Sömdu lag út frá upplifun á sóttkví Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 5. september 2022 15:31 Hljómsveitin Piparkorn var að senda frá sér tónlistarmyndband við lagið Heima við. Aðsend Piparkorn er jazz-skotin funk hljómsveit sem hefur starfað í ýmsum myndum frá árinu 2015. Hljómsveitin hóf ferilinn í djasstónlist en hefur þróað stílinn sinn hægt og rólega út í poppaðra og ferskara efni en Piparkorn var að senda frá sér lagið Heima við ásamt splunkunýju tónlistarmyndbandi.
Hljómsveitin er skipuð þeim Emmu Eyþórsdóttur, söngkonu, Gunnari Hinriki Hafsteinssyni, gítarleikara, Hjálmari Karl Guðnasyni, bassaleikara, Magnúsi Þór Sveinssyni, hljómborðsleikara, Ragnari Má Jónssyni, saxófónleikara, Sigurrós Jóhannesdóttur, trompetleikara og bakraddasöngkonu og Þorsteini Jónssyni sem spilar á trommur. Hér má sjá tónlistarmyndbandið: Blaðamaður tók púlsinn á hljómsveitarmeðlimum. Hvaðan sækið þið innblástur í tónlistinni? Þó hljómsveitin vinni mikið saman að lögunum og innblásturinn komi því úr öllum áttum er það yfirleitt píanóleikarinn í hljómsveitinni, Magnús Þór, sem leggur grunninn að nýjum lögum og sér um meginþorra lagasmíðanna. Magnús Þór: Þar sem ég hef alltaf verið mikill fönk/fusion áhugamaður þá sæki ég gífurlegan í innblástur frá mínum fönk átrúnaðargoðum eins og Stevie Wonder, Vulfpeck og Mezzoforte. Til gamans má geta þá er Eyþór Gunnars úr Mezzoforte píanó kennarinn minn þannig að þetta smitast kannski yfir á mig. Iðulega byrjar lag á ótrúlega einfaldari hugmynd og eftir það fer ég í gífurlega mikið vinnuflæði og hætti ekki fyrr en að grófleg útsetningu er tilbúin. Svo fer ég með það á æfingu og leyfi bandinu að móta það meira. View this post on Instagram A post shared by Piparkorn (@_piparkorn_) Þegar lagið er komið í hendur hljómsveitarinnar er það trompetleikarinn Sigurrós sem iðulega sér um textasmíðar, en sinn innblástur sækir hún fyrst og fremst í eigið líf og upplifanir, sem og sitt nærumhverfi. Upphafleg drög að þessu laginu lagði Magnús þegar hann var í sóttkví og gaf hann laginu vinnuheitið „Groovy Sóttkví Vibes“. Þetta vinnuheiti setti tóninn fyrir það sem lagið átti eftir að verða, en titillinn „Heima við“ vísar einmitt óbeint í það. Textinn fjallar um manneskju sem er ein heima eftir sambandsslit og eru alls kyns vísanir í upplifun Sigurrósar af því að hafa verið í sóttkví faldar í textanum. Hvaðan kviknaði hugmyndin að tónlistarmyndbandinu? Hugmyndin að myndbandinu kom út frá þessu þema, en það sýnir manneskju sem er ein heima á náttfötunum um miðjan dag og og gerir alls kyns hversdagslega hluti til að stytta sér stundir. Margar af þessum senum kannast eflaust margir við, enda hefur megnið af þjóðinni þurft að sitja í sóttkví yfir lengri eða skemmri tíma. Einhverjir kannast þá við að detta þá á kaf í eigin hugsanir og byrja að ímynda sér alls kyns spennandi aðstæður til að losna burt frá grámanum, tilbreytingarleysinu og einverunni sem fylgir þessari innilokun. View this post on Instagram A post shared by Piparkorn (@_piparkorn_) Hvað er á döfinni?Við vorum að spila á Ljósanótt í Reykjanesbæ á laugardaginn og spilum á Gauknum 14. september þar sem við vonumst til að sjá sem flest! Síðan lumum við mögulega á fleiri myndböndum í náinni framtíð.
Tónlist Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Þegar gögnin láku og Ashley Madison var á allra vörum Lífið Olivia Rodrigo á Íslandi Lífið GDRN og Jón Jónsson: Beyoncé-stælar, bítbox og falsetta í Bæjarbíói Lífið Skipta um stríðsguð vegna alvarlegra meiðsla Bíó og sjónvarp Fréttatía vikunnar: FIFA, ást Jóns og bjargvættur Höllu Lífið Fyrsta verk Ella Egils selt á fimm þúsund krónur en verk dóttur hans á tífalt meira Lífið Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið Íslendingar sópa að sér verðlaunum í dansi Lífið Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Lífið Óskarsverðlaunahafinn Brenda Fricker látin Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Grafalvarlegt nýtt efni: „Jafn tilgangslausar og að selja flugelda inni í helli“ Von á tíu nýjum lögum tíu árum eftir andlátið „Undirstaða Hörpu mun hristast undir hreinum og ómenguðum krafti“ „Þýðir í raun bara endalok fyrir íslenska útgefna tónlist“ Sagði Viktoríu Beckham að „fokka sér“ Litla systir Gretu Thunberg ætlar að verða súperstjarna Innipúkunum fjölgar enn Bonnie Tyler er látin Skvísur og töffarar fögnuðu með Elvari Hvarf vegna athyglisbrests á hæsta stigi Landslið íslenskra söngvara syngur afmælislag Bylgjunnar Söngvari YMCA látinn Halldór Haraldsson er látinn Lofsyngja tónleika Laufeyjar í Kína Hjartað slær í Hafnarfirði: „Við erum búin að sprengja það alveg utan af okkur“ Quarashi hyggst „Do it again“ Kvennatónlistarhátíð Rodrigo vekur athygli Tónlistargoðsögnin Clive Davis er látinn Jeremy Strong „reivaði“ við Retro Stefson Bein útsending frá Bergmáli á Þingvöllum Tay Keith er fallinn frá aðeins 29 ára að aldri Hipsumhaps rýfur þögnina „Ég er skíthræddur“ Tónlistin bjargráð eftir erfiða kulnun Bonnie Tyler vöknuð úr dái Swae Lee heldur tónleika á Íslandi Guðrún Ýr og Birnir í eina sæng Madonna með heitustu dansmynd ársins Þreföld útgáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ Talay Riley stunginn til bana í Lundúnum Sjá meira