Þrettán íslensk mörk er Leipzig vann Íslendingaslaginn með minnsta mun Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 16. febrúar 2023 19:51 Viggó Kristjánsson skoraði sex mörk fyrir Leipzig í kvöld. Hendrik Schmidt/picture alliance via Getty Images Viggó Kristjánsson var næst markahæsti leikmaður Leipzig með sex mörk er liðið vann nauman eins marks sigur gegn Íslendingaliði MT Melsungen í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld, 28-29.
Leipzig, undir stjórn Rúnars Sigtryggssonar, hafði tapað seinustu tveimur deildarleikjum sínum í röð, en liðið hafði farið virkilega vel af stað eftir að Rúnar tók við stjórnartaumunum fyrr í vetur. Það voru einmitt gestirnir í Leipzig sem höfðu yfirhöndina í fyrri hálfleik þar sem liðið náði mest fjögurra marka forskoti. Viggó og félagar héldu heimamönnum í hæfilegri fjarlægð út hálfleikinn og staðan var 15-18 þegar gengið var til búningsherbergja. Heimamenn í Melsungen fóru þó vel af stað í síðari hálfleik og náðu fljótt að snúa leiknum sér í hag. Melsungen náði tveggja marka forskoti um miðbik seinni hálfleiks og hafði enn forystuna í stöðunni 27-26. Þá skoruðu gestirnir hins vegar þrjú mörk í röð og gerðu út um leikinn. Niðurstaðan varð því eins marks sigur Leipzig, 28-29. Eins og áður segir skoraði Viggó Kristjánsson sex mörk fyrir Leipzig í kvöld, en Arnar Freyr Arnarsson skoraði fimm mörk fyrir Melsungen og Elvar Örn Jónsson tvö. Leipzig situr nú í ellefta sæti deildarinnar með 18 stig eftir 19 leiki, tveimur stigum minna en Melsungen sem situr í sjöunda sæti, en hefur leikið einum leik meira.
Þýski handboltinn Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Finnur til með Arnari Handbolti Sindri áfram í sextán liða úrslit Körfubolti Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira