Þessi hressa danssveit er skipuð af þeim Agli Gauta Sigurjónssyni, Vöku Agnarsdóttur og Elíasi Geir Óskarssyni. Þau stofnuðu hljómsveitina í fyrsta samkomubanninu, gáfu út plötuna Inspector Spacetime í janúar 2021 og eru þekkt fyrir grípandi taktfasta tóna og lifandi sviðsframkomu. Blaðamaður hafði samband við þetta hressa unga tónlistarfólk og fékk að heyra meira um nýja lagið, Kenndu mér.
Lagið byggt í kringum ákveðna setningu
„Egill var búinn að vera með þessa setningu: „Kenndu mér að dansa“ í hausnum svolítið lengi, við höfðum reynt að koma henni fyrir í öðrum lögum en það gekk aldrei upp fyrr en núna því við ákváðum byggja bara viðlagið í kringum setninguna,“ segja meðlimirnir. Fæðing lagsins var svo ansi snögg.
„Við vorum uppi í stúdíói eitt kvöldið og ætluðum að reyna að klára önnur verkefni þegar við tökum pásu frá því og fyrsta demoið af Kenndu mér var tilbúið á svona klukkutíma. Næstu tveir dagar fóru svo í að fínpússa og svo varð það bara sent í mix.
Við höfum aldrei verið svona fljót að fullklára lag.“
Fyrsta giggið erlendis
Þau segjast ótrúlega sátt við það hvað fólk er nú þegar búið að taka vel í lagið. Það er margt spennandi á döfinni og sést langar leiðir að hljómsveitarmeðlimum þykir gaman að koma fram.
„Við ætlum að reyna að klára plötu sem fyrst og svo spila ógeðslega mikið í sumar. Í júlí erum við spila okkar fyrsta gigg erlendis á lítilli hátíð í Noregi og erum sjúklega spennt fyrir því.“
Þar sem hljómsveitin var stofnuð í alheimsfaraldri tók eflaust dálítinn tíma að venjast því að spila fyrir stóra hópa á takmarkalausum tímum.
„Við erum fyrst núna að venjast því að spila reglulega og fyrir framan stærri hópa sem er mjög gaman. Og út af því erum við búin að vera að reyna að stækka við live showin okkar.
Annars höfum við bara verið að halda áfram að gera lög sem okkur finnst skemmtileg og við myndum vilja hlusta á.“