Aboubakar tryggði Kamerún óvæntan sigur og sá rautt eftir fagnaðarlætin Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 2. desember 2022 21:05 Vincent Aboubakar fagnar marki sínu í kvöld. Tom Weller/Getty Images Tilfinningarnar báru Vincent Aboubakar, framherji Kamerún, ofurliði þegar hann skoraði það sem reyndist sigurmark Kamerún gegn Brasilíu í lokaleik liðanna í riðlakeppni HM í fótbolta. Hann reif sig úr að ofan og fékk sitt annað gula spjald í kjölfarið. Brasilía hafði þegar tryggt sér sæti í 16-liða úrslitum og mætti með mikið breytt lið til leiks. Á sama tíma þurfti Kamerún að vinna ásamt því að treysta á hagstæð úrslit í leik Sviss og Serbíu. Leikurinn var ekki mikið fyrir augað framan af og stefndi allt í markalaust jafntefli. Það er þangað til téður Vincent Aboubakar stangaði fyrirgjöf Jerome Ngom Mbekeli í netið á 92. mínútu leiksins. A story in four parts. This #FIFAWorldCup Group Stage is providing drama right until the very end! pic.twitter.com/v7iviclvYH— FIFA World Cup (@FIFAWorldCup) December 2, 2022 Aboubakar gjörsamlega missti sig í fagnaðarlátunum. segja má að hann hafi fagnað líkt og Kamerún væri komið áfram. Það var þó ekki raunin, Aboubakar fékk sitt annað gula spjald í kjölfarið og þrátt fyrir 1-0 sigur endaði Kamerún í 3. sæti með 4 stig á meðan Brasilía vann riðilinn með 6 stig. Brasilía mætir Suður-Kóreu í 16-liða úrslitum. HM 2022 í Katar Fótbolti
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti