Apabólutilfelli utan Afríku hafa þrefaldast á einni viku Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 5. júní 2022 18:02 Alls hafa 780 greinst smitaðir af apabólu utan Afríku. Ap/Cynthia S. Goldsmith Alls hafa 780 greinst smitaðir af sjúkdómnum apabólu utan Afríku. Fjöldi þeirra hefur tæplega þrefaldast á aðeins einn viku en fyrir einni viku síðan höfðu 257 greinst smitaðir af sjúkdómnum.
Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni, WHO, sem telur þó mun fleiri hafa smitast af sjúkdómnum. Sýkingin er ekki þannig að hún teljist mjög alvarleg en þetta er fyrsta sinn sem sjúkdómurinn berst af einhverju viti út fyrir heimsálfu Afríku. Sjúkdómurinn hefur nú greinst í 27 löndum, sem höfðu ekki áður glímt við apabólufaraldur. Flest þessara nýju tilfella sem greinst hafa undanfarna viku hafa greinst í Evrópu og Norður-Ameríku en einnig hafa nokkur tilfelli greinst í Mexíkó, Argentínu, Marokkó og Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Flest tilfelli utan Afríku hafa greinst í Bretlandi, alls 207, þar á eftir á Spáni, þar sem 156 hafa greinst, og í Portúgal, þar sem 138 hafa greinst smitaðir. Fram kemur í nýjustu tilkynningu frá WHO að í sumum þessara tilfella sé óvitað hvernig einstaklingurinn smitaðist og hvar. WHO metur svo að sjúkdómurinn skapi ekki mikla hættu við mannslíf en verði hann útbreiddari gæti sú skilgreining breyst. Enn hefur enginn, sem vitað er, látist vegna sjúkdómsins í þessari bylgju. Að sögn stofnunarinnar hafa flestir, sem greinst hafa með sjúkdóminn, verið karlmenn sem stundað hafa kynlíf með ðrum karlmönnum. Engar vísbendingar eru um að sjúkdómurinn smitist með kynlífi en ljóst er að hann smitast við mikla nánd. Flestir sem smitast hafa af sjúkdómnum hafa náð sér að fullu, án sérstakrar heilbrigðisaðstoðar, á nokkru vikum. Meðal einkenna er hiti, höfuðverkur, bólgu, bakverkur, vöðvaverkur auk útbrota á húð sem breytast með tímanum. Apabóla getur verið alvarlegri en þetta og fólk í Vestur-Afríku hefur látist af sjúkdómnum.
Apabóla Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fleiri fréttir Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Sjá meira