Mikið uppnám er út af lokum strandveiða, sem smábátasjómenn á Norður- og Austurlandi eru mjög ósáttir við. Þeir telja kerfið ógna byggð í þessum landshlutum og við ræðum við mann um kaup á bát sem eru nú í uppnámi þar sem veiði var lítil sem engin á gefnu veiðitímabili.
Svo tökum við hús á hjónum í Svarfaðardal, sem reka sveitabúð með sælkeravörur á hlaðinu heima á bæ og ræðum við veitingamenn í Eyjum sem telja niður í Þjóðhátíð.
Fjölbreyttur kvöldfréttatími á samtengdum rásum Stöðvar 2 og Bylgjunnar á slaginu 18:30.
Hægt er að hlusta á fréttirnar í spilaranum hér að ofan.