Laginu Tárin falla hægt er lýst sem haustslagara. „Stórir gítarar, stríðstrommur og angurvær hljóðheimur einkenna lagið,“ segir í tilkynningu frá útgefandanum Alda Music.
Í mynd sem þeir birtu á samfélagsmiðlum í dag eru þeir báðir klæddir í hvítt. Bubbi og Auður sitja saman í kirkju og Bubbi er með kross í höndunum. Auður situr á bekk fyrir aftan Bubba og horfir niður.
Auður hefur ekki gefið út nýja tónlist síðan hann steig til hliðar frá uppsetningu Rómeó og Júlíu í júní á síðasta ári í kjölfar ásakana um ofbeldi. Hann sendi þá frá sér yfirlýsingu og játaði að hafa farið yfir mörk konu, líkt og fjallað hefur verið um hér á Vísi. Auður hlaut tilnefningu til Grímuverðlauna fyrir tónlist sína í verkinu Rómeó og Júlía.
Bubbi hefur lengi verið aðdáandi tónlistarmannsins.
„Mér finnst þetta besti tónlistarmaðurinn sem hefur komið fram á Íslandi í áratugi. Hann heitir Auður og og hann er hérna með okkur í kvöld,“ sagði Bubbi Morthens á Þorláksmessutónleikum sínum árið 2020. Atvikið náðist á mynband og var það sýnt í þættinum Tónlistarmennirnir okkar á Stöð 2.
„Hann er gífurlega flottur textahöfundur, geggjaður lagahöfundur, geggjaður pródúsent og geggjaður gítarleikari. Þá er ég búinn að mæra uppáhalds tónlistarmanninn í kvöld,“ sagði Bubbi og Auður hágrét á fremsta bekk í salnum. Myndbandið má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.