Óðinn Þór var viss um að Arnar Freyr myndi klára dæmið Hjörvar Ólafsson skrifar 9. mars 2022 23:30 Óðinn Þór í leiknum í kvöld. Hulda Margrét Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði mörk í öllum regnbogans litum þegar KA tryggði sér sæti í bikarúrslitum í handbolta karla eftir 18 ára bið með dramatískum sigri gegn Selfossi í kvöld. „
Þetta var ótrúlegur leikur og örugglega gott sjónvarp. Ég skal alveg viðurkenna það að ég hélt að við myndum vinna þægilegan sigur þegar við vorum komnir fimm mörkum yfir og lítið eftir. Mér fannst líklegra að við myndum auka forskotið á þeim tímapunkti en vel gert hjá Selfossi að koma sér inn í leikinn,“ sagði Óðinn Þór Ríkharðsson sem skoraði 12 mörk fyrir KA þegar liðið vann Selfoss eftir framlengdan leik í undanúrslitum Coca Cola bikarsins í handbolta karla í kvöld. „Ég fann mig vel í þessum leik og ég var líka að fá góða þjónustu, með sendingum í hornið og upp í hraðaupphlaup. Þá vorum við duglegir í að sækja okkur víti. Það er frábær tilfinning að hafa náð að klára þetta og komast í úrslit,“ sagði Óðinn Þór enn fremur. Óðinn Þór hafði tröllatrú á kollega sínum í vinstra horninu þegar hann sveif inn úr vinstra horninu á lokasekúndu framlengingarinnar. „Ég var alveg viss um að Arnar Freyr myndi klára dæmið. Hann hefur gert það áður á ögurstundu á móti Selfossi. Þetta var aldrei spurning,“ sagði hornamaðurinn um lokaskot leiksins. „Ég er mjög spenntur fyrir því að mæta Val á laugardaginn. Þeir eru á miklu skriði og eru með frábært lið. Þetta verður erfitt verkefni. Þeir hafa verið með okkur í vasanum í vetur en stefnan er að breyta því um helgina,“ sagði Óðinn Þór spenntur.
KA UMF Selfoss Mest lesið Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport Japan - Ísland 1-0 | Málning þornar Fótbolti „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Körfubolti „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Byrjunarliðin í Tókýó: Stefán Teitur og Liverpool-maður fyrirliðar Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu Fótbolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Körfubolti Fleiri fréttir Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum Benedikt og Sigurjón leiddu Kolstad að titlinum Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Verður Aron þjálfari FH? Göppingen vann Einar án Ýmis Elín Klara sænskur meistari Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Góður sigur en erfitt að ná Meistaradeildarsæti Rúnar sigraði á móti sínum gömlu íslensku lærisveinum Donni og félagar komnir í úrslit Allt jafnt í úrslitaeinvíginu Einar Rafn snýr aftur í Fjörðinn Haukur mikilvægari en Gidsel Sjá meira