Gísli Þorgeir og félagar völtuðu yfir lærisveina Guðjóns Vals Smári Jökull Jónsson skrifar 26. mars 2023 16:00 Gísli Þorgeir Kristjánsson var í sigurliði Magdeburg gegn Gummersbach í dag. Vísir/Getty Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði sjö mörk fyrir Magdeburg sem vann tólf marka sigur á Gummersbach í þýsku úrvalsdeildinni í handknattleik.
Magdeburg er í toppbaráttu þýsku deildarinnar en Gummersbach rétt fyrir neðan miðja deild og því var um erfiðan leik að ræða fyrir gestina. Heimaliðið var með frumkvæðið í fyrri hálfleik, leiddi 20-15 í hálfleik og hélt áfram að auka muninn eftir hlé. Magdeburg náði mest þrettán marka forskoti og sigur liðsins aldrei í hættu. Lokatölur 41-29 og tólf marka sigur heimamanna staðreynd. Gísli Þorgeir Kristjánsson átti flottan leik fyrir Magdeburg í dag. Hann skoraði sjö mörk úr tíu skotum og gaf þar að auki þrjár stoðsendingar. Elliði Snær Viðarsson skoraði þrjú mörk fyrir Gummersbach og Hákon Daði Styrmisson eitt. Elliði Snær Viðarsson skoraði þrjú mörk fyrir Gummersbach í tapinu gegn Magdeburg.Vísir/Getty Í Flensburg skoraði Teitur Örn Einarsson eitt mark fyrir heimamenn sem unnu 34-27 sigur á Lemgo. Teitur Örn nýtti sitt eina skot í leiknum en Flensburg leiddi 17-13 í hálfleik og vann sjö marka sigur að lokum. Elvar Örn Jónsson skoraði fimm mörk fyrir Melsungen sem gerði 26-26 jafntefli á útivelli gegn Hannover-Burgdorf. Elvar Örn átti sinn þátt í stigi Melsungen því hann minnkaði muninn í 26-25 einni mínútu fyrir leikslok áður en Timo Kastening jafnaði metin hálfir mínútu síðar. Arnar Freyr Arnarsson komst ekki á blað hjá Melsungen í leiknum.
Þýski handboltinn Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Finnur til með Arnari Handbolti Sindri áfram í sextán liða úrslit Körfubolti Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira