Hér má sjá tónlistarmyndbandið:
Blaðamaður tók púlsinn á Ara og fékk að heyra nánar frá tónlistarsköpun hans.
„Almennt sæki ég innblástur í málefni líðandi stundar, fólkið í kringum mig og í raun í aðrar listgreinar eins og myndlist og bókmenntir,“ segir Ari. Það er nóg framundan hjá honum.
„Platan Hiatus Terræ kemur svo út 22. júlí og í kjölfarið verða útgáfutónleikar sem auglýstir verða síðar. Svo er ég að spila á gítar fyrir nokkur bönd eins og til dæmis Pale Moon og Omnipus ásamt því að vinna að minni næstu plötu.“
Hiatus Terræ er fyrsta plata Ara Árelíusar í fullri lengd. Á plötunni leitast Ari við að spegla hið íslenska í hinu alþjóðlega. Heyra má fimmundarsöng, harmonikku og sérstaka rafmagnaða útgáfu af hinu hefðbundna langspili, rafspil, í bland við fjölþjóðlega rytma, hálssöng, viðar flautur og brim skotinn gítarleik. Úr verður tónlist fyrir ókannaðar íslenskar eyðimerkur þar sem kynjaverur þrífast og mannskepnan með sín hugtök og kerfi er í upplausn.
Hugmyndin að plötunni fæddist með kaffibolla í Bláa Horninu í Þingholtunum. Ný malaðar kaffibaunirnar beint frá Níkaragúa bruggaðar með frussandi fersku íslensku vatni í stálheiðarlegri íslenskri sjoppu. Kosningar ný yfirstaðnar, þjóðernishyggjan, alþjóðavæðingin og svo var bognefur í Vatnsmýrinni.
Ari Árelíus hefur starfað við tónlistarsköpun og hljóðvinnslu frá unglingsaldri. Hann keypti sér bassa fyrir fermingarpeninginn og byrjaði að fikta í Ableton Live í kjölfarið. Hann lagðist svo á skólabekk í Fíh, Mít og Royal Academy of Aalborg og lærði þar meðal annars á rafgítar, hljóðupptöku, hljóðvinnslu og tónsmíðar. Hann er einnig með BA í heimspeki frá Háskóla Íslands.
Á plötunni leika Hreiðar Már Árnason á trommur, Thomas Cortez á bassa, Róbert Aron Björnsson á saxófón og Sól Hansdóttir syngur. Platan er hljóðblönduð af Róbert Aroni Björnssyni og hljómjöfnuð af Glenn Schick.