Gísli Þorgeir Kristjánsson veifar glaður upp í stúku en Guðmundur Guðmundsson þjálfari er meira upptekinn af tímanum.VÍSIR/VILHELM
Strákarnir okkar brostu mikið í Gautaborg í gær eins og sjá má í myndasyrpu úr smiðju Vilhelms Gunnarssonar. Hann var að sjálfsögðu á staðnum þegar Ísland vann öruggan sigur gegn Grænhöfðaeyjum á HM í handbolta.
Sigurinn hjálpar Íslandi í átt að 8-liða úrslitum en eins og sjá má á aðalmyndinni hér að ofan voru menn eflaust strax í gærkvöld, eða alla vega Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari, farnir að telja niður klukkutímana fram að stórleiknum við Svía sem fram fer annað kvöld.
Leikurinn við Grænhöfðaeyjar var fyrsti leikur Íslands eftir að liðið fór frá Kristianstad til Gautaborgar en þar mun liðið einnig spila við Svía á morgun og svo Brasilíu á sunnudag, áður en í ljós kemur hvort að liðið fær að spila í 8-liða úrslitunum í Stokkhólmi.
Hér að neðan má sjá myndir frá leiknum við Grænhöfðaeyjar í gær.
Björgvin Páll Gústavsson tilbúinn að hlaupa aftur í markið í skiptum fyrir sóknarmann.VÍSIR/VILHELMÞað tjáir ekki að deila við dómarann en Bjarki Már Elísson og Janus Daði Smárason ræða samt við hann.VÍSIR/VILHELMSigvaldi Guðjónsson spilaði seinni hálfleik og skoraði sex mörk.VÍSIR/VILHELMÍslensku stuðningsmennirnir gátu sungið og trallað allan leikinn enda sigurinn aldrei í hættu.VÍSIR/VILHELMGuðmundur Guðmundsson með skilaboð til leikmanna innan vallar en Óðinn Þór Ríkharðsson er sposkur á svip.VÍSIR/VILHELMÓmar Ingi Magnússon og Óðinn Þór Ríkharðsson sáu eða heyrðu eitthvað fyndið.VÍSIR/VILHELMViktor Gísli Hallgrímsson veifar upp í stúku.VÍSIR/VILHELMJanus Daði Smárason skoraði fimm mörk í leiknum í gær.VÍSIR/VILHELMArnar Freyr Arnarsson og Björgvin Páll Gústavsson glaðbeittir eftir sigurinn.VÍSIR/VILHELMStrákarnir okkar fögnuðu sigri í fyrsta leik sínum í Gautaborg.VÍSIR/VILHELMViktor Gísli Hallgrímsson til varnar í vítakasti. Markverðir Íslands náðu sér ekki á strik í leiknum.VÍSIR/VILHELMÓðinn Þór Ríkharðsson á flugi inn úr horninu. Hann lék fyrri hálfleikinn og skoraði fimm mörk.VÍSIR/VILHELMBjörgvin Páll Gústavsson og Elvar Ásgeirsson ánægðir á svip.VÍSIR/VILHELMArnar Freyr Arnarsson berst um boltann við Paulo Moreno sem virðist hafa náð hörkutaki á boltanum.VÍSIR/VILHELMFyrirliðinn Aron Pálmarsson skokkar inn á völlinn.VÍSIR/VILHELMGísli Þorgeir Kristjánsson í loftinu. Hann skoraði þrjú mörk og gaf tvær stoðsendingar.VÍSIR/VILHELMBjarki Már Elísson brosir breitt og vonandi verður það einnig niðurstaðan eftir föstudagsleikinn stóra við Svía.VÍSIR/VILHELMGísli Þorgeir Kristjánsson þarf oft að eiga við það að menn beiti öllum brögðum til að stöðva hann.VÍSIR/VILHELMAron Pálmarsson og félagar höfðu ástæðu til að gleðjast í gær.VÍSIR/VILHELM
Íslenska liðið gaf tóninn í byrjum leiks og komst fljótlega 4-1 yfir. Leikmenn Grænhöfðaeyja voru ekki alveg í takt og réðu illa við hraðann í leiknum. Þeir höfðu aðeins gert eitt mark eftir sjö mínútur.
Ísland vann tíu marka sigur á Grænhöfðaeyjum í fyrsta leik liðanna í milliriðli á HM í handbolta, lokatölur 40-30 Íslandi í vil. Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari, rúllaði vel á liði sínu í dag og fengu allir leikmenn liðsins mínútur. Það má þó segja að leikmenn Grænhöfðaeyja hafi stolið senunni á Twitter.
Íslenska handboltalandsliðið vann tíu marka stórsigur á Grænhöfðaeyjum, 40-30, í fyrsta leik sínum í milliriðli á heimsmeistaramótinu í handbolta í Svíþjóð og Póllandi.