Setur upp listasýningu til heiðurs ömmu sinni Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 16. september 2022 13:30 JóiPé ásamt ömmu sinni en hann var að opna listasýningu henni til heiðurs. Aðsend Fjöllistamaðurinn JóiPé hefur löngum verið tengdur við íslensku tónlistarsenuna en ásamt því að semja og flytja tónlist er hann myndlistarmaður. JóiPé opnar listasýningu á morgun í Gróskusal á Garðatorgi sem er tileinkuð ömmu hans, Margréti Thorlacius, en þau hafa alltaf átt sterkt og gott samband að sögn Jóa.
Blaðamaður tók púlsinn á JóaPé og fékk að heyra frá hans listræna ferli og söguna á bak við sýninguna. Hvaðan sækirðu innblástur fyrir sýningunni og hver er tengingin við ömmu þína? Fyrir þessa sýningu sótti ég innblástur frá ömmu minni en þessi sýning er tileinkuð henni. Amma mín er stórmerkileg kona sem ég lít upp til. Það hefur alltaf verið sterk tenging á milli okkar og saman höfum við baukað margt. Með henni lærði ég að dunda mér og trúa á sjálfan mig. Það var sama hvaða hugmynd ég fékk, amma var alltaf móttækileg og til í að hjálpa mér að framkvæma hana. Hún hjálpaði mér að finna mína fjöl og ýta mér í þá átt sem mig langaði að fara. JóiPé með ömmu sinni á foropnuninni.Aðsend Hefur sýningin verið lengi í bígerð? Hugmyndin kom fyrst fyrir tveimur árum en síðan þá hefur hún þróast mikið. Fyrst átti sýningin bara að innihalda málverk en svo breyttist það í prentverk og myndbandsverk. Prentverk eftir JóaPé af Margréti Thorlacius, ömmu sinni.Aðsend Hvað finnst þér skemmtilegast við að mála? Mér finnst skemmtilegast þegar ég kemst í góðan og gír og gleymi mér alveg. Þetta getur verið mjög góð hugleiðsla og ég leita reglulega í hana. Ég er með mikla sköpunarþörf og þá er gott að geta gripið í pensilinn. Hvaðan færðu oftast hugmyndirnar? Ég fæ hugmyndir bara hér og þar en ég sæki mikinn innblástur inn á Pinterest, það er hægt að finna alls konar töff hluti þar. Svo fæ ég líka bara innblástur frá fólkinu í kringum mig og fyrir þessa sýningu er amma mín aðal innblásturinn. Vinir og fjölskylda JóaPé mættu á foropnun síðastliðinn þriðjudag.Aðsend Hvenær opnar sýningin og hvað stendur hún lengi? Síðastliðinn þriðjudag var sýningin bara opin fyrir fjölskyldu og vini en næstu helgi verður hún opin öllum frá klukkan 13:00-15:00 á bæði laugardag og sunnudag.
Myndlist Menning Tónlist Tengdar fréttir „Bless í bili“ Tónlistarmennirnir Kristinn Óli Haraldsson og Jóhannes Damian Patreksson, einnig þekktir sem Króli og JóiPé ætla að gera upp síðustu sex árin á lokatónleikum sínum saman, í bili. Þeir verða þó ekki einir á sviðinu en Sinfóníuhljómsveit Norðurlands ætlar einnig að spila með þeim. 8. ágúst 2022 11:31 Listasýningar með ömmu í æsku kveiktu á sköpunargleðinni Lágmyndir hafa heillað listamanninn Pétur Geir Magnússon frá ungum aldri og í dag hefur hann fært þær inn í nútímalegt form í listsköpun sinni. Pétur Geir, sem er búsettur og starfræktur í Stokkhólmi, er með bakgrunn í grafískri hönnun en kallar sig hagnýtan myndlistarmann og nálgast listaverk sín á einstakan hátt. Pétur Geir er viðmælandi í nýjasta þætti af KÚNST, sem er jafnframt fyrsti þáttur í seríu tvö. 6. september 2022 07:58 Mest lesið Hrafnhildur hafnaði í öðru sæti í Miss Earth Lífið Þrjár íslenskar kvikmyndir hlutu verðlaun í Þýskalandi Lífið Brynjar Morthens leikur Bubba Morthens Bíó og sjónvarp Lifa hægara lífi í New York en á Íslandi Lífið Krakkatía vikunnar: Handbolti, eldgos og Alþingi Lífið Bein útsending: Vikulöng þrekraun Einars Lífið Nammimaðurinn er allur Lífið Niðurgangurinn á Þingvöllum þaggaður niður Lífið Rómantík í loftinu hjá Sveindísi Jane Lífið Fagnar átta árum án hugbreytandi efna Lífið Fleiri fréttir Víkingur Heiðar tilnefndur til Grammy-verðlauna Frambjóðendur, sjónvarpsstjörnur og gamlir félagar fögnuðu með Geir Setja upp árekstur og hefja saman rekstur „Þetta eru mjög vondir samningar við Storytel“ Varpa ljósi á mikilvægi og gæði íslenskrar hönnunar „Við þurfum öll að halda í barnið innra með okkur“ Menningarritstjóri ráðinn framkvæmdastjóri Fullt út úr dyrum þegar Eiríkur Bergmann kynnti ferðafélagann Tínu Hvað gerist þegar Laddi hittir Eirík Fjalar, Skrám og Elsu Lund? „Alltaf að fylgja hjartanu í stað þess að velja einföldu leiðina“ Usli og glæsileiki á Kjarvalsstöðum Valgeir sár og Bubbi og Bó hneykslaðir Stappfullt á eina stærstu menningarhátíð ársins Sjóðheitt menningarrými á Baldursgötu Asifa Majid hlýtur Vigdísarverðlaunin 2024 Bjarni Ben fagnaði 140 ára afmæli Listasafns Íslands Han Kang hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels? „Þetta er móðgun gegn Íslandi“ Henti listaverkinu í ruslið Kúltúrkettir landsins létu sig ekki vanta í Portið „Hrátt háþróað krass, langt leitt krot“ Bjóða landsmönnum nauðbeygð til messu Allt í banönum á Brút Bríet lét sig ekki vanta á sýningaropnun Ynju Blævar Út um allar koppagrundir Alþingis: „Froðan flæðir endalaust, það er bara froða froða“ Sjá meira
„Bless í bili“ Tónlistarmennirnir Kristinn Óli Haraldsson og Jóhannes Damian Patreksson, einnig þekktir sem Króli og JóiPé ætla að gera upp síðustu sex árin á lokatónleikum sínum saman, í bili. Þeir verða þó ekki einir á sviðinu en Sinfóníuhljómsveit Norðurlands ætlar einnig að spila með þeim. 8. ágúst 2022 11:31
Listasýningar með ömmu í æsku kveiktu á sköpunargleðinni Lágmyndir hafa heillað listamanninn Pétur Geir Magnússon frá ungum aldri og í dag hefur hann fært þær inn í nútímalegt form í listsköpun sinni. Pétur Geir, sem er búsettur og starfræktur í Stokkhólmi, er með bakgrunn í grafískri hönnun en kallar sig hagnýtan myndlistarmann og nálgast listaverk sín á einstakan hátt. Pétur Geir er viðmælandi í nýjasta þætti af KÚNST, sem er jafnframt fyrsti þáttur í seríu tvö. 6. september 2022 07:58