Sjáðu hvernig Ísak hélt upp á afmælið með tveimur mörkum og þremur stigum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 2. maí 2022 09:30 Ísak Snær Þorvaldsson hefur skorað fjögur mörk í fyrstu tveimur heimaleikjum sínum með Breiðabliki. vísir/hulda margrét Ísak Snær Þorvaldsson átti heldur betur góðan afmælisdag í gær en hann skoraði tvö mörk í 3-0 sigri Breiðabliks á FH í 3. umferð Bestu deildarinnar.
Ísak fagnaði 21 árs afmæli sínu í gær og hélt upp á það með því að skora tvö mörk í öðrum heimaleiknum í röð. Mosfellingurinn skoraði tvö mörk í 4-1 sigri Breiðabliks á Keflavík í 1. umferð Bestu deildarinnar og endurtók leikinn gegn FH í gær. Ísak kom Blikum yfir í uppbotartíma fyrri hálfleiks með góðu skoti. Á 71. mínútu kom Kristinn Steindórsson heimamönnum í 2-0 eftir slæm mistök Gunnars Nielsen í marki gestanna. Tveimur mínútum síðar skoraði Ísak sitt annað mark og þriðja mark Breiðabliks með skoti á lofti eftir sendingu Davíðs Ingvarssonar. Klippa: Breiðablik 3-0 FH Breiðablik er með níu stig á toppi Bestu deildarinnar og Ísak er markahæstur í deildinni með fjögur mörk. FH er með þrjú stig í 8. sætinu. Í fyrri leik gærdagsins gerðu ÍBV og Leiknir 1-1 jafntefli á Hásteinsvelli. Andri Rúnar Bjarnason kom Eyjamönnum yfir á 26. mínútu þegar hann skoraði sitt fyrsta mark fyrir félagið eftir sendingu Guðjóns Péturs Lýðssonar. Þremur mínútum síðar skoraði Eiður Aron Sigurbjörnsson, fyrirliði ÍBV, sjálfsmark og þar við sat. Bæði Eyjamenn og Leiknismenn eru með eitt stig. Klippa: ÍBV 1-1 Leiknir Mörkin úr leikjum gærdagsins má sjá hér fyrir ofan.
Besta deild karla Breiðablik FH ÍBV Leiknir Reykjavík Mest lesið Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira