Ljósleiðaradeildin verður hluti af Evrópukeppni í Counter Strike Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 23. nóvember 2022 17:31 Ljósleiðaradeildin í CS:GO er orðin hluti af Evrópukeppninni CCT. Ljósleiðaradeildin er orðin hluti af Evrópukeppninni CCT í CS:GO. Deildin fékk boð í CCT vegna góðra innviða, gæða í útsendingum og stöðugleika í keppnisumhverfinu.
Í fréttatilkynningu Ljósleiðaradeildarinnar kemur fram að íslenska leiðin sé að bjóða upp á gæðastarf og að boðið í CCT sé viðurkenning á gæðum og styrk Ljósleiðaradeildarinnar. Þá kemur einnig fram að þetta sé ein stærsta viðurkenning sem íslensk lið hafa fengið í Counter Strike og að það sé mikill heiður. Nú stefni deildin enn lengra og á að vaxa enn frekar á alþjóðlegum vettvangi. Með þessu fá liðin í Ljósleiðaradeildinni nú tækifæri til að mæta bestu liðum Evrópu og sýna sig á stóra sviðinu. Það mun gera lið og leikmenn deildarinnar sýnilegri á alþjóðlegum vettvangi. Aldrei jafn mikið í húfi fyrir íslensk lið eins og nú Aron Ólafsson, framkvæmdarstjóri Rafíþróttasamtaka Íslands, segir að boð sem þessi komi ekki að sjálfu sér. Gríðaleg vinna liggur að baki þess að fá slíkt boðskort og að líklega hafi aldrei verið jafn mikið í húfi fyrir íslensku liðin í Ljósleiðaradeildinni. „Svona boðskort koma ekki af sjálfu sér. Þessi viðurkenning er fyrst og fremst viðurkenning fyrir þá vinnu sem hefur farið í að byggja upp rafíþróttainnviði á Íslandi,“ sagði Aron í samtali við Vísi. „Vinnan og dugnaðurinn frá starfsmönnum og keppendum hefur verið svo mikil undanfarin ár. Í dag er deildin okkar svo skemmtileg að við erum með eitt mesta áhorf sem þekkist í þessum landsdeildum.“ „Svo til að draga þetta saman þá erum við mjög stolt af þessu og við höldum áfram að bjóða upp á frábærar útsendingar með spennandi keppni og áframhaldandi stöðugleika og innviðauppbyggingu. Ég get ekki beðið eftir að sjá íslensk lið halda áfram að fá tækifæri erlendis. Það má segja að það hafi aldrei verið jafn mikið í húfi fyrir íslensku liðin, en nú er Ljósleiðaradeildin, úrvalsdeildin í CS:GO, stökkpallur upp í tvær erlendar keppnir,“ sagði Aron að lokum
Ljósleiðaradeildin Rafíþróttir Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport Uppgjörið: KR - Víkingur R. 1-2 | Fimm rauð og Víkingar meistarar Íslenski boltinn KA – Þór 3-0 | Sendu erkifjendurna í fallsæti með lífsnauðsynlegum sigri Íslenski boltinn Þróttur R. - Fylkir 1-0 | Þróttarar upp í Bestu deild eftir tíu ára bið Íslenski boltinn Læti í göngunum eftir leik Íslenski boltinn „Hef engan smekk fyrir því hvernig þeir haga sér“ Íslenski boltinn „Ég ýtti bara aðeins við honum“ Íslenski boltinn Steindi gleymdi klukkunni og teikar aðra keppendur Sport Sló í trérót og þurfti að draga sig úr keppni Golf Hættir hjá Nike og tekur óvænt skref Fótbolti