Sport

Dagskráin: PGA, NFL, NBA og fleira

Atli Arason skrifar
Tom Brady og félagar í Buccaneers mæta 49ers í NFL deildinni í dag.
Tom Brady og félagar í Buccaneers mæta 49ers í NFL deildinni í dag. Kevin Sabitus/Getty Images

Það eru 8 beinar útsendingar á sport rásum Stöð 2 Sport þar sem bandarísku íþróttirnar eru áberandi.

Stöð 2 Sport

Klukkan 20.00 er Seinni bylgjan á dagskrá þar sem farið verður yfir allt það helsta í Olís-deild kvenna.

Stöð 2 Sport 2

Alfred Dunhill Championship á DP World Tour hefst stundvísislega klukkan 09.00.

Klukkan 18.00 mætast New York Giants og Philadelphia Eagles í NFL deildinni.

Leikur San Francisco 49ers og Tampa Bay Buccaneers tekur við klukkan 21.20, einnig í NFL deildinni.

Stöð 2 Sport 3

Klukkan 17.20 hefst viðureign Gran Canaria og Cazoo Baskonia í spænsku ACB deildinni í körfubolta.

Leikur New Orleans Pelicans og Phoenix Suns í NBA deildinni hefst klukkan 20.30.

Stöð 2 Sport 4  

QBE Shootout á PGA Tour er á dagskrá klukkan 18.00.

Stöð 2 eSport

Sandkassinn verður í beinu streymi klukkan 21.00.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×