Oddvitaáskorunin: Spilaði fótboltamót í sundbol Samúel Karl Ólason skrifar 11. maí 2022 11:00 Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2022 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í sveitarfélögum um land allt að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum léttum spurningum.
Benóný Valur Jakobsson leiðir lista Samfylkingarinnar í Norðurþingi í komandi sveitarstjórnarkosningum. Benóný er 53 ára gamall tveggja barna faðir, kvæntur Guðrúnu Einarsdóttur og saman eiga þau hundinn Kút. Benóný er fæddur og uppalinn á Húsavík og vill hann hvergi annars staðar vera að eigin sögn. Benni eins og hann er oftast kallaður er mikill jafnaðarmaður og endurspeglast það í öllum hans aðgerðum, bæði í stjórnmálum og félagsstörfum. Eins og aðrir jafnaðarmenn brennur Benni fyrir félagslegu jafnrétti og jöfnum tækifærum, ekki síst fyrir þá sem minna mega sín. Þetta endurspeglast í hans störfum en á meðan dvöl hans í höfuðborginni stóð hann m.a. að stofnun Fálkanna, félagsskap feðra í Val en megin tilgangur félagsins er að safna fjár í þágu barna- og unglingastarfs félagsins. Við komu sína aftur til Húsavíkur hellti Benni sér strax í stjórnmál og sat á kjörtímabilinu fyrst sem varaformaður Fjölskylduráðs og síðar sem formaður Skipulags- og framkvæmdaráðs. Þegar hann er ekki í stjórnsýsluhúsinu þá starfar hann sem verkamaður í málningarvinnu. Benni hefur undanfarin ár setið sem fulltrúi S-lista Samfylkingarinnar og annars félagshyggjufólks og gefur kost á sér til að halda áfram sem Oddviti sama lista. Þeirra helstu áherslur, eru jöfnuður, ábyrgð og skýr framtíðarsýn fyrir sveitarfélagið. X við S, að sjálfsögðu! Hver er fallegasti staðurinn á Íslandi? Ásbyrgi ekki spurning. Er eitthvað lítilvægt sem fer þó í taugarnar á þér í þínu sveitarfélagi sem þú vilt að sé lagað? Ekki kannski beint í taugarnar á mér en mér finndist að stjórnsýsluhúsið á Húsavík ætti að vera málað Samfylkingarrautt það færi því húsi svo miklu betur. Hvert er þitt uppáhalds áhugamál sem gæti þótt skrítið? Stórum hluta finnst það sjálfsagt skrítið (en minni hluta en fólk almennt heldur) en ég hef gríðarlega gaman af kántrý tónlist. Hver eru þín minnistæðustu samskipti við lögregluna? Hef verið svo heppinn að hafa í gegnum tíðina þurft lítið að eiga samskipti við lögregluna og engin sem eru sérlega minnistæð. Hvað færðu þér á pizzu? Pepperoni,sveppi,lauk og jalapeno. Hvaða lag peppar þig mest? Du Hast, Rammstein. Hvað getur þú tekið margar armbeygjur? Ekki tékkað nýlega en örugglega ekki margar. Göngutúr eða skokk? Göngutúr með hundinum mínum honum Kút. Uppáhalds brandari? Hvað er líkt með fíl? Hann kann hvorki að spila á gítar. Hvað er þitt draumafríi? Mánaðarferðalag um Frakkland með konunni minni þar sem lítið skipulag væri á ferðinni heldur vindar og tilfinningar látnar ráða för. Hvort fannst þér 2020 eða 2021 vera verra ár? Þar sem ég fótbrotnaði 2020 fær það mitt atkvæði. Uppáhalds tónlistarmaður? Brad Pasley. Hvað er það skrýtnasta sem þú manst eftir að hafa gert? Spila heilt innanhúsknattspyrnumót íklæddur sundbol. Ef það væri gerð kvikmynd um ævi þína, hver ætti að leika þig? Má vera íslenskur eða útlenskur. Matt Le Blanc. Hefur þú verið í verbúð? Nei. Áhrifamesta kvikmyndin? Dead poet society hafði gríðarleg áhrif á mig á sínum tíma. Áttu eftir að sakna Nágranna? Nei. Ef þú yrðir að flytja úr þínu sveitarfélagi, hvert myndir þú helst vilja fara? Suður Frakklands. Uppáhalds „guilty pleasure“ lag? (skammast þín smá fyrir að hafa gaman af því – sakbitin sæla) Louder Dj Muscleboy.
Oddvitaáskorunin Sveitarstjórnarkosningar 2022 Norðurþing Samfylkingin Mest lesið Ný plata frá Birgi Hákoni: „Ég er ekki lengur þessi gaur nema í tónlistinni“ Lífið „Það er alveg hægt að vinna rifrildið, en þá tapar sambandið“ Makamál Borðar það sem alltaf hefur verið til og léttist og léttist Lífið „Fimm ár af allskonar og hamingjan er enn hér“ Lífið Tjáir sig í fyrsta sinn um bróðurmissinn Lífið Ein lausn er að liggja hlið við hlið og fróa sér Lífið Einfalt og frísklegt útlit fyrir hlaupið Lífið Best skipulagða geymsla landsins í glæsihúsi við Laugardalinn Lífið Göngutúr með umhverfissálfræðingi: „Árás inn í umhverfið“ og vannýttasta horn borgarinnar Lífið Fagnaði 35 árum í sólinni Lífið Fleiri fréttir Einfalt og frísklegt útlit fyrir hlaupið Borðar það sem alltaf hefur verið til og léttist og léttist „Fimm ár af allskonar og hamingjan er enn hér“ Ný plata frá Birgi Hákoni: „Ég er ekki lengur þessi gaur nema í tónlistinni“ „Það er alveg hægt að vinna rifrildið en þá tapar sambandið“ Púsluðu sig inn í undanúrslit þrátt fyrir hremmingar Tjáir sig í fyrsta sinn um bróðurmissinn Fagnaði 35 árum í sólinni Best skipulagða geymsla landsins í glæsihúsi við Laugardalinn „Allir vonuðu að þetta yrði stelpa“ Mistök að eyða ekki meiri tíma með börnunum Göngutúr með umhverfissálfræðingi: „Árás inn í umhverfið“ og vannýttasta horn borgarinnar Kvaddi dramað og flutti fyrir ástina Selur slapp úr hvalskjafti Komo keppir á stærstu götubitakeppni í heimi Verslunarhjón selja glæsivillu í 108 Okkar eigið Ísland: Skelltu sér í slímuga laug Eitt stærsta bílabíó landsins fer fram um helgina „Það spurði þig enginn“ Mætt aftur til vinnu Ein lausn er að liggja hlið við hlið og fróa sér Fagurt einbýli í hjarta Vesturbæjar Ljúffengar vöfflur í nestisboxið Réði ekki við sig þegar hann hitti Lopez Ekki viss um að mamma hans hefði kosið hann Leyfir börnunum að sofa uppi í rúmi Smekklegasta fólk landsins skálaði í kaffi Skelltu sér úr háloftunum niður í Hörpu Klippt út af myndinni Ein litríkasta íbúð landsins til sölu Sjá meira