Portúgal komst ekki á HM Sindri Sverrisson skrifar 11. október 2022 22:26 Portúgal fagnaði vel í kvöld en þarf að fara í aukaumspil til að komast á HM. Getty Þrátt fyrir sigurinn gegn Íslandi í kvöld er portúgalska kvennalandsliðið í fótbolta síður en svo komið með öruggt sæti á HM í Eyjaálfu næsta sumar.
Portúgal þarf að bíta í það súra epli að fara í sérstakt aukaumspil í febrúar, í Nýja-Sjálandi, með liðum úr öðrum heimsálfum. Þar verður barist um síðustu þrjú sætin sem í boði eru á HM, nú þegar 29 þjóðir hafa tryggt sér þar sæti. Þetta er vegna þess að aðeins tvö af þremur liðum sem unnu einvígin í umspilinu í Evrópu gátu fengið öruggt sæti á HM en eitt liðið, það með lakastan samanlagðan stigafjölda úr undankeppni HM og umspilinu, þurfti að fara sem fulltrúi Evrópu í aukaumspilið. Portúgal þurfti því að treysta á hagstæð úrslit í hinum tveimur umspilsleikjunum í kvöld en varð ekki að ósk sinni því Írland vann Skotland og Sviss vann Wales. Sviss endaði með 22 stig og Írland 20, en Portúgal aðeins 19, í þessari baráttu um að verða ekki þriðja liðið og þurfa að fara í aukaumspil. Ef að Ísland hefði unnið í kvöld, í venjulegum leiktíma eða framlengingu, hefði liðið komist beint á HM en hefði liðið unnið í vítaspyrnukeppni hefði sigurinn aðeins gilt sem eitt stig og Ísland þurft að fara í aukaumspilið í febrúar, sem þó væri mikið betri niðurstaða en sú sem raunin varð í kvöld. Auk Portúgals spila í aukaumspilinu Kínverska Taípei, Taíland, Kamerún, Senegal, Haítí, Panama, Síle, Paragvæ og Papúa Nýja Gínea, og ættu möguleikar Portúgals á að komast á HM að vera mjög góðir.
HM 2023 í Ástralíu og Nýja-Sjálandi Landslið kvenna í fótbolta Fótbolti Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið Fótbolti Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Fótbolti Fleiri fréttir Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Sjá meira