Það sáust laxar meðal annars við Djúpós en það er eins og veiðimenn þekkja einn af bestu stöðunum í ánni. Að auki sáust laxar við Ægissíðufoss og þar af einn sem var um 100 sm langur að sögn Stefáns Sigurðssonar hjá Iceland Outfitters. Laxinn er nú yfirleitt ekki mjög snemmgengin í ána svo það verður áhugavert að sjá hvernig veiðin verður við opnun.
Fyrstu laxarnir í Ytri Rangá eru venjulega að veiðast fyrir neðan Ægissíðufoss og þar eru veiðistaðir eins og Klöpp, Gunnugilsbreiða og Djúpós með þeim gjöfulli en hún breytir sér á hverju ári að einhverju leiti þegar laus sandurinn á botninum hreyfir sig og býr oft til nýja veiðistaði. Veiðivísir veðjar á fyrsta laxinn úr Djúpós.