Árásarmaðurinn tvítugur og skaut á fólk af handahófi Atli Ísleifsson skrifar 24. mars 2023 08:15 Narsaq er að finna á suðvesturströnd Grænlands og telja íbúar um 1.500. Getty Lögregla á Grænlandi segir að árásarmaðurinn, sem særði fimm manns á þyrluflugvellinu í Narsaq á miðvikudaginn, hafi fyrst skotið á byggingar í bænum áður en hann hélt að þyrluflugvellinum þar sem hann skaut á fólk af handahófi.
Lögregla greindi frá þessu á stuttum blaðamannafundi í gær. Aðstoðarlögreglumaðurinn Lars Bjerregaard sagði að maðurinn, sem er tvítugur heimamaður, hafi hafið skothríð sína nokkru áður en hann hélt út á þyrluflugvöllinn. „Árásarmaðurinn byrjaði á því að skjóta á nokkrar byggingar í bænum og hélt svo út á þyrluflugvöllinn þar sem hann skaut að þyrlu sem var við það að lenda,“ segir Bjerregaard. Maðurinn var handtekinn skömmu eftir árásina og hefur lögregla farið fram á að hann verði úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald. Í frétt Sermitsiaq.AG segir lögregla að almenningur sé hvattur til að koma myndbandsupptökum og myndum sem gætu nýst við rannsóknina í hendur lögreglu. Bjerragaard segir að unnið sé að því hörðum höndum að kortleggja ferðir mannsins og atburðinn í heild sinni. Hann segir engin tengsl vera á milli árásarmannsins og þeirra sem særðust, en tveir fengu skot í sig og þrír til viðbótar flísar úr byssukúlum í sig. Enginn þeirra er þó í lífshættu.
Grænland Tengdar fréttir Fimm særðir eftir skotárás manns á Grænlandi Fimm eru særðir eftir að maður hóf skotárás við þyrluflugvöllinn í Narsaq á suðvesturströnd Grænlands í gær. 23. mars 2023 07:51 Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Fleiri fréttir Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Sjá meira
Fimm særðir eftir skotárás manns á Grænlandi Fimm eru særðir eftir að maður hóf skotárás við þyrluflugvöllinn í Narsaq á suðvesturströnd Grænlands í gær. 23. mars 2023 07:51