Gæti misst þingsætið eftir að hafa horft á klám í þingsal Smári Jökull Jónsson skrifar 30. apríl 2022 11:01 Parish er sagður hafa horft á klámmyndbönd í tvígang á vinnutíma. Vísir/Facebook Breski þingmaðurinn Neil Parish hefur verið rekinn úr þingflokki Íhaldsflokksins eftir að hafa viðurkennt að hafa horft á klám í þingsal.
Parish gaf sig fram til siðafulltrúa breska þingsins í gær eftir að tvær þingkonur Íhaldsflokksins tilkynntu að þær hefðu séð hann horfa á klám í síma sínum í tvígang, einu sinni í þingsal og í hitt skiptið á nefndarfundi. Rannsókn er hafin á málinu en sjálfur segir Parish að hann hafi opnað myndband fyrir mistök í síma sínum. „Ég gerði það en látum rannsóknina leiða það í ljós,“ segir Parish í viðtali við Sky News. Hann segist ætla að sitja áfram en muni hætta ef hann verði fundinn sekur. Kallað hefur verið eftir því að Parish segi af sér vegna málsins og Harriet Harman, þingmaður Verkamannaflokksins og sú kona sem lengst hefur setið á þingi, segir að Parish sé ekki hæfur sem þingmaður. „Hann ætti að sætta sig við það og ekki draga þetta ferli á langinn.“ Áður en í ljós kom að Parish var umræddur þingmaður hafði Rachel Maclean, öryggismálaráðherra Bretlands og samflokksmaður Parish sagt að þingmaðurinn ætti að vera rekinn úr flokknum. Hún segist standa við orð sín. „Svona hegðun á ekki heima á neinum vinnustað, hvað þá á þinginu.“
Bretland Klám Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Fleiri fréttir Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Sjá meira