Grindavík náði í stig á Hlíðarenda og KR lagði ÍA Smári Jökull Jónsson skrifar 8. mars 2023 22:41 Kristján Flóki skoraði eitt marka KR í kvöld. Vísir/Hulda Margrét KR vann góðan endurkomusigur á ÍA þegar liðin mættust í Lengjubikarnum í kvöld. Þá gerði Lengjudeildarlið Grindavíkur góða ferð á Hlíðarenda og náðu í stig gegn sterku liði Vals.
Þeir eru löngu orðnir klassískir leikir KR og ÍA í knattspyrnunni og þó svo að leikurinn í kvöld sé ekki í Íslandsmóti eða bikarkeppni er alltaf mikið undir þegar þessi lið mætast á knattspyrnuvellinum. KR hefur verið að spila vel í Lengjubikarnum að undanförnu en ÍA er í uppbyggingu enda féll liðið í Lengjudeildina síðasta sumar. Það voru þó Skagamenn sem skoruðu fyrsta mark leiksins í kvöld. Framherjinn Viktor Jónsson kom þeim yfir á þriðju mínútu leiksins. KR var hins vegar búið að ná forystunni áður en fyrri hálfleikur var á enda. Fyrst skoraði Jóhannes Kristinn Bjarnason á 21.mínútu en hann hefur farið vel af stað með KR eftir að hafa gengið til liðs við Vesturbæinga frá Norrköping fyrir ekki svo löngu síðan. Á 45.mínútu kom Kristján Flóki Finnbogason KR síðan í 2-1 og þannig var staðan í hálfleik. Í síðari hálfleik bætti KR við einu marki. Freyr Þrastarson skoraði á 85.mínútu og tryggði KR 3-1 sigur. KR lýkur keppni í riðlinum í öðru sæti með tólf stig, einu stigi á eftir Val. Fyrir leikinn í kvöld var Grindavík án stiga eftir þrjá leiki á meðan Valsmenn höfðu unnið sína fjóra leiki. Valsmönnum tókst hins vegar ekki að skora í kvöld, Grindvíkingar héldu markinu hreinu og náðu í sitt fyrsta stig í Lengjubikarnum. Lokatölur 0-0 og stigið gott veganesti fyrir Grindvíkinga í undirbúningi þeirra fyrir Íslandsmótið. Valur endar riðilinn með 13 stig, einu stigi á undan KR. Valsmenn fara því áfram í undanúrslit en KR situr eftir.
Mest lesið „Andlitið á mér var afmyndað“ Fótbolti Stálheppinn að vera á lífi og gæti snúið aftur með Aroni Fótbolti „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Favre opinberar baráttu við Parkinsons: „Fékk þúsundir heilahristinga“ Sport Óvænt alveg hættur Fótbolti Drukkinn undir stýri og enn í „lederhosen“ Fótbolti Harðneitar því að hafa rekið við í leik Sport Jake Paul keppir í 135 milljóna króna stuttbuxum gegn Tyson Sport Krefjast aðgerða vegna verðlaunahafa Hvít-Rússa Sport Mbappé úr leik næstu vikurnar Fótbolti Fleiri fréttir McTominay sagt að passa sig á ítalska matarræðinu Óttast ekki bikarþynnku: „Alvöru sigurvegarar finna sér hvatningu“ Mbappé úr leik næstu vikurnar Nablinn skellti sér á Kópavogsslaginn: „Leikurinn endar milljón tvö“ Stálheppinn að vera á lífi og gæti snúið aftur með Aroni Drukkinn undir stýri og enn í „lederhosen“ Óvænt alveg hættur „Ótrúlega heilbrigður og flottur hópur“ „Andlitið á mér var afmyndað“ Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Til í að taka skóna af hillunni fyrir Barcelona Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Madrídingar á tæpasta vaði Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Davíð Snær skoraði gegn toppliðinu Fram án þriggja gegn KR Guðmundur lagði upp í sigri á meisturunum Aron spilar með Joselu og Rodrigo Stefna stelpurnar okkar næst til Svíþjóðar og Danmerkur? Freyr og Kortrijk segja belgíska blaðið ljúga Aron Einar snýr aftur til Katar Stuðningsmenn gengu berserksgang og þjálfarinn fann fyrir því Segja Frey hafa logið að leikmönnum Haaland fær frí vegna jarðarfarar Eyddi Instagram eftir kynferðisleg skilaboð Mörkin úr Bestu: Sjáðu perlur Gylfa og Ísaks Hafi rætt við Rúnar og Börk og allir jafn undrandi Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Sjá meira