103 sm lax úr Ytri Rangá Karl Lúðvíksson skrifar 8. september 2022 12:18 Mynd: West Ranga river Iceland FB Haustið er frábær veiðitími fyrir þá sem hafa sér það ætlunarverk að reyna við stóru hausthængana því þetta er sá árstími sem þeir eru oftast á ferli.
Á haustin ókyrrast hængarnir og fara að vera árásargjarnir á agn veiðimanna enda eru þeir að komast í hrygningarham. Það eru margir veiðimenn sem elska þennan árstíma, kvöldhúm að hausti og að aksta fyrir stórlax er alveg einstök upplifun en að ná honum og fá mynd af sér með tröllið? Priceless. Einn af þessum stóru hausthængum kom á agnið hjá veiðimanni við Ytri Rangá í dag og þetta er virkilega fallegur lax eins og myndin ber með sér. Hann var mældur 103 sm sem gerir hann að stærsta laxi úr ánni í sumar og einn af þeim stærstu á landinu þetta árið. Það hafa nokkrir svona sést í ánni í sumar svo það verður vonandi einhver heppinn og fær að eiga slaginn við svona höfðingja. Við óskum veiðimanni til lukku með þetta.
Stangveiði Mest lesið Dapurlegar fréttir úr Skógá Veiði Síðsumarsflugan sem má ekki gleymast Veiði Vefsalan opnar í dag hjá SVFR Veiði Góð opnun í Blöndu Veiði Norskur eldislax ógn við Íslenska laxastofna Veiði Fékk 4 kílóa urriða í Galtalæk Veiði Fiskifræðingur sakar verktaka um gróft brot Veiði Urriðinn mættur við Kárastaði Veiði Skyttur fjölmenntu á fjöll í gær Veiði Fjórir laxar við opnun Mýrarkvíslar Veiði