Hannaði vísindalega heilsukodda og selur nú um allan heim Vogue fyrir heimilið 12. maí 2022 09:59 „Mér fannst furðulegt að gengið væri út frá því að nánast sami koddinn hentaði öllum. Hvað ef það væri bara til ein tegund af skóm? “ segir Thijs van der Hilst, kírópraktor og stofnandi hollenska koddafyrirtækisins Pillowise. „Ég vissi ekkert hvernig framleiðsla á koddum fer fram. Það tók mig nokkur ár að þróa hugmyndina, finna rétta efnið og réttu samstarfsaðilana því ég var harð ákveðinn í því að nota hágæðaefni og innlenda framleiðslu."
Mælingar á líkamanum, stífleiki dýnu og fleiri breytur fara inn í sérstakt reikniforrit sem finnur úr viðeigandi stærð á kodda. „Ég byrjaði einn en nú erum við fimmtíu starfsmenn og í dag, nítján árum síðar, seljum við um allan heim; í Ástralíu, Kína, Bandaríkjunum og Mexíkó, Suður Kóreu og nánast í hverju einasta landi í Evrópu, Íslandi þar á meðal. Við köllum okkur „Koddafólkið“ eða „Pillow People,““ segir Thijs van der Hilst, eigandi hollenska koddafyrirtækisins Pillowise. Pillowise heilsukoddarnir fást í Vogue fyrir heimilið og byggja á vísindalegri nálgun. Sérstakt mælingakerfi er notað til að velja kodda sem passar, meðal annars breidd axla, sverleiki hálsins og lengd. Þá er tillit tekið til stífleika dýnu og svefnstellingar viðkomandi. Upplýsingunum er hlaðið inn í sérstakt forrit sem reiknar út hvaða koddi hentar en Pillowise kerfið samanstendur af 7 mismunandi þykktum af koddum. Eitt passar ekki öllum Þessi vísindalega nálgun Thijs var ekki gripin úr lausu lofti. Thijs er kírópraktor og sérhæfði sig í háls- og höfuðverkjum. Hann varð áþreifanlega var við hve erfitt mörgum reyndist að finna góðan kodda sem passaði og sá að eitthvað þurfti að gera. Rétt val á kodda skiptir höfuðmáli fyrir góðan nætursvefn og góður nætursvefn er lífsnauðsynlegur. „Ég ráðlagði fólki sem leitaði til mín með verki mjög oft að skipta um kodda til að byrja með. Fólk kom þó oftast aftur ráðvillt til mín og hafði fengið spurninguna í versluninni „viltu small, medium eða large?“ Hvað á ég að velja? Spurðu þau mig. Mér fannst furðulegt að gengið væri út frá því að nánast sami koddinn hentaði öllum. Hvað ef það væri bara til ein tegund af skóm? Alveg eins og þegar við veljum okkur skó mælum við stærð fótanna og sömu vísindum ætti að beita við val á koddum,“ segir Thijs. Góð loftun lykilatriði Efnið sem notað er í koddana, og framleiðsluaðferðin sjálf skiptir einnig máli. „Við bjóðum 7 mismunandi þykktir af koddum úr memory foam svampi sem búinn er til hér í Hollandi. Svampurinn er skorinn í rétt form koddans en ekki steyptur sem skiptir lykilmáli. Koddi sem steyptur er í móti fær utan á sig þétta filmu, en skorinn svampur er opinn svo það loftar vel um koddann. Staðreyndin er að yfir 90% kodda sem seldir eru í Evrópu eru steyptir í mótum í Kína en við framleiðum hágæðakodda hér í Hollandi,“ segir Thijs. „Við höfum ekki breytt laginu á koddanum öll þessi ár. Eina breytingin sem við höfum gert er að við bættum sjöundu þykktinni við þegar við fórum inn á Bandaríkjamarkað,“ segir Thijs. Góður nætursvefn lífsnauðsynlegur „Rétt val á kodda skiptir höfuðmáli fyrir góðan nætursvefn og góður nætursvefn er lífsnauðsynlegur. Koddinn má hvorki vera of hár né of lár heldur verður hann að veita réttan stuðning. Með Pillowise kerfinu getum við mætt þörfum 98% fólks sem við mælum. Við höfum ekki breytt laginu á koddanum öll þessi ár. Eina breytingin sem við höfum gert er að við bættum sjöundu þykktinni við þegar við fórum inn á Bandaríkjamarkað. Við munum halda okkar striki," segir Thijs. Í Vogue fyrir heimilið er hægt að fá mælingu og ráðgjöf um val á Pillowise kodda.
Svefn Hús og heimili Heilsa Mest lesið Ágústa Eva setur 170 milljónir á einbýlishúsið í Hveragerði Lífið Bar upp bónorðið á Bæjarins beztu Lífið Léttist um átján kíló á ógnarhraða með hjálp gervigreindar Lífið „Við skoðuðum þennan markað og hann var allur í lausu lofti“ Tónlist Krefst þess að Applegate haldi sig fjarri henni Lífið Mætti á 95 ára Chevrolet og tók sæti á þingi Lífið „Rosaleg skömm fyrir mig á sínum tíma“ Lífið Stjörnufans í eins árs afmæli Lífið Stóð uppi sem ófrísk ekkja 29 ára gömul Lífið Deilt um sýningu Bjarkar: „Asnalega uppsett og kostnaðarsamt prump“ Menning Fleiri fréttir Celebrating George Michael kemur til Íslands Ormsson með sjónvarpsmarkað í beinni útsendingu í kvöld Útivistarfatnaðurinn sem gerir íslenska sumarið betra Díllinn er nýtt app þar sem notendur finna bestu dílana Fiskikóngurinn fagnar stækkun með glæsilegri opnunarhátíð Heather Mills heldur fyrirlestur í Hagkaup Stórkostleg stemning á glæsilegri forsýningu Star Wars Hugarafl skilar nærri hálfum milljarði í samfélagslegan ávinning Svona færðu pallinn í toppstand fyrir sumarið Fulleldað sous vide lambakjöt er spennandi nýjung frá Kjarnafæði Sumir sofa eins og englar – gæti sængin verið leynivopnið? Næsta kynslóð sólarvarna fyrir andlit Einn stærsti rafbílaviðburður sumarsins Sumarveisla hjá Toyota í Kauptúni á laugardag Moroccanoil sér um glamúrinn á Eurovision Stuðningur sem skiptir raunverulega máli Betri svefngæði með bambus Meltingin eins og klukka og brennslan kikkaði í gang Hinn goðsagnakenndi óperusöngvari Sir Bryn Terfel kemur til Íslands Sjálfbær þróun kaupmannsins á horninu Bílahátíð ársins á Kletthálsi: Ofurtilboð í þrjá daga Þetta hefur gefið mér nýtt líf Sjá meira