Einkunnir úr sigrinum gegn Liechtenstein: Margir góðir en Aron og Jón Dagur báru af 26. mars 2023 18:10 Aron Einar Gunnarsson fagnar eftir að þrennan var komin í hús. Harry Langer/DeFodi Images via Getty Images Íslenska karlalandsliðið í fótbolta vann vægast sagt öruggan 7-0 sigur er liðið heimsótti Liechtenstein í Vaduz í undankeppni EM 2024 í dag. Eftir að hafa aðeins skorað tvö mörk í fyrri hálfleik opnuðust flóðgáttirnar í þeim síðari og margir leikmenn íslenska liðsins geta gengið sáttir frá borði.
Það var ljóst strax frá fyrstu mínútu að liðsmenn Liechtenstein höfðu engan áhuga á því að vera mikið með boltann í leik dagsins. Íslenska liðið sótti því án afláts og gátu andað léttar þegar skot bakvarðarins Davíðs Kristjáns Ólafssonar fór af varnarmanni og í netið strax á þriðju mínútu. Íslenska liðið skoraði þrjú mörk til viðbótar í fyrri hálfleik, en tvö þeirra voru dæmd af vegna brots í aðdraganda þeirra. Staðan var því aðeins 2-0 í hálfleik, en landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson skoraði þrennu fyrir liðið í síðari hálfleik áður en varamennirnir Andri Lúcas Guðjohnsen og Mikael Egill Ellertsson bættu sínu markinu hvor við á lokamínútunum. Þá má einnig minnast á frammistöðu Jóns Dags Þorsteinssonar í dag, en hann lagði upp þrjú mörk fyrir liðsfélaga sína, þar af tvö fyrir landsliðsfyrirliðann Aron Einar Gunnarsson. Hér fyrir neðan má sjá einkunnagjöf Íþróttadeildar Vísis eftir leik dagsins. Rúnar Alex Rúnarsson, markvörður 6 Lítið sem ekkert er líklega ekki nógu sterkt orðatiltæki til að lýsa því sem Rúnar Alex hafði að gera í markinu. Landsliðsmarkvörðurinn er líklega ekki að fara að skrá þennan leik niður sem einn af þeim skemmtilegustu sem hann hefur spilað, enda fékk hann varla að sjá boltann allan leikinn. Guðlaugur Victor Pálsson, hægri bakvörður 7 Var sýnilegur á hægri kantinum framan af leik og tók virkan þátt í sóknarleik liðsins lengst af. Engar flugeldasýningar, en skilaði sínu. Aron Einar Gunnarsson, miðvörður 9 Landsliðsfyrirliðinn skoraði sitt þriðja landsliðsmark og þriðja (löglega) mark Íslands í leiknum þegar hann stangaði hornspyrnu Jóns Dags í netið í upphafi fyrri hálfleiks. Skoraði svo aftur nánast alveg eins mark eftir hornspyrnu Jóns Dags á 67. mínútu og var þá búinn að tvöfalda heildarfjölda landsliðsmarka sinna áður en hann fullkomnaði þrennuna með marki úr vítaspyrnu rúmum stundarfjórðungi fyrir leikslok. Lagði einnig upp annað mark liðsins fyrir Hákon Arnar og getur gengið afar sáttur frá sínum 101. landsleik. Hörður Björgvin Magnússon, miðvörður 6 Rólegur dagur hjá Herði Björgvini í miðverðinum. Eins og allt íslenska liðið hafði hann lítið að gera varnarlega og þegar hinn miðvörðurinn í liðinu skorar þrennu og leggur upp eitt til viðbótar er algjör óþarfi fyrir Hörð að vera að leggja allt of mikið til sóknarlega. Davíð Kristján Ólafsson, vinstri bakvörður 7 Skoraði fyrsta mark Íslands strax á þriðju mínútu með skoti sem fór af varnarmanni. Heimamenn ætluðu sér greinilega að liggja aftarlega og treysta á þétta vörn og því var gríðarlega mikilvægt að koma inn marki snemma, þó vissulega hafi verið smá heppnisstimpill yfir því. Stefán Teitur Þórðarson, miðjumaður 7 Átti fínan leik á miðsvæðinu. Í rauninni fátt annað um leik hans að segja en eins og Guðlaugur Victor var þetta engin flugeldasýning hjá Stefáni, en fínasta dagsverk engu að síður. Jóhann Berg Guðmundsson, miðjumaður 6 Skilaði fínni vakt á miðsvæðinu og dreifði boltanum ágætlega fyrir framan þéttan varnarmúr heimamanna í fyrri hálfleik. Var tekinn af velli í hálfleik fyrir Mikael Neville Anderson. Hákon Arnar Haraldsson, miðjumaður 8 Kom íslenska liðinu í 2-0 með virkilega góðu marki stuttu fyrir hálfleikshléið eftir fyrirgjöf frá Aroni Einari Gunnarssyni. Tók boltann niður og snéri af sér varnarmann í einni snertingu áður en hnitmiðað skot fann netið. Skoraði svo aftur stuttu síðar eftir fallegt samspil, en markið dæmt af vegna brots eftir skoðun í VAR-skjánum góða. Arnór Sigurðsson, hægri kantmaður 7 Eins og margir sem tóku minni þátt í sóknarleik og mörkum íslenska liðsins var Arnór kannski ekki jafn sjáanlegur og aðrir. Skilaði dagsverkinu þó ágætlega áður en hann var tekinn af velli á 65. mínútu. Jón Dagur Þorsteinsson, vinstri kantmaður 8 Lagði upp fyrstu mörk Arons Einars Gunnarssonar með góðum hornspyrnum. Sama uppskrift í bæði skiptin, enda á ekki að laga eitthvað sem er ekki bilað. Fullkomnaði svo stoðsendingarþrennuna þegar hann lagði upp sjöunda mark liðsins fyrir Mikael Egil Ellertsson. Einn allra besti maður íslenska liðsins í dag. Alfreð Finnbogason, framherji 6 Nokkuð rólegur dagur hjá Framherja íslenska liðsins. Skoraði reyndar mark í fyrri hálfleik, en var dæmdur brotlegur í aðdragandanum. Varamenn: Mikael Neville Anderson, 6 - Kom inn fyrir Jóhann Berg Guðmundsson á 46. mínútu Leysti einn reynslumesta mann liðsins af hólmi í síðari hálfleik og sýndi í raun lítið eftir það. Allt í lagi dagur fyrir Mikael, en ekkert frábært. Alfons Sampsted, 6 - Kom inn fyrir Hörð Björgvin Magnússon á 64. mínútu Eins og maðurinn sem hann kom inn á fyrir hafði Alfons lítið að gera. Mikael Egill Ellertsson, 7 - Kom inn fyrir Arnór Sigurðsson á 64. mínútu Skoraði sjöunda mark Íslands á 87. mínútu. Hans fyrsta landsliðsmark og með því tryggði hann stærsta sigur Íslands í opinberum mótsleik. Andri Lúcas Guðjohnsen, 7 - Kom inn fyrir Alfreð Finnbogason á 64. mínútu Fiskaði vítið sem tryggði þrennuna fyrir landsliðsfyrirliðann áður en hann skoraði sjálfur sjötta mark liðsins stuttu fyrir leikslok. Fínasta innkoma. Ísak Bergmann Jóhannesson, 6 - Kom inn fyrir Aron Einar Gunnarsson á 75. mínútu Aron Einar Gunnarsson fékk heiðursskiptingu þegar þrennan var í húsi og Ísak Bergmann Jóhannesson leysti hann af hólmi. Fékk nokkuð stuttan tíma á vellinum og kom raunar aðeins við sögu þegar úrslitin voru löngu ráðin.
Landslið karla í fótbolta EM 2024 í Þýskalandi Tengdar fréttir Umfjöllun: Liechtenstein - Ísland 0-7 | Fyrirliðinn gerði þrennu í markasúpu Ísland svaraði fyrir tapið gegn Bosníu með 0-7 sigri gegn Liechtenstein. Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði Íslands, gerði þrennu. Davíð Kristján, Hákon Arnar og Mikael Egill skoruðu allir sitt fyrsta landsliðsmark. Umfjöllun og viðtöl væntanleg. 26. mars 2023 17:55 Mest lesið Aðeins sautján konur með betri tíma en Elísa í ógnarsterku utanvegahlaupi Sport Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Enski boltinn Ver umdeilda veggmynd sína af Ronnie O'Sullivan Sport Linda Líf gengur til liðs við nýliðana í enska boltanum Sport Sjáðu óverjandi mark Hákons gegn PSG Fótbolti Bjarni ræðir brottförina frá Val: „Erfitt að ná alvöru stöðugleika“ Íslenski boltinn Hákon skoraði glæsimark gegn PSG Fótbolti Valsmenn slógu í klárinn undir lokin Handbolti Dagskráin í dag: Enski og Bestu deildirnar í aðalhlutverki Sport Systurnar báðar með tvö mörk á Ásvöllum og KR upp í annað sætið Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest | Sækir Iraola fyrsta deildarsigurinn? Sjáðu óverjandi mark Hákons gegn PSG PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Bjarni ræðir brottförina frá Val: „Erfitt að ná alvöru stöðugleika“ Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Systurnar báðar með tvö mörk á Ásvöllum og KR upp í annað sætið Fylkir kláraði Gróttu undir lokin og Aron Snær með þrennu fyrir Þrótt Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Hákon skoraði glæsimark gegn PSG Bæjarar hófu titilvörnina með stórsigri Jón Dagur skoraði sitt fyrsta deildarmark fyrir Berlínarbúa Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Mun sýna leiki þýsku úrvalsdeildarinnar á YouTube-rás sinni Rafael Leão til Galatasaray Dregið í Sambandsdeild: Íslendingar mætast og spila við nýliðana frá Andorra Dregið í Evrópudeild: Orri mætir Palace, Bournemouth og Juventus Styðja við börn með krabbamein: Arnór í búningi Rice á fyrsta Treyjudeginum Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Forsetinn tjáir sig um niðurbrotinn Alvarez: „Þykir þetta mjög miður“ Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Elías og félagar flugu áfram Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Kristall skoraði þegar Brann komst áfram Róbert Frosti og Daníel Tristan á skotskónum Sjá meira
Umfjöllun: Liechtenstein - Ísland 0-7 | Fyrirliðinn gerði þrennu í markasúpu Ísland svaraði fyrir tapið gegn Bosníu með 0-7 sigri gegn Liechtenstein. Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði Íslands, gerði þrennu. Davíð Kristján, Hákon Arnar og Mikael Egill skoruðu allir sitt fyrsta landsliðsmark. Umfjöllun og viðtöl væntanleg. 26. mars 2023 17:55