Innlent

Hádegisfréttir Bylgjunnar

Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar
Hádegisfréttir Bylgjunnar eru á sínum stað klukkan tólf.
Hádegisfréttir Bylgjunnar eru á sínum stað klukkan tólf.

Í hádegisfréttum Bylgjunar heyrum við í lögreglu í Vestmannaeyjum, á Akureyri og í Reykjavík eftir annasama nótt. Rólegt var hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum og á Akureyri í gærkvöldi og nótt en lögreglan í Reykjavík hafði í nógu að snúast.

Við heyrum í fréttamanni okkar sem staddur er í Vestmannaeyjum í beinni útsendingu og mun hann lýsa stemningunni sem var í dalnum í gær.

Þá förum við yfir vetrarveðrið í júlí en skálaverðir í Öskju ráku upp stór augu þegar þeir vöknuðu í snjókomu í morgun. Snjó kyngdi niður á miðhálendinu en gular viðvaranir eru á svæðinu yfir helgina. Við ræðum við skálavörð.

Rúmlega sextugur karlmaður hefur verið sakfelldur í Katalóníu á Spáni fyrir að hafa banað 17 ára unglingi. Maðurinn hitti unglinginn aldrei og þeir höfðu einungis átt í samskiptum í einn sólarhring. Við förum yfir málið í hádegisfréttum.

Þá höldum við áfram umfjöllun um stríðið í Úkraínu, kynnum okkur flóð í Bandaríkjunum og heyrum í forseta Íslands sem beindi orðum sínum að ósæmilegri hegðun foreldra á íþróttaleikjum barna við setningu Unglingalandsmóts í gær.

Þetta og fleira í hádegisfréttum Bylgjunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×