Ítalíuævintýri til Verona Úrval Útsýn 11. maí 2022 08:51 Í ferðinni heimsækir hópurinn meðal annars Gardavatnið, eina fegurstu perlu Ítalíu. „Verona er af mörgum kölluð borg ástarinnar. Hún er meðal annars sögusvið frægustu ástarsögu allra tíma, Rómeó og Júlíu og Shakespeare sótti mikinn innblástur til Verona. Í ferðinni heimsækjum við húsið þar sem svalir Júlíu eru,“ segir Anna Ólöf Sveinbjörnsdóttir en hún verður fararstjóri vikuferðar til Verona með Úrval Útsýn dagana 12. til 19. júní.
Svalir Júlíu en Verona var Shakespere mikill innblástur. Einnig verða helstu perlur við Gardavatnið heimsóttar í ferðinni en Gardavatnið er talið eitt fegursta stöðuvatn Ítalíu. Allar skoðunarferðir verða farnar með enskumælandi leiðsögumanni ásamt íslenskri fararstjórn Önnu Ólafar. Ævintýraleg fegurð Verona er rómuð. Sjarmerandi torg og götur og einstök matarmenning Verona er ein af elstu borgum Evrópu. Hún þykir afar falleg, en sjarmerandi torg og þröngar götur einkenna gamla bæinn. Fornar minjar er að finna á hverju horni og er stóra hringleikahúsið Arena frá tímum Rómverja eitt þeirra kennileita í borginni sem hefur mikið aðdráttarafl. Þar eru meðal annars haldnar óperuhátíðir undir berum himni. Anna Ólöf segir matarmenningu Verona eitthvað sem enginn má missa af enda sé Ítalía oft kölluð draumaland sælkerans. Óperuhátíðir eru haldnar í hinu forna hringleikahúsi Arena. „Þetta verður algjör „gourmet“ ferð. Ég er sjálf mikil áhugamanneskja um mat og matarmenningu og í ferðinni munum við borða ítalskan mat eins og hann gerist bestur og kynnast ítalskri vínmenningu og fara í vínsmökkun. Í einni skoðunarferðinni verður meðal annars farið um Valpolicella héraðið þar sem Amarone vínin eru gerð,“ segir Anna Ólöf en vínframleiðsla hefur farið fram í Valpolicella frá 5. öld. Amarone vínið er framleitt úr vínberjum sem þurrkuð eru með aðferð forn Grikkja. Ein fegursta perla Ítalíu Gardavatnið er einn vinsælasti ferðamannastaður Ítalíu og líkti skáldið Goethe vatninu sem himnaríki á jörðu. Gardavatnið liggur við rætur Alpafjalla og er stærsta stöðuvatn landsins. Umhverfið er ægifagurt, ólífutré, pálmar og fjöll. Allt í kringum vatnið eru falleg þorp og smábæir. Gardavatnið hefur verið vinsæll áfangastaður hjá Úrval Útsýn ár eftir ár. En Garda vatn var meðal annars í sérstöku uppáhaldi þýska rithöfundarins og heimspekingsins Goethe sem lýsti vatninu sem himnaríki á jörð. Hópurinn mun verja heilum degi við vatnið og heimsækja þorp eins og Garda, Bardolino og Lazise. Iseo vatnið fast á hæla Garda Iseo vatnið þykir einnig sérstaklega fallegur staður. Í ferðinni með Úrval Útsýn verður farið í dagsferð að Iseovatninu sem er minna en Gardavatn en talið jafn vel ívið fegurra en Gardavatnið. Iseo bærinn verður heimsóttur en heimsóknum þangað er gjarnan lýst eins og að stíga aftur í tímann. Aldagömul strætin liggja þvers og kruss og fær hópurinn að kynnast gestrisni heimamanna í mat og drykk. Heimsókn til hinnar fornu Mantua Andrúmsloft liðinna alda einkennir hina fornu Mantua Talandi um að fara aftur í tímann þá mun hópurinn einnig verja degi í hinni heillandi þúsund ára borg Mantua. Mantua var menningarhöfuðborg Ítalíu árið 2016 og er á heimsminjaskrá UNESCO fyrir bókmennta-, list- og tónlistarframlag. Gengið verður um gamla bæinn og í hádeginu verður sest til sannkallaðrar tortellini veislu. Nánar er hægt að kynna sér dagskrá ferðarinnar hér
Ferðalög Ítalía Mest lesið Er með gervigreindarþjálfara Lífið „Hann var ekkert eðlilega góður í sleik“ Makamál Tíu af fyndnustu dýralífsmyndunum Lífið Hvar eru þau nú? Lífið Bergþór Másson selur slotið á ný Lífið Orsakir flösu og áhrifarík meðferð Lífið samstarf Einar á Söndru Bullock mikið að þakka Lífið Væbaramanía og múgæsingur er nýtt átak var kynnt Lífið Áslaug Arna, Dóri DNA og Frikki Dór í listapartýi Menning Söknuðurinn bar Skoppu og Skrítlu ofurliði Lífið Fleiri fréttir Orsakir flösu og áhrifarík meðferð „Það er alls ekki í tísku að brenna“ Iðnaðarmaður ársins 2025 - Þorlákur er kominn í úrslit Heilög tvenna fyrir hlauparann! Yfir tvö hundruð tryllitæki sýnd um helgina A Country Night in Nashville kemur í Hörpu Iðnaðarmaður ársins 2025 - Máni er kominn í úrslit Bakið er hætt að hefna sín Iðnaðarmaður ársins 2025 - Þorleifur er kominn í úrslit Iðnaðarmaður ársins 2025 - Eyjólfur er kominn í úrslit Iðnaðarmaður ársins 2025 – Róbert er kominn í úrslit Iðnaðarmaður ársins 2025 - Þór er kominn í úrslit Með andlit sem fleiri en bara mæður þeirra geta elskað Iðnaðarmaður ársins 2025 - Elsa er komin í úrslit Iðnaðarmaður ársins - Davíð Már er kominn í úrslit Stuðla að heilbrigði með lífrænum barnamat Komdu með í ævintýri til Ítalíu Viltu kynnast töfrum Taílands? Ný og endurbætt snyrtivörudeild opnuð í Hagkaup Pub Quiz hvar sem er, hvenær sem er! Fyrsta háhælahlaup Íslandssögunnar Ný hugsun í heimi brúnkuvara Fyrirtæki á Norðurlandi styðja SÁÁ Komdu með á ströndina — Ný sumarlína frá Moomin Arabia BAUHAUS býður þér í glæsilega afmælisveislu! Aldrei verið eins einfalt að bóka tíma Tork gaur: BMW neglir fallegan framenda Batinn á vefjagigt kom úr óvæntri átt Sjá meira