarræðinu Óttast ekki bikarþynnku: „Alvöru sigurvegarar finna sér hvatningu“ Mbappé úr leik næstu vikurnar Nablinn skellti sér á Kópavogsslaginn: „Leikurinn endar milljón tvö“ Stálheppinn að vera á lífi og gæti snúið aftur með Aroni Drukkinn undir stýri og enn í „lederhosen“ Óvænt alveg hættur „Ótrúlega heilbrigður og flottur hópur“ „Andlitið á mér var afmyndað“ Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Til í að taka skóna af hillunni fyrir Barcelona Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Madrídingar á tæpasta vaði Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Davíð Snær skoraði gegn toppliðinu Fram án þriggja gegn KR Guðmundur lagði upp í sigri á meisturunum Aron spilar með Joselu og Rodrigo Stefna stelpurnar okkar næst til Svíþjóðar og Danmerkur? Freyr og Kortrijk segja belgíska blaðið ljúga Aron Einar snýr aftur til Katar Stuðningsmenn gengu berserksgang og þjálfarinn fann fyrir því Segja Frey hafa logið að leikmönnum Haaland fær frí vegna jarðarfarar Eyddi Instagram eftir kynferðisleg skilaboð Mörkin úr Bestu: Sjáðu perlur Gylfa og Ísaks Hafi rætt við Rúnar og Börk og allir jafn undrandi Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Sjá meira