Skoðun

Skemmti­legt mann­líf og öflugt at­vinnu­líf

Áslaug Hulda Jónsdóttir skrifar

Góður bæjarbragur skiptir miklu máli. Við viljum hafa umhverfið fallegt og fólkið skemmtilegt. Aðlaðandi umhverfi og góð aðstaða styðja við góðan bæjarbrag.

Garðatorg hefur tekið stakkaskiptum síðustu ár og nú þurfum við að halda áfram. Við þurfum að bæta um betur með frekari uppbyggingu, lagfæringum og nýjungum á torginu. Möguleikarnir eru mýmargir og til viðbótar við lagfæringar á yfirbyggingu og stétt má t.d. nefna mathöll, skautasvell, skjólsælt leiksvæði fyrir yngstu börnin, ungmennahús og fleira sem eflir mannlífið. Allt eru þetta fjölskylduvænar og uppbyggilegar hugmyndir sem vert er að taka vel í og láta verða að veruleika.

Stækkandi bær, lækkandi skattar

Garðabær er stór og fer stækkandi. Garðbæingar eru orðnir fleiri en 18 þúsund talsins og það er gríðarlega mikilvægt að boðið sé upp á fjölbreytta afþreyingu og dagskrá fyrir alla aldurshópa, víðs vegar í bænum. Miklu máli skiptir að hafa aðgang að þjónustu í nærumhverfi sínu. Þess vegna eigum við að efla hverfiskjarna í Urriðaholti og á Álftanesi, með fjölskylduvænar hugmyndir í fjölskylduvænu bæjarfélagi.

Lækkun fasteignaskatta er jákvæður hvati fyrir atvinnulífið sem aftur ýtir undir menningarlíf í bænum. Lágar álögur og hóflegar skuldir eru stef sem við sjálfstæðismenn höfum haft að leiðarljósi í Garðabæ og því eigum við að halda áfram. Sterk fjárhagsstaða er grunnurinn að góðri þjónustu. Lækkum fasteignaskatt fyrir heimili og atvinnulíf.

Notum náttúruna fallega

Sveitarfélagið er stórt og víðfeðmt og okkur er í lófa lagið að nýta opnu svæðin fyrir fjölbreyttar uppákomur og hvers kyns heilsueflandi starfsemi. Höldum tónleika, leiksýningar og aðra menningarviðburði á laugardögum á sumrin. Bjóðum upp á kakó og vöfflur við Vífilsstaðavatn um vetur. Aðstaða fyrir vatnasport og sjósund ætti einnig að vera valkostur og aðstaða á að vera til fyrirmyndar.

Markmiðið á að vera að mæta þörfum íbúa Garðabæjar, hvort sem þeir eru ungir eða eldri, skapandi listafólk, útivistarfólk eða innipúkar, búsettir í miðjum bænum eða í hverfum nær náttúrunni. Margsannað er að fylgnin á milli góðrar þjónustu og ánægju íbúa er mikil.

Ég vil að Garðbæingar séu ánægðir í bænum sínum. Ég vil skemmtilegt mannlíf og öflugt atvinnulíf.

Höfundur er formaður bæjarráðs og býður sig fram í 1. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ.




Skoðun

Sjá meira


×