Kenndu grænmetisætu í endurhæfingu að grilla nautalund Snorri Másson skrifar 2. mars 2023 09:00 Í Íslandi í dag var farið með Jakob Birgisson grínista, grænmetisætu til sex ára, í eins konar endurhæfingu í kjötneyslu hjá einhverjum fremstu grill- og matreiðslumeisturum landsins, sjónvarpskokknum Sigurði Hall og grillmeistaranum Óskari Finnssyni.
Endurupptaka Jakobs á kjötneyslu er ekki einangrað atvik heldur er hann á meðal nokkurs fjölda grænmetisæta eða grænkera sem nú um mundir virðast hverfa í talsverðum mæli aftur til fyrri hátta, að borða kjöt. „Manni fallast eiginlega bara hendur að vera hérna með þessum mönnum, á milli tveggja turna. Haldið þið að ég ráði við þetta?“ spyr Jakob. Verkefnið er að grilla hina fullkomnu nautasteik og þá eru að sögn reynsluboltanna nokkur atriði sem verða að vera á hreinu. Hverju er fólk að klúðra? Óskar: „Helstu mistökin eru að fólk er að fikta of mikið í kjötinu. Það er að snúa því. Hreyfa það. En það verður að leyfa því að eldast.“ Sigurður bætir því við að þegar kjötið hefur eldast þurfi að hvíla það í nokkrar mínútur: „Ef það hvílist ekki og þú byrjar strax að skera í það þá rennur safinn út um allt.“ Jakobi Birgissyni grænmetisætu í endurhæfingu sem kjötætu var kennd sú mæta list að grilla nautalund í Íslandi í dag. Lærimeistarar voru engir aðrir en Óskar Finnsson og Siggi Hall.Vísir Fiskar grænmeti Jakob spyr kokkana hvernig þetta horfi við þeim út frá heilsufarslegu sjónarhorni, hvort hollara sé að sleppa kjötinu. Svo er ekki að sögn Sigurðar: „Þá ertu alltaf smá vannærður. Það vantar alltaf aðeins eitthvað í þig. Alltaf hvítur í framan…“ Jakob: „Eins og konan mín segir að ég sé alltaf þreyttur. Gæti það skrifast á þetta?“ Kokkarnir: „Gæti? Þetta gerir það.“ Siggi Hall: „Er fiskur dýr eða grænmeti?“Vísir Að auki halda þeir því fram að nauta- og lambakjöt, úr dýrum sem alin eru á hreinni og grænni fæðu, sé í raun í einhverjum skilningi ekki svo langt frá því að vera bara í raun grænmeti í einhverjum skilningi. Að ónefndum fiskunum, en Sigurður spyr þeirrar áleitnu spurningar: „Er fiskur dýr eða grænmeti?“ Food and Fun hafið Bent var á það í lok innslagsins að með matreiðslu sinni á nautasteikinni undir leiðsögn Óskars og Sigurðar hafi Jakob í raun verið að hringja inn Food and Fun-hátíðina í ár, sem hófst í gær, miðvikudag. Sigurður Hall, sem hefur haft veg og vanda af hátíðinni í gegnum árin, segir hátíðina í ár nokkuð frábrugðna því sem var fyrir faraldur, þar sem fjöldi staða sem þá tóku þátt eru ekki lengur í rekstri. Það er því talsverð endurnýjun. Óskar, sem einnig er tengdur hátíðinni, segir: „Það er rosa breiður hópur af matreiðslumönnum á leiðinni; snillingar af Michelin-stöðum og svo af alls konar öðrum stöðum. Bara fara inn á Dineout, þá sérðu hvaða kokkar eru á staðnum. Hvar liggur áhugi þinn á matargerð?“ Útkoma endurmenntunarinnar. Food and Fun var vígt á Finnsson með látlausum hætti.Vísir
Matur Ísland í dag Tengdar fréttir Lagði til frumlega leið til að draga úr upplýsingaóreiðu Jakob Birgisson grínisti lagði orð í belg í Íslandi í dag á miðvikudaginn var um þau alvarlegu tíðindi að verðbólguvæntingar fari þrátt fyrir alla viðleitni Seðlabankans enn versnandi. 28. febrúar 2023 08:26 „Heyrirðu hvað þetta er ruglað? Hvað ertu að gera með börn í útlöndum?“ Jakob Birgisson grínisti var álitsgjafi Íslands í dag að nýju á miðvikudag, þar sem fjallað var um þau óljósu tilmæli frá stofnunum samfélagsins til almennings, að forðast utanlandsferðir. Slíkar ráðstafanir eigi að styrkja gengi krónunnar. 21. febrúar 2023 09:16 Mest lesið Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björnsdóttur Lífið Myndaveisla: Tárin streymdu þegar Áslaug kvaddi Lífið Matthildur Margrét og Sigurður Hrannar eiga von á barni Lífið Uppgötvuð á götum Barcelona Lífið Áslaug kvaddi í hvítu útskriftardragtinni Tíska og hönnun Ágústa Eva setur 170 milljónir á einbýlishúsið í Hveragerði Lífið 50+: Erfiða tengdamamman og sonurinn á milli Áskorun Valin versti ljósmyndari heims Lífið Manst þú eftir þessum sígildu sumarleikjum? Lífið Hvað veistu um... Snæfellsnes? Lífið Fleiri fréttir Uppgötvuð á götum Barcelona Hvað veistu um... Snæfellsnes? Leikritið eigi sérstaklega erindi nú Manst þú eftir þessum sígildu sumarleikjum? Matthildur Margrét og Sigurður Hrannar eiga von á barni „Við notum þetta orð yfir sundið, kaffið, og ástina okkar“ Getur hermt fullkomlega eftir tugum fugla Myndaveisla: Tárin streymdu þegar Áslaug kvaddi Valin versti ljósmyndari heims Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björnsdóttur Vegglistaverkið í Vesturbæ stækkað Stjörnufans í eins árs afmæli „Rosaleg skömm fyrir mig á sínum tíma“ Ágústa Eva setur 170 milljónir á einbýlishúsið í Hveragerði Mætti á 95 ára Chevrolet og tók sæti á þingi Léttist um átján kíló á ógnarhraða með hjálp gervigreindar Bar upp bónorðið á Bæjarins beztu Krefst þess að Applegate haldi sig fjarri henni Allir héldu Michelin-stjörnunni Stjörnukokkar landsins gætu fengið fleiri Michelin-stjörnur Halla T og Björk í stuði á Listahátíð Efnir til styrktarlottós: Hefur glímt við krabbamein nánast alla ævi „Heima beið hvolpur sem ég gæti alveg vanist“ Stóð uppi sem ófrísk ekkja 29 ára gömul Stjörnulífið: Þakklátur „LadyBoy ársins“ Dua Lipa gekk að eiga sinn heittelskaða Áslaug býður í partý Matt Brown er látinn „Sögulegt augnablik“ fyrir þýska klúbbamenningu Krakkatía vikunnar: Kóngur, kýr og mávagarg Sjá meira
Lagði til frumlega leið til að draga úr upplýsingaóreiðu Jakob Birgisson grínisti lagði orð í belg í Íslandi í dag á miðvikudaginn var um þau alvarlegu tíðindi að verðbólguvæntingar fari þrátt fyrir alla viðleitni Seðlabankans enn versnandi. 28. febrúar 2023 08:26
„Heyrirðu hvað þetta er ruglað? Hvað ertu að gera með börn í útlöndum?“ Jakob Birgisson grínisti var álitsgjafi Íslands í dag að nýju á miðvikudag, þar sem fjallað var um þau óljósu tilmæli frá stofnunum samfélagsins til almennings, að forðast utanlandsferðir. Slíkar ráðstafanir eigi að styrkja gengi krónunnar. 21. febrúar 2023 09:16