Freyr ætlar sér að þjálfa landsliðið síðar en ekkert heyrt frá KSÍ Sindri Sverrisson skrifar 4. apríl 2023 12:00 Erik Hamrén og Freyr Alexandersson tóku við íslenska karlalandsliðinu í fótbolta eftir HM 2018 og stýrðu því í rúm tvö ár. Freyr var aðstoðarþjálfari þann tíma en ætlar sér að verða aðalþjálfari liðsins á einhverjum tímapunkti. VÍSIR/VILHELM Freyr Alexandersson hefur ekki í hyggju að taka við íslenska karlalandsliðinu í fótbolta nú þegar starfið er laust eftir brottrekstur Arnars Þórs Viðarssonar.
Freyr er einn þeirra sem íslenskir fjölmiðlar hafa helst nefnt sem mögulega kandídata í starfið en hann er í dag þjálfari danska úrvalsdeildarfélagsins Lyngby og kveðst einbeita sér að því. Freyr var aðstoðarþjálfari Eriks Hamrén hjá karlalandsliðinu í tvö ár og áður leikgreinandi fyrir liðið og þjálfari kvennalandsliðsins. Áður en að þáverandi formaður KSÍ, Guðni Bergsson, valdi Arnar Þór Viðarsson til að taka við af Hamrén í lok árs 2020 hafði Freyr verið áhugasamur um að taka við starfinu og virtist ánægja hafa ríkt meðal leikmanna með hans störf. „Á einhverjum tímapunkti verð ég landsliðsþjálfari Íslands,“ segir Freyr í viðtali við danska miðilinn Bold.dk sem birtist í gær. „Í augnablikinu er þetta ekki eitthvað sem ég er að velta fyrir mér og ég hef ekkert heyrt frá íslenska sambandinu, og ég einbeiti mér að Lyngby,“ segir Freyr. „Ég starfaði lengi hjá sambandinu og þar er ég öllum hnútum kunnugur. Ég veit vel hvað þarf til og að ég myndi passa vel fyrir þau, og það vita þau líka vel. Þau hafa fjárfest í mér og gefið mér stór tækifæri og hlutverk í gegnum tíðina. Ég hef sagt þeim áður að ég muni snúa aftur einhvern tímann, og ég hlakka til þess dags, en sá dagur er ekki núna,“ segir Freyr.
Landslið karla í fótbolta Mest lesið Rúmlega helmingur hlaupara þurfti að hætta Sport Elísa meðal tíu efstu á EM í utanvegahlaupum Sport Gamlir draugar sóttu að Arnari í Japan Fótbolti Stórsigur hjá Belgum undir stjórn Elísabetar Fótbolti Fór á spítala og HM gæti verið í hættu Fótbolti Írarnir hans Heimis skemmdu kveðjupartý Kanada Fótbolti Byrjaði mótið með enga styrktaraðila og áhyggjur af hótelkostnaði Sport Borinn grátandi af velli viku fyrir HM Fótbolti Aron Einar heim í Þorpið? Íslenski boltinn Mistök Wembanyama leiddu til annars sigurs Knicks Sport Fleiri fréttir Slagsmál og tvö rauð spjöld hjá Portúgölum Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Vestri valtaði yfir Völsung Vonar að völlurinn verði ekki til vandræða Sigurður Egill með tvennu í sigri Þróttar Rauði djöfullinn Doku gerir varnarmenn gráhærða Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Landsliðsmenn Íran komnir með ferðaleyfi til Bandaríkjanna Borinn grátandi af velli viku fyrir HM Írarnir hans Heimis skemmdu kveðjupartý Kanada HM-minning: „Leyfið þeim að kyssast“ Gamlir draugar sóttu að Arnari í Japan „Við nutum þess í botn að vera þarna“ Fór á spítala og HM gæti verið í hættu Hefur ekki áhyggjur af slæmum velli Myndasyrpa: Sara Björk snýr heim Verður hjá Celtic eitt ár í viðbót Markaveisla í Lengjudeildinni Heimsmeistararnir lögðu Evrópumeistarana Stórsigur hjá Belgum undir stjórn Elísabetar „Markmiðinu er náð“ Uppgjörið: Úkraína - Ísland 0-1 | Stórt skref í átt að HM Aron Einar heim í Þorpið? Náðu miðum á HM án þess að borga fyrir þá Sara Björk tekur einnig að sér afreksþjálfun hjá Haukum Lið Íslands gegn Úkraínu: Thelma, Sandra og Emilía fremstar Furðu lostinn yfir brottrekstri Freys Höggin dynja á Þórsurum: Norðmaðurinn farinn heim Hjóluðu á HM frá Argentínu til Bandaríkjanna Sjá meira