Innlent

Særandi hamingjuóskir þeirra sem prumpa glimmeri

Jakob Bjarnar skrifar
Hinsegin dagar eru nú yfirstandandi. Guðrún Hlín Bragadóttir hjúkrunarfræðíngur lýsir margvíslegum vanda sem getur fylgt því að vera maki þess sem kemur úr skápnum í athyglisverðri grein.
Hinsegin dagar eru nú yfirstandandi. Guðrún Hlín Bragadóttir hjúkrunarfræðíngur lýsir margvíslegum vanda sem getur fylgt því að vera maki þess sem kemur úr skápnum í athyglisverðri grein. vísir/vilhelm

Guðrún Hlín Bragadóttir hjúkrunarfræðingur skrifar einkar athyglisverða grein sem hún birtir á Vísi þar sem hún lýsir lífsreynslu maka þess sem kemur úr skápnum.

Guðrún Hlín fer í saumana á því en hún segir að lítið hafi verið um þessa hlið mála fjallað en greinina ritar hún í tilefni af Hinsegin-dögum sem nú standa yfir. Hún lýsir þessari reynslu sem rússíbanareið, að sparkað hafi verið hressilega í púslin í lífi sínu og þau hafi farið út um allt. Það hafi tekið tímann sinn að vinna úr því.

Guðrún Hlín lýsir því í athyglisverðum pistli hvernig það er að vera maki þess sem kemur úr skápunum. Viðbrögð fólks við því geta bæði verið skondin og skrítin en einnig særandi.aðsend

Hún segir jafnframt að viðbrögð fólks í kringum sig, við miklar vendingar sem þessar óneitanlega eru, hafi verið með ýmsu móti, bæði skondin og skrítin en önnur særandi og óþægileg. Eitt dæmi sem hún nefnir um viðbrögð eru þessi:

„Hamingjuóskir sem prumpa glimmeri geta verið jafn særandi og óþægilegar og gamaldags kredduhugmyndir um synd – bæði fyrir þann sem kemur út úr skápnum og makann. 

Enginn leysir upp fjölskyldu í einhverju hamingjukasti og það er bara ekki viðeigandi að hrópa hamingjuóskum yfir þann sem kemur út úr skápnum þegar fyrrverandi makinn stendur við hlið hans. Vissulega má samgleðjast en bíddu aðeins með að hoppa af kæti og reyndu að setja þig í spor allra aðila,“ segir Guðrún Hlín í fjörlega rituðum og hreinskiptnum pistli sem tekur á málefni sem ekki er oft í deiglunni.


Tengdar fréttir

Hin hliðin á skápnum

Mig hefur stundum langað að skrifa um þá reynslu að vera við hinn endann á skápnum – maki þess sem kemur út úr skápnum. Það er reynsla sem lítið er rætt um og fáir sjá eða átta sig á þeim rússíbana flókinna tilfinninga sem fylgir henni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×