Vildu ekki starfa saman og voru báðir látnir fara Sindri Sverrisson skrifar 4. október 2022 13:30 Perry Mclachlan og Jón Stefán Jónsson voru ráðnir til þriggja ára fyrir ári síðan. ka.is Perry Mclachlan og Jón Stefán Jónsson, sem í fyrra voru ráðnir til þriggja ára sem þjálfarar knattspyrnuliðs Þórs/KA, hafa báðir látið af störfum. Jón Stefán segir stjórn Þórs/KA hafa tekið þá ákvörðun þar sem þeir vildu ekki starfa saman.
Þór/KA var í fallhættu í mestallt sumar en tókst með góðri rispu í ágúst og september að bjarga sæti sínu og enda í 7. sæti Bestu deildar kvenna, fimm stigum frá fallsæti. Liðið endaði því á sömu slóðum og síðustu tvö tímabil. Jón Stefán segir í færslu á Facebook að þeir Perry hafi báðir tilkynnt stjórn að þeir vildu halda áfram að stýra Þór/KA, en að þeir teldu hagsmunum liðsins betur borgið með því að stjórnin veldi á milli þeirra. Segir hann þá hafa ólíka sýn á fótbolta og vera ólíka þjálfara, þó að þeir séu mjög góðir vinir. „En ástæða uppsagnar okkar beggja er sum sé sú að stjórn vildi ekki gera upp á milli okkar og því væri sanngjarnast að láta okkur báða fara. Ekkert flóknara en það,“ skrifar Jón Stefán og tekur fram að niðurstaðan sé auðvitað virkilega svekkjandi.
Besta deild kvenna Þór Akureyri KA Fótbolti Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira