Ár hvert breytist útvarpsstöðin LéttBylgjan 96,7 í Jólastöðina sem spilar jólalög allan sólarhringinn. Það má því ætla að mörg jólabörnin hafi glaðst í umferðinni í morgun við að heyra fyrstu jólalögin óma í útvarpinu.
Hrekkjavakan er liðin og því styttist óðum í að graskerum og beinagrindum verði skipt út fyrir jólasveina og hnotubrjóta. Jólaseríurnar eru þó nú þegar farnar að skjóta upp kollinum víða. Þá eru jólin einnig mætt í stórverslanirnar IKEA og Costco.
Einhverjum kann ef til vill að finnast full snemmt að byrja að hlusta á jólatónlist í nóvember. Þeim bendum við á aðrar útvarpsstöðvar á borð við FM957, Bylgjuna og X977, þar sem hlustendur ættu að vera óhultir fyrir jólatónlist í bili.
Ykkur hin hvetjum við til þess að hækka í græjunum og njóta Jólastöðvarinnar í spilaranum hér fyrir neðan.