Þetta gildir ekki bara um sumarfríin heldur einnig um helgar.
Þegar að við hittum enga vinnufélaga, sem hjá mörgum eru mjög stór partur af félagslegri veröld fólks.
Sumir gætu haldið að það sé aðallega einhleypt fólk sem upplifir sig einmana um helgi. En svo er ekki.
Því rannsóknir hafa sýnt að hjónafólk getur líka upplifað sig einmana þótt það eigi maka.
Í ágætis grein í PsychologyToday er til dæmis sagt frá rannsókn sem sýndi að einmanaleiki hjá giftu fólki er líklegri til að vera til staðar hjá fólki sem er fertugt eða eldra. Þar er einnig sagt frá því hvernig kynin geta upplifað þennan einmanaleika á mismunandi hátt. Nánar um niðurstöður þessarar rannsóknar má lesa um hér.
Fólk sem upplifir sig einmana þegar það er í fríi frá vinnu skammast sín sumt fyrir að upplifa sig einmana.
Því á virkum dögum og í vinnunni finnur það ekki fyrir þessum tilfinningum. Enda erum við þá að hitta vinnufélaga, erum upptekin í því hlutverki sem við sinnum í vinnunni og yfir höfuð oft uppteknari í ýmsu öðru líka. Jafnvel ræktinni.
En síðan koma helgar eða frí.
Þegar allir aðrir virðast einmitt hafa svo margt skemmtilegt að gera. Vangaveltur eins og „Hvað er eiginlega að mér? Er ég ekki í lagi?“ geta þá komið upp í hugann hjá fólki sem hreinlega bíður þess að mæta til vinnu á ný.
Og oft ímyndar fólk sér þá að „allir“ aðrir séu hreinlega að hittast og gera eitthvað skemmtilegt.
Við skilgreinum einmanaleika sem muninn á löngun eða væntingum um hvernig lífið ætti að vera og raunveruleikann,“
segir rannsóknarsérfræðingur í viðtali við The Guardian, þar sem talað er við nokkra einstaklinga sem viðurkenna sig einmana um helgar, sjá nánar hér.
En þá getum við líka spurt okkur:
Hvernig langar okkur til þess að fríin okkar séu og hvað þurfum við að gera til að fríin okkar þróist í þá átt?

Ef staðan er þannig að við upplifum ekki einmanaleikatilfinningu í vinnunni, heldur aðeins í fríum, getum við strax talið okkur líkleg til að geta spornað við þessum einmanaleika með því að takast markvisst á við þá áskorun.
Þótt vissulega þýði það að stundum þurfum við að fara út fyrir þægindarrammann og brjóta okkur þannig leið út úr vananum.
Hér eru nokkrar hugmyndir sem gætu gagnast eða veitt innblástur.
#1. Að rækta vinskap
Langtímaverkefnið er að rækta vinskap við annað fólk. Þetta fólk getur verið í vinnunni, gamlir vinir eða makinn okkar.
Gott er að taka sér smá tíma í að hugsa hvernig og með hverjum við getum reynt að rækta vinskapinn betur.
Þannig að samverustundir og samskipti verði tíðari.
Lykilatriðið í þessu verkefni er þó að gefa því tíma. Því það að rækta vinskap tekur í eðli sínu tíma.
#2. Hvernig er viðhorfið okkar?
Margir sem upplifa einmanaleika í fríum upplifa frídagana þannig að þeir séu í rauninni bara að drepa tímann með einhverju. En fara ekki að varpa öndinni léttar fyrr en þeir eru mættir til vinnu á ný.
Hægara sagt en gert er þá að segja: Gerðu eitthvað sem þér finnst skemmtilegt.
En hvernig?
Jú, hér felst stærsta átakið í því hvernig við hugsum um það sem við ákveðum að gera. Hvernig við stýrum viðhorfinu okkar til þess sem við ákveðum að gera.
Með öðrum orðum:
Ekki drepa tímann til að þrauka frídaginn og láta hann líða. Gerðu frekar eitthvað sem bætir í dagskránna og passaðu líka upp á að njóta þess sem þú ert að gera þann daginn. Því oft eru það litlir hlutir sem færa okkur mestu gleðina.
Að hrósa öðrum? (afgreiðslufólki, makanum, vinum, börnum)
Að vera þakklát (það eflir jákvæðnina okkar að skrifa niður lista með atriðum sem við erum þakklát fyrir)
Eða er einhver sérstök tónlist sem kemur þér alltaf í gott skap?
Ef okkur tekst að efla jákvæðnina okkar og gleði, erum við líklegri til að sporna við einmanaleikatilfinningunni og virkja okkur sjálf í að gera eitthvað meira skemmtilegt.
#3: Að prófa eitthvað nýtt eða öðruvísi
Á vefsíðunni Succeedsocially er mælt með því að prófa eitthvað nýtt á frídögum og sporna þannig við einmanaleikann sem gerir vart við sig þegar að við erum í fríi.
Til dæmis að fara á safn eða taka rúntinn í einhvern lítill bæ nálægt. Þótt við séum ein!
Að skrá sig til þátttöku í félagsstarf eða á námskeið gæti líka verið ágætis ráð. Og þótt námskeiðin séu ekki á döfinni akkúrat í sumarfríiunu, gæti sumarfríið verið fínn tími til að finna námskeið sem við viljum skrá okkur á í haust.
Síðan er það líka bara spurning um að nota hugmyndarflugið:
Langar þig að prófa sundlaugina á Hofsósi?
Fara í gönguhóp?
Læra golf?
Kaupa þér ís í vesturbænum?
Skoða nýja miðbæinn á Selfossi?
Kíkja í kaffi til vinahjóna sem eiga sumarbústað? (og hafa jafnvel margoft boðið þér)
Ákveða hvert þú ætlar í berjamó í ágúst?
Prófa veitingastaðinn sem vinnufélagar voru að ræða um daginn?
Bara það eitt og sér að útfæra hugmyndir, gerir okkur spennt og leiðir hugann síður að einmanaleikatilfinningunni.
Og með því að útfæra þessar hugmyndir og skoða hvaða valkostir okkur finnst spennandi, aukum við líkurnar á því að gera eitthvað af því sem okkur langar til.