Ný ríkisstjórn mynduð á Grænlandi Atli Ísleifsson skrifar 4. apríl 2022 13:59 Múte B. Egede er formaður Inuit Ataqatigiit og verður áfram formaður landsstjórnarinnar. EPA Flokkurinn Naleraq á ekki lengur aðild að ríkisstjórn Grænlands. Hans Enoksen, formaður flokksins, segir í samtali við KNR að Inuit Ataqatigiit (IA), flokkur Múte B. Egede, formanns landsstjórnarinnar, hafi ákveðið að binda enda á samstarfið og mynda þess í stað stjórn með flokknum Siumut.
Grænlenskir fjölmiðlar segja frá þessum tíðindum í dag, en Egede og Erik Jensen, formaður Siumut, kynntu samstarfið á fréttamannafundi í dag. Segja þeir ríkisstjórnarsamstarfið meðal annars snúast um að gera breytingar á lögum sem snúa að ferðamennsku, opna stjórnsýslu, áherslu á grænlenska tungu, frelsi borgaranna, jafnréttismál og að áfram verði unnið í átt að sjálfstæðis landsins. „Það var ekki hægt að komast hjá því að taka eftir að við og Naleraq hefðum þróast í áttina hvor frá öðrum pólitískt. Ég þakka fyrir samstarfið,“ sagði Egede í dag. IA og Siumut mynduðu einnig saman ríkisstjórn árið 2016, þá með Naleraq innanborðs. Þingkosningar fóru fram á Grænlandi fyrir um ári síðan og vann IA þá mikinn sigur. IA og Naleraq mynduðu þá ríkisstjórn sem naut stuðnings sextán af 31 þingmanni. Flokkurinn Atassut ákvað þó að styðja ríkisstjórnina. Þingmenn IA og Siumut telja samtals 22. Egede verður áfram formaður landsstjórnar Grænlands í nýrri ríkisstjórn.
Grænland Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Fleiri fréttir Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Sjá meira