Hetja Þjóðverja fékk tönn inn í sig eins og Jónatan Sindri Sverrisson skrifar 28. nóvember 2022 13:30 Niclas Fuellkrug faðmaður af Hansi Flick eftir að hafa séð til þess að Þýskaland ætti enn fína möguleika á að komast í 16-liða úrslit á HM. EPA-EFE/Friedemann Vogel Niclas Füllkrug er á allra vörum í Þýskalandi eftir að hafa haldið góðu lífi í HM-þátttöku Þjóðverja með jöfnunarmarki sínu gegn Spáni í Katar í gær.
Füllkrug kom til bjargar seint í leiknum þegar hann jafnaði metin í 1-1 með firnaföstu skoti, eftir að hafa komið inn á sem varamaður. Þessi 29 ára framherji Werder Bremen hafði fyrir ári síðan ekki spilað eina einustu mínútu fyrir A-landslið Þjóðverja en fékk hringingu frá Hansi Flick eftir að hafa skorað 19 mörk og gefið átta stoðsendingar á síðustu leiktíð. Í vetur hefur hann svo skorað 10 mörk í aðeins 14 deildarleikjum í Þýskalandi. Füllkrug hefur verið kallaður „Lücke“, sem þýðir „bil“ eða „skarð“ og vísar til bilsins á milli framtanna hans. Annað tanntengt mál tengist framherjanum því þegar hann var ungur að hefja ferilinn hjá Werder Bremen lenti hann í því á æfingu að tönn liðsfélaga grófst inn í enni hans eftir harðan árekstur. Atvikið minnir á það þegar Jónatan Magnússon, sem í dag er þjálfari handboltaliðs KA, fékk tönn Tjörva Þorgeirssonar inn í nefið í leik gegn Haukum í hreinum úrslitaleik á Íslandsmótinu í handbolta 2001. Tönn Tjörva fannst reyndar ekki í Jónatani fyrr en mörgum mánuðum seinna en Füllkrug var mun heppnari. „Þetta var klikkun,“ sagði Füllkrug um málið á vef Bundesligunnar fyrir nokkrum árum. „Þetta var mjög hættulegt vegna sýkingarhættu. Við urðum báðir að fara á sjúkrahús en sem betur fer var hægt að laga þetta allt og hreinsa til,“ sagði Füllkrug. Jónatan komst á endanum í skurðaðgerð og losnaði við tönn Tjörva tæpu ári eftir að hafa fengið hana í nefið, en hún fannst á röngtenmynd eftir að upp kom sýking í nefinu. Tjörvi fékk svo á endanum tönnina senda í pósti. Sigur dugar ef að Spánn hjálpar Þrátt fyrir stigið sem Füllkrug tryggði Þjóðverjum eru þeir í neðsta sæti E-riðils fyrir afar spennandi lokaumferð á fimmtudaginn. Örlögin eru í þeirra höndum og þeir komast áfram með sigri gegn Kosta Ríka ef að Spánn tapar ekki fyrir Japan. Ef Spánn tapar fyrir Japan þarf Þýskaland að vinna risasigur gegn Kosta Ríka, með allt að 7-8 marka mun ef Japan vinnur Spán aðeins með eins marks mun.
Fótbolti HM 2022 í Katar Mest lesið Verður einn sá dýrasti í sögu KR Íslenski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Heimir þurfti að hreinsa tennisbolta af vellinum: „Þetta er ósanngjarnt“ Sport Styrmir nýr formaður hjá Val Íslenski boltinn Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Handbolti Komust ekki að samkomulagi og fer frítt frá félaginu Fótbolti Tilfinningaríkur sigur Littler Sport Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Handbolti Andleysi í uppeldisfélaginu komið Böðvari á óvart Íslenski boltinn HM-minningin: Maðurinn sem pissaði á völlinn Fótbolti Fleiri fréttir Mourinho kynntur til leiks eftir kosningar Brann kveður Jón Dag Óskar Hrafn framlengir í Vesturbæ Þurfti að yfirgefa liðið fyrir úrslitaleikinn Tottenham bætir í vörnina Andleysi í uppeldisfélaginu komið Böðvari á óvart Styrmir nýr formaður hjá Val Verður einn sá dýrasti í sögu KR HM-minningin: Maðurinn sem pissaði á völlinn Messi fer á sjötta heimsmeistaramótið Snýr aftur heim til Víkinga Komust ekki að samkomulagi og fer frítt frá félaginu Írar unnu góðan sigur „Skítugur blettur á íþróttinni okkar“ Allegri ráðinn þjálfari Napoli Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Jón Daði utan hóps af persónulegum ástæðum Stórhuga Börsungar að undirbúa tilboð í Álvarez Vilja ráða Iraola eða Lampard Frimpong í kuldanum og fer ekki á HM Mikil leynd yfir meiðslum Neymar en þau minna á Romário Vann tvo Evróputitla sama vorið Sér ekkert að því að senda leikmönnum bara tölvupóst Sjáðu markið sem tryggði Palace sigur í Sambandsdeild Evrópu Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Afturelding á flugi, 16 ára hetja Gróttu gegn Þrótti og fyrsti sigur Ægis Unnu sinn fyrsta Evróputitil í kveðjuleik Glasners Davíð Smári fór illa með gömlu lærisveinana Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Sjá meira