Unnu stórsigur en misstu af lokakeppninni á einu marki Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 29. mars 2022 13:08 Íslenska U-17 ára landsliðið í fótbolta lauk undankeppni EM með öruggum sigri á Írlandi. ksí Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta skipað leikmönnum sautján ára og yngri var aðeins einu marki frá því að komast í lokakeppni Evrópumótsins 2022.
Ísland vann stórsigur á Írlandi, 4-1, í lokaleik sínum í milliriðli undankeppni EM í dag. Íslendingar enduðu með sjö stig í riðli 1 líkt og Finnar en þær finnsku enduðu í efsta sætinu sökum hagstæðari markatölu. Finnland var með markatöluna 7-2 en Ísland 6-2. Íslensku stelpurnar urðu því að sjá á eftir EM-sætinu þrátt fyrir að hafa ekki tapað leik í milliriðlinum. Írar komust yfir í leiknum í Dublin í dag strax á 4. mínútu en Eyrún Embla Hjartardóttir jafnaði sjö mínútum síðar með þrumufleyg af löngu færi. Fjórum mínútum fyrir hálfleik kom Emelía Óskarsdóttir, leikmaður Kristianstad í Svíþjóð, Íslandi yfir. Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir jók muninn í 3-1 á 79. mínútu og bætti svo öðru marki við í uppbótartíma. Lokatölur 4-1, Íslandi í vil. Á sama tíma vann Finnland Slóvakíu, 0-4, og tryggði sér þar með efsta sætið í riðlinum og farseðilinn á EM. Staðan í hálfleik var markalaus en Slóvakar gerðu fjórfalda skiptingu í hálfleik og leikur þeirra hrundi í seinni hálfleik.
Fótbolti Mest lesið Sótillur eftir tapið: „Sóa fyrirhöfn heillar þjóðar“ Fótbolti Hvers vegna tekur Halldór ekki strax við Val? Íslenski boltinn Sölvi reiður þrátt fyrir sigur Fótbolti FIFA styður dómarann sem Trump sagði að væri grunsamlegur Fótbolti Veikindi herja á norska liðið Fótbolti Forsætisráðherra Kanada óskaði eftir því að deila Haaland á næsta HM Fótbolti 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Körfubolti Tuchel bannar Englendingum að stökkva yfir auglýsingaskilti eftir ófarir Henderson Fótbolti Í átta liða úrslit í fyrsta sinn í 72 ár Fótbolti Segist ekkert hafa með afléttingu bannsins að gera Fótbolti Fleiri fréttir Evrópuþingmenn kalla eftir rannsókn á Infantino Hildur til Newcastle Maður dagsins á HM: Gat valið um fjórar íþróttir sem táningur Segir að það sé verið að dæma í hag Argentínu á HM FIFA styður dómarann sem Trump sagði að væri grunsamlegur Veikindi herja á norska liðið Forsætisráðherra Kanada óskaði eftir því að deila Haaland á næsta HM Tuchel bannar Englendingum að stökkva yfir auglýsingaskilti eftir ófarir Henderson Hvers vegna tekur Halldór ekki strax við Val? Sótillur eftir tapið: „Sóa fyrirhöfn heillar þjóðar“ Í átta liða úrslit í fyrsta sinn í 72 ár Sölvi reiður þrátt fyrir sigur Segist ekkert hafa með afléttingu bannsins að gera Uppgjörið: Víkingur - Györ 1-0 | Niko Hansen sá til þess að Víkingur fer með forystu til Ungverjalands Messi hágrét eftir leik Elías Már sárþjáður og fór af velli Lygilegur viðsnúningur Argentínu Portúgalir búnir að finna eftirmann Martínez Tók upp hanskann fyrir Sigurpál: „Gerir það sem markmenn KR eiga að gera“ Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Segir að Ungverjarnir hafi verið óheppnir að fá Víking í drættinum Sjáðu enn eitt markið hjá Kennie og Stefan koma Keflavík í efri hlutann Skoraði á HM en nær ekki að spila í Fossvogi Allt að verða vitlaust í Noregi: „Þjóðin komin með mjög óraunhæfar væntingar“ Aftur til Frakklands eftir sneypuför til Chelsea Túfa látinn fara eftir níu töp í síðustu tíu leikjum Maður dagsins á HM: Feimni boltastrákurinn sem gerði gestgjöfunum grikk Kvartar yfir álaginu: Messi gæti spilað fimm leiki á sautján dögum Rodri skammaðist sín og baðst fyrirgefningar Sjá meira
Uppgjörið: Víkingur - Györ 1-0 | Niko Hansen sá til þess að Víkingur fer með forystu til Ungverjalands