Stuðningur til sjálfstæðis ríkisstofnana Svavar Guðmundsson skrifar 23. september 2022 12:01 Stuðningur til sjálfstæðis, happadrættismiði í heimabankanum þínum, Blindrafélagið. Svona hljóma útvarpsauglýsingar og auglýsingar á öðrum miðlum í nokkrar vikur á vorin og haustin. Um er að ræða árleg happadrætti Blindrafélagsins undir yfirskriftinni „stuðningur til sjálfstæðis“. Happdrættissala og önnur fjáröflun er félaginu mikilvæg fyrir allt það starf sem nauðsynlegt er að inna af hendi í þágu félagsmanna. Tvisvar á ári er gefið færi á að sækja um styrki úr sjóðnum Stuðningur til sjálfstæðis. Síðastliðið vor var afar bagalegt fyrir umsækjendur að aðeins var gefinn 12 daga frestur frá því að opnað var fyrir umsóknir og þar til umsóknarfrestur rann út. Að sjálfsögðu er ámælisvert að vinnubrögð um jafn mikilvæg mál séu með þessum hætti. Öllum ætti að vera ljóst að blindir þurfa oft lengri tíma til að vinna slíkar umsóknir. Sjálfur Ríkisskattstjóri gefur lengri frest til framtalsskila og viðbótarfrest ef með þarf ólíkt Blindrafélaginu sem sýnir félagsmönnum sínum enga biðlund við þessi umsóknarskil.. Í maí sl. upplýsti Blindrafélagið hverjir hefðu hlotið styrki úr vorúthlutun úr sjóðnum „stuðningur til sjálfstæðis. Alls voru umsóknirnar 15 og 12 af þeim hlutu styrk. Úthlutað var styrkjum að fjárhæð kr. 4.538.300.- Helst er frá því að segja að ríkisstofnun sem ber þann virðulega „heiður“ að bera lengsta stofnanaheiti á eldfjallaeyjunni grænu, fékk 4 styrki af þessum 12 og meir en helming af allri úthlutaðri fjárhæð eða um 55,5% upphæðar eða kr. 2.518.300.-,. Stofnunin fékk alla þá styrki sem sótt var um í hennar nafni. Umrædd ríkisstofnun er Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu, 95 bókstafir (ÞÞþþþ). Blindir og sjónskertir umsækjendur fengu einungis um 1.350.000.- úthlutað (29%), og flestir afar lágar upphæðir til hluta í tölvukaupum. En félagsmenn geta sótt um slíkt samkv. reglum sjóðsins á þriggja ára fresti. Afgangurinn fór síðan í kvikmyndaverkefni sem ekki hefur verið upplýst um út á hvað gengur, þrátt fyrir ítrekaða fyrirspurn þar um. Sjálfur sendi greinarhöfundur inn 2 umsóknir sl. vor en þeim var báðum hafnað af stjórn sjóðsins „stuðningur til sjálfstæðis“, en greinarhöfundur er lögblindur. Greinarhöfundur hefur sent inn umsóknir í umræddan sjóð sl. 4 úthlutanir (6 umsóknir) og hefur þeim ávallt verið hafnað án sérstakra skýringa þegar eftir þeim hefur verið leitað. Aftur á móti hefur ríkisstofnunin með langa nafnið fengið úthlutað tvisvar á ári úr sjóðnum og oftar en ekki meir en helming úthlutaðrar upphæðar eins og sjá má á heimasíðu Blindrafélagsins. Semsagt ríkisstofnun fær ávallt úthlutað úr sjóðnum tvisvar á ári meðan almennir félagsmenn geta sótt um styrk til tækjakaupa á þriggja ára fresti. En einnig geta félagsmenn sótt um árlega hafi þeir umsókn um framfaramál í þágu blindra, en lítið hefur borið á slíkum umsóknum í tíð núverandi stjórnar og þaulsetins framkvæmdastjóra. Lesendum til fróðleiks hafa allar mínar umsóknir snúið að fræðslu og framfaramálum í þágu blindra og sjónskertra. Jafnframt að öryggis og aðgengismálum hverskonar. Og verkefna til að auka fræðslu meðal almennings og ekki síst ungs fólks, á blindu og sjónskerðingu. Þetta eru mér hjartans mál og hef ég hvatt Blindrafélagið til að auka upplýsingaflæði og koma á framfæri þörfum blindra og sjónskertra, en ekkert borið úr býtum frá þeim nærsýna bæ. Því hef ég gagnrýnt Blindrafélagið fyrir algert andvarleysi í mörgum málum er snúa að bættum lífsgæðum fólks með þessa fötlun. Undirtektirnar hafa engar verið, undantekningalaust er farið í yfirborðskennda fýlustjórnun því svarleysi forráðamanna félagsins er í toppformi. Framfaramál eru lykill allra að sjálfstæði. Ég hef skrifað fjölda greina um málefni blindra og sjónskertra undanfarin ár, m.a. annars um heimsóknir mínar á stærstu blindratæknisýningu í Evrópu og heimsóknir mínar til blindrasamtaka erlendis og önnur baráttumál. Skemmst er frá því að segja að ég hef ekki fengið eina einustu af þeim birtar á fjölmörgu miðlum Blindrafélagsins, merkilegt. Þar er einhver öflugasta ritskoðun sem finnst á byggðu bóli um framfaramál, og ekki er farið leynt með þá ritskoðun til félagsmanna. Og nefna má í framangreindu sambandi að 3 manns úr stjórn Blindrafélagsins ásamt mökum sínum samtals sex manns, fóru vorið 2019 í 10 daga „fræðsluferð“ alla leið til Nýja Sjálands á 2 daga ráðstefnu og áætlaður kostnaður við þá ferð var um 4 milljónir og aldrei hefur verið upplýst hvað út úr henni kom. Og það þarf ansi marga selda happadrættismiða til að kosta slíka skemmtiferð, en að hámarki hefði verið hægt að senda tvær manneskjur eða fylgjast með fundinum yfir netið, því lengra verður ekki komist frá landinu bláa. Og ef ekki væri fyrir ótrúlegan dugnað og velvilja einstakra félagasamtaka í fjárframlögum til t.d. kaupa á leiðsöguhundum og annars fjárstuðnings væri ómögulegt að átta sig á súrefnismettuninni í starfsemi félagsins. Greinarhöfundur á svosem ekkert sjálfgefið tilkall til styrks úr þessum „sjálfstæðissjóði“ en það að ríkisstofnun skuli nánast ryksuga hann upp við hverja úthlutun er ljótur leikur. Allt í þeim tilgangi að starfsmenn hennar komist í „námsskemmtiferðir“ erlendis o.fl., á meðan einmannaleiki blindra og sjónskertra nístir í norðanrokinu svo þeir treysta sér ekki yfir gatnamót eigin framfara. Semsagt, undanfarin ár hefur ríkistofnunin verið í forgangi þegar kemur að styrkúthlutun úr baráttusjóðnum „stuðningur til sjálfstæðis“ sem er slagorð happadrættis Blindrafélagsins. Stofnunin fékk líka þar áður tæp 60% af úthlutaðri upphæð, og enn lengra aftur í tímann hefur hún verið langstærsti áskrifandi að fjármunum úr sjóðnum, en ekki blindir og sjónskertir sem berjast fyrir auknu sjálfstæði oftar en ekki í sínum fábrotna einmannaleika. Mikið af þessum styrkjum til ríkisstofnunarinnar hefur t.am. farið í utanferðir starfsmanna, myndlistarverkefni, bókagerð o.fl. Og mig og fleiri rekur ekki minni til að blint og sjónskert fólk hafi verið upplýst um hvað hafi komið út úr þessum verkefnum. Það er alsjáandi og blindum augljóst að hér er stofnunin beinlínis í samkeppni við þá sem hún á að sinna og það er siðferðilega rangt og andstætt hlutverki (þþþþþþ) að tæma sjóði félagsins á kostnað sjóndapra sem sækja þar um í von um bætt sjálfstæði. Það skapast ekkert sjálfstæði blindra og sjónskertra við að styðja ríkisstofnunina, það er fjárlaga að skammta stofnuninni fé, ekki þannig að hún gangi skóinn af blindum og sjóndöprum sem sækja fram til sjálfstæðis. Er þetta svipað og ef Landhelgisgæslan myndi ryksuga sjóði björgunarsveitanna í landinu, svo starfsmenn hennar komist á ráðstefnu á Jan Mayen um hvernig sé best að haga olíuinnkaupum í Norður Atlantshafi. Og gott almennt útsýni er grunnstefið í að geta veitt öðrum styrkan stuðning til sjálfstæðis. Höfundur er sjávarútvegsfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Félagasamtök Mest lesið Af hverju borgum við evrópsk metverð fyrir grænmeti sem endist í tvo daga? Valerio Gargiulo Skoðun Er dr. Henry Alexander bara til punts? Henry Alexander Henrysson Skoðun Við erum orðin Afríka: Hvernig íslenska elítan rændi þjóðinni Sigurður Sigurðsson Skoðun Hver framleiðir matinn okkar eftir 20 ár? Þórarinn Ingi Pétursson Skoðun Þegar fyrirmyndirnar horfa í skjáinn Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Gervigreind er að breyta því hvað það þýðir að vera góður stjórnandi Gísli Rafn Ólafsson Skoðun Evrópa í áfalli, skilin eftir í gervigreindarkapphlaupinu. Verður Ísland líka utangátta? Björgmundur Örn Guðmundsson Skoðun Mikilvægur áfangi fyrir Norðurland og landið allt Heimir Örn Árnason Skoðun Staðreyndir og fræðsla um flugmannsstarfið Matthías Arngrímsson Skoðun Stjórnsýsluframkvæmd við vörslusviptingu búfjár, meðalhóf eða flýtilausn? Sævar Þór Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Hver borgar þegar samningurinn er svikinn? Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun ESB aðild er óskynsamleg frá efnahagslegu sjónarmiði Kristinn Sv. Helgason skrifar Skoðun Er kominn tími á nýtt norrænt leiðtogahlutverk? Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Þegar fyrirmyndirnar horfa í skjáinn Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hver framleiðir matinn okkar eftir 20 ár? Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Er dr. Henry Alexander bara til punts? Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Gervigreind er að breyta því hvað það þýðir að vera góður stjórnandi Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Af hverju borgum við evrópsk metverð fyrir grænmeti sem endist í tvo daga? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Mikilvægur áfangi fyrir Norðurland og landið allt Heimir Örn Árnason skrifar Skoðun Stjórnsýsluframkvæmd við vörslusviptingu búfjár, meðalhóf eða flýtilausn? Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Frelsi ungra Íslendinga til framtíðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Evrópa í áfalli, skilin eftir í gervigreindarkapphlaupinu. Verður Ísland líka utangátta? Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar Skoðun Til hamingju með Þjóðarhöll! Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hugleiðing í tilefni að þjóðhátíðardegi Íslands: Grundvöllur sjálfstæðisins var barátta þeirra fátæku fyrir betra samfélagi Ágúst Valves Jóhannesson skrifar Skoðun Hvernig verjum við sjálfstæði Íslands til framtíðar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Staðreyndir og fræðsla um flugmannsstarfið Matthías Arngrímsson skrifar Skoðun 82 ár frá stofnun lýðveldisins: Gleymum ekki sögu okkar Anton Guðmundsson skrifar Skoðun Kos staðfesti ekki tilvist samkomulags Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Við byggðum varnargarða – nú þurfum við að byggja upp samfélagið Kristín María Birgisdóttir skrifar Skoðun Við erum orðin Afríka: Hvernig íslenska elítan rændi þjóðinni Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Skýrar línur og strangari löggjöf um vindorku Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Alvarleg og viðvarandi hernaðarógn Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun 30% lækkun skiptir sveitir landsins máli Axel Sæland skrifar Skoðun Er ný fjármálaáætlun á áætlun? Birta Karen Tryggvadóttir skrifar Skoðun Á að kenna íslensku við Háskóla Íslands? Gauti Kristmannsson skrifar Skoðun Þingheimur lokar augum og eyrum Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson ,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Enginn á að ýta Íslandi inn um bakdyrnar Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Þegar ESB beitir smáþjóð ofríki Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hver á stjórnsýsluna? Þórólfur Júlían Dagsson skrifar Skoðun Farsældarlögin: Samþætting án úrræða Elín Anna Baldursdóttir skrifar Sjá meira
Evrópa í áfalli, skilin eftir í gervigreindarkapphlaupinu. Verður Ísland líka utangátta? Björgmundur Örn Guðmundsson Skoðun
Stjórnsýsluframkvæmd við vörslusviptingu búfjár, meðalhóf eða flýtilausn? Sævar Þór Jónsson Skoðun
Skoðun Gervigreind er að breyta því hvað það þýðir að vera góður stjórnandi Gísli Rafn Ólafsson skrifar
Skoðun Af hverju borgum við evrópsk metverð fyrir grænmeti sem endist í tvo daga? Valerio Gargiulo skrifar
Skoðun Stjórnsýsluframkvæmd við vörslusviptingu búfjár, meðalhóf eða flýtilausn? Sævar Þór Jónsson skrifar
Skoðun Evrópa í áfalli, skilin eftir í gervigreindarkapphlaupinu. Verður Ísland líka utangátta? Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar
Skoðun Hugleiðing í tilefni að þjóðhátíðardegi Íslands: Grundvöllur sjálfstæðisins var barátta þeirra fátæku fyrir betra samfélagi Ágúst Valves Jóhannesson skrifar
Skoðun Við byggðum varnargarða – nú þurfum við að byggja upp samfélagið Kristín María Birgisdóttir skrifar
Skoðun Þingheimur lokar augum og eyrum Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson ,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar
Evrópa í áfalli, skilin eftir í gervigreindarkapphlaupinu. Verður Ísland líka utangátta? Björgmundur Örn Guðmundsson Skoðun
Stjórnsýsluframkvæmd við vörslusviptingu búfjár, meðalhóf eða flýtilausn? Sævar Þór Jónsson Skoðun