„Hvert pensilstrok krefst fullrar athygli og skjótra ákvarðana“ Elísabet Hanna skrifar 28. apríl 2022 16:30 Ann með verk eftir sig. Skjáskot/Instagram Sænska listakonan Ann Larsson-Dahlin opnar listasýningu á Íslandi um helgina í sal Grásteins. Hún er leiðandi afl í fagi vatnslitamálara og hefur hlotið viðurkenningu um allan heim fyrir verk sín.
Sækir innblástur frá Íslandi Verkin eftir hana skarta sum einskærri náttúru Íslands að vetrarlagi og hefur hún haldið sýningar á hinum ýmsu stöðum en sýningin á Íslandi verður opin út maí. „Síðustu ár hafa margar af myndunum mínum verið uppfullar af sælu minni yfir kraftmiklum töfrum íslensks landslags,“ segir Ann um íslensku náttúruna. Hún segir ferðir sínar um landið hafa veitt sér mikinn innblástur: „Minningar frá nokkrum ferðum um Ísland hafa skilað sér í nokkrum frekar stórum vatnslitamyndum og einnig minni, þar sem ég reyndi að fanga tilfinningar mínar fyrir sumum einkennum íslensks landslags,“ segir hún og bætir við: Mér þótti til dæmis mjög leiðinlegt að sjá hversu hratt jökulís Vatnajökuls bráðnar við Jökulsárlón, þannig að þessi hrifning fékk mig til að vinna með bráðnandi jökla í nokkrum myndum mínum. Ann hefur málað íslenska náttúru að vetrarlagi.Ann Larsson-Dahlin. Vatnslitatæknin krefst fullrar athygli Ann segir vatnslitatæknina gefa birtu og loftleika sem henni líkar við. Hún segir tæknina felast í því að vinna með mismunandi litarefni, eiginleika þeirra og kynni við mismunandi magn af vatni. Hún segist slíkt krefjast mikillar þekkingar á bæði tækni og efnum og bætir við: „Efnið er miðill sem erfitt er að ná tökum á, þar sem hvert pensilstrok krefst fullrar athygli og skjótra ákvarðana.“ Tilrauna starfsemi Sjálf er Ann frá litlu þorpi í norðurhluta Svíþjóðar en hefur ferðast um Ísland. Hún hefur meðal annars ferðast til Akureyrar, Dalvíkur og staðanna í kringum Goðafoss og Mývatn um miðjan nóvember þar sem hún sótti sér innblástur. Hún segir að á þessum tíma hafi fjallstopparnir að hluta til verið þaktir snjó sem hafi gefið falleg myndræn mynstur og hrífandi tilfinningar. „Fyrir mér er málverk tilraun þar sem ég, efnið mitt og mótífið er í samspili. Ég leitast við að þróa hæfileika mína til að mála af áræðni og reiprennandi, svo að málverkið verði ekki teiknað af of mörgum smáatriðum og of mikilli skýrleika.“
Menning Myndlist Svíþjóð Tengdar fréttir Opna sýninguna Lífsleikni: „Lítum aftur á þessi augnablik sem höfðu svo gríðarlega mikil áhrif á mörg okkar“ Laugardaginn 23. apríl næstkomandi opnar sýning Dýrfinnu Benitu Basalan, Lífsleikni, í Listval, Hólmaslóð 6. 21. apríl 2022 11:31 Sýningargestum velkomið að koma og leika sér Sara Björg Bjarnadóttir er myndlistarkona sem ber marga aðra hatta eins og að vera landvörður, heimspekinemi og söngkona. Hún útskrifaðist með BA gráðu úr LHÍ árið 2015 og hefur búið í Kanada, á Akureyri og í Berlín en er nú orðinn Kópavogsbúi. Sara Björg stendur fyrir sýningunni „mjúk lending“ sem opnar í Ásmundarsal í dag klukkan 15:00 og eru öll velkomin. 12. mars 2022 07:01 Sýningin Freistingin opnar á morgun: „Er nema von að sálir kvenna standi í ljósum logum um allan heim“ Listakonan Ragnhildur Jóhanns opnar sýninguna „Freistingin“ á morgun, laugardaginn 5. mars, á milli klukkan 17:00 og 19:00 í sýningarrými Hjarta Reykjavíkur að Laugavegi 12b. 4. mars 2022 15:30 Mest lesið Sex ára þegar hann var fyrst frelsissviptur Lífið Háleit markmið Katrínar: Sparar í mat og greiðir 10 milljónir inn á húsnæðislánið Lífið Fimm heillandi heimili í höfuðborginni Lífið „Fyrir mér snýst þetta ekki bara um að sækjast eftir kórónu“ Lífið Ungir Framsóknarmenn safna fyrir neyðarsjóð Ragnars Þórs Lífið Var mjög heit fyrir lýtalækninum Lífið Segir gott að elska Ara Lífið Fáðu að vita strax hvort þú hafir efni á draumaeigninni Lífið samstarf „Ég hef gert mig þannig tilbúna fyrir þetta að ég eigi titilinn skilið“ Lífið Innlit á Bessastaði Lífið Fleiri fréttir Birgitta Björg, Ingunn og Rán Flygenring fengu Fjöruverðlaun Tjörnin trónir á toppnum Borgarstjórar og forsetar á ólgandi listasýningu Hendur sem káfa, snerta og breyta „Á fyrsta uppistandi er maður að skíta á sig“ Eiríkur og Þórdís tilnefnd til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs Tvíburabræður með myndlistarsýningu „Hvenær er hægt að leita í óskilamun hjá ykkur?“ Uglumorð, auglýsingar og dauði internetsins Brynhildur hættir í Borgarleikhúsinu Mótsvar til að lifa af andlega og sökkva ekki í hyldýpið Líf og fjör meðal guða og manna Dægradvöl Benedikts meinfýsið rant biturs manns Kennir Instagram mökum að taka almennilegar myndir Úr drullumalli og nornaseiði í listnám í Bandaríkjunum Sjá meira
Opna sýninguna Lífsleikni: „Lítum aftur á þessi augnablik sem höfðu svo gríðarlega mikil áhrif á mörg okkar“ Laugardaginn 23. apríl næstkomandi opnar sýning Dýrfinnu Benitu Basalan, Lífsleikni, í Listval, Hólmaslóð 6. 21. apríl 2022 11:31
Sýningargestum velkomið að koma og leika sér Sara Björg Bjarnadóttir er myndlistarkona sem ber marga aðra hatta eins og að vera landvörður, heimspekinemi og söngkona. Hún útskrifaðist með BA gráðu úr LHÍ árið 2015 og hefur búið í Kanada, á Akureyri og í Berlín en er nú orðinn Kópavogsbúi. Sara Björg stendur fyrir sýningunni „mjúk lending“ sem opnar í Ásmundarsal í dag klukkan 15:00 og eru öll velkomin. 12. mars 2022 07:01
Sýningin Freistingin opnar á morgun: „Er nema von að sálir kvenna standi í ljósum logum um allan heim“ Listakonan Ragnhildur Jóhanns opnar sýninguna „Freistingin“ á morgun, laugardaginn 5. mars, á milli klukkan 17:00 og 19:00 í sýningarrými Hjarta Reykjavíkur að Laugavegi 12b. 4. mars 2022 15:30